Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 8
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
„Miðill er manns gaman“ er vonandi ekki orðatiltæki sem
leysir af hólmi hið gamalkunna „maður er manns gaman“
en þegar fólkið kemst ekki til okkar förum við til fólksins,“
segir Þórdís Ósk Helgadóttir skrifstofustjóri Súlunnar
verkefnastofu í Reykjanesbæ. Þar vísar Þórdís í sam-
eiginlegt framtak menningarstofnana bæjarins í samko-
mubanni, að færa menninguna heim til fólks á meðan
það hefur ekki kost á að stunda hana með öðrum hætti.
Þórdís segir yfir 50 viðburði af ýmsum toga í undirbún-
ingi hjá þeim og munu þeir líta dagsins ljós jafnt og þétt
á meðan á samkomubanni stendur.
Guðlaug María Lewis verkefnastjóri
menningarmála hjá Reykjanesbæ segir
að forsvarsmenn allra stofnana hafi
tekið mjög vel í þá hugmynd að standa
saman að slíku verkefni, því jafnvel
þótt allir komist af í einhvern tíma án
þess að njóta menningar er hún dálítið
eins og gamla og góða Opalið; bætir,
hressir og kætir og veitir víst ekki af.
Hugmyndin er þannig að vikulega
birtist auglýsing þar sem megin dag-
skrá allra stofnana verður að finna á
einum stað svo fólk geti betur áttað
sig á hvað er í boði, hvar og hvenær en
óhætt er að segja að þar kenni ýmissa
grasa. Auglýsinguna verður að finna
á facebooksíðum stofnananna, auk
facebooksíðu Reykjanesbæjar og í við-
burðadagatali á vefsíðu Reykjanesbæjar,
reykjanesbaer.is.
Menningarstofnanirnar
taka höndum saman
Þeir sem að verkefninu koma eru
Bókasafn Reykjanesbæjar, Byggðasafn
Reykjanesbæjar, Listasafn Reykjanes-
bæjar, Hljómahöll og Rokksafn Íslands
og Skessan í hellinum. Meðal viðburða
má nefna að Bókasafnið stendur fyrir
hugleiðsluhádegi, notalegri sögustund
fyrir börnin með Höllu Karen, krakka-
jóga auk þess að streyma ýmsu úr starf-
semi safnsins, svo sem pokasaumi og
kynningu á erlendu efni safnsins. Að
sögn Stefaníu Gunnarsdóttur forstöðu-
manns safnsins er mikil eftirvænting í
herbúðum starfsfólks fyrir verkefninu.
Ljósmyndir, leiðsagnir
og sögulegur fróðleikur
frá Byggðasafninu
Byggðasafn Reykjanesbæjar birtir
daglega mynd dagsins úr myndasafni
byggðasafnsins með tilheyrandi fróð-
leik, m.a. verða birtir sögumolar frá
Árna Daníel Júlíussyni sagnfræðingi
sem nú starfar við ritun á sögu Kefla-
víkur 1949-1994. Að sögn Eiríks P.
Jörundssonar forstöðumanns safnsins
eru myndirnar eins og inngangur að
sérstökum ljósmyndavef safnsins sem
til stendur að setja í loftið á næstu
vikum. Á vefnum mun fólk geta skoðað
myndir, leitað eftir leitarorðum, pantað
myndir og ekki síst verður auðvelt fyrir
fólk að senda inn ábendingar og upp-
lýsingar um hverja mynd. Þetta er
langþráður vefur og mun án efa verða
mörgum gleðiefni um ókomna tíð. Þá er
ætlunin að vikulega verði boðið upp á
stafræna leiðsögn á netinu um sýningar
og geymslur safnsins og verður fyrsta
leiðsögnin um sýninguna Varnarlið
í verstöð í fylgd Helga Biering þjóð-
fræðings.
Nýjar heimildamyndir og
fleira frá Listasafninu
Listasafn Reykjanesbæjar mun dag-
lega deila fróðlegu efni um myndlist
til áhugasamra. Því til viðbótar hefur
Helga Þórsdóttir, nýr safnstjóri safns-
ins, unnið að gerð stuttra heimildar-
mynda með viðtölum við listamenn og
sýningarstjóra þeirra sýninga sem nú
eru í gangi í safninu, „Sögur úr Safna-
safni“ og „Lífangar.“ Þau á safninu telja
mikilvægt að manneskjan þrói með sér
skilning á eigin efnislega umhverfi til
að teljast hæf í leik og starfi. Í grein
sem birtist þann fyrsta desember
2008 í Netlu, veftímariti um uppeldi
og menntun, eftir Guðrúnu Helga-
dóttir segir:
„Fullyrt er að við lifum á tímum þar
sem sjónrænt áreiti er meira en nokkru
sinni fyrr, að myndmálið sé æ mikil-
vægara, að hið sjónræna og myndlæsi
sé jafnvel að verða öðru læsi mikil-
vægara. Þessi viðhorf þróuðust á sama
tíma og segja má að vestræn samfélög
að minnsta kosti séu að leggja meiri
áherslu á menningu. Menning er að
verða stór atvinnugrein og fræðimenn,
s.s. innan félagsfræði, mannfræði, við-
skiptafræði og fjölmiðlafræði, eru að
snúa sér meira að því að skoða við-
fangsefni sín sem menningarfræði.“
Tónleikum Ásgeirs
Trausta og fleiri streymt
úr Hljómahöll og
popppunktur í Rokksafni
Í Hljómahöll og Rokksafni Íslands
eru ýmsir tónleikar og viðburðir í
undirbúningi að sögn Tómasar Yo-
ung framkvæmdastjóra. Í þessari viku
verður stórviðburður þegar tónleikum
með Ásgeiri Trausta verður streymt úr
Stapa á fimmtudag kl. 20 en eins og
flestir vita hefur Ásgeir Trausti verið
á tónleikaferðum erlendis um langt
skeið. Í Rokksafninu verður einnig
skemmtilegur viðburður á föstudag
þegar Dr. Gunni mætir á svæðið og
verður með Popppunkt í safninu. Að
sögn Tómasar eru fleiri spennandi við-
burðir í undirbúningi og hvetur hann
alla til að fylgjast vel með.
Skessan vill fá myndir
af börnunum
Að lokum má geta þess að Skessan
í hellinum fer ekki varhluta af samko-
mubanni og hún vill leggja sitt af
mörkum til að stytta smáfólkinu
stundirnar með því að deila daglega
inn á Facebooksíðuna sína hugmyndum
að skemmtilegri afþreyingu fyrir börn
og fjölskyldur og hefði hún einstaklega
gaman af að fá sendar til sín myndir
af krökkum sem eru að leysa Skessu-
verkefnin.
Það er því ljóst að af nægu verður
að taka í menningunni á næstunni og
hvetja þær Þórdís og Guðlaug fólk til
að líka við síður allra þessara stofnana,
kynna sér vikulegar auglýsingar sem
munu birtast og njóta þess sem í boði er.
Menning í Reykjanesbæ í samkomubanni
Miðill er manns gaman – eins og er
Smelltu á
myndskeiðið
til að spila lagið!
Á
sg
ei
r T
ra
us
ti