Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 30

Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 30
30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. — Hvernig ert þú að upplifa ástand- ið í kringum COVID-19? Þetta er auðvita skelfilegt ástand sem er í gangi en fólk er að sýna mikla sam- stöðu og skilning á ástandinu. — Hefurðu áhyggjur? Nei ekki þannig. — Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? Þetta er að hafa mikil áhrif á mitt líf þar sem ég er í einangrun og fjöl- skyldan í sóttkví. — Hvernig eru dagarnir hjá þér núna? Ég reyna að halda mig eins mikið til hlés eins og ég get. Þetta eru langir dagar, ég var meira og minna rúmliggj- andi í 3 daga, en er að hressast núna. — Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu? Ég er frá vinnu vegna veikinda — Ert þú eða þitt fólk í sóttkví? Já, ég er í einangrun og fjölskyldan í sóttkví. Það er ekki gaman, við höfum heitapott sem drengirnir nota mikið og svo erum við með smá heima-gym eins og allir Íslendingar í dag sem konan notar, ég get það ekki ennþá vegna mæði. — Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega? Man það ekki nákvæmlega en kannski svona um miðjan febrúar. — Hvað varð til þess? Maður sá bara hvað þetta var að breiðast hratt út. — Hvernig ert þú að fara varlega? Bara með því að fara eftir því sem almannavarnateymið er búið að vera tala um, halda fjarlægð, þvo og spritta. — Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum? Roslega vel — Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? Að fólk fari eftir því sem er verið að segja og sýni þessu skilning, við erum öll í þessu. — Hvernig finnst þér sveitarfélagið standa sig í þessum málum? Bara vel — Er samkomubannið að hafa áhrif á þig? Nei er í einangrun — Hvernig hagar þú innkaupum í dag? Konan verslar á netinu, svo hafa vinir og ættingjar verið að skilja eftir góða hluti við dyrnar og hlaupa í burtu. — Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi? Úff geri mér ekki grein fyrir því, 2-3 mánuði. — Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innan- lands eða utan? Ég reikna með því að maður byrji á að ferðast innalands og svo sjá hvernig þetta er að þróast. HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK Ég reyna að halda mig eins mikið til hlés eins og ég get. Þetta eru langir dagar, ég var meira og minna rúmliggjandi í 3 daga, en er að hressast núna. JÓN NORÐDAL HAFSTEINSSON Íþróttakennarinn og körfubolta- kappinn Jón smitaðist í golfi Jón Norðdal Hafsteinsson, íþróttakennari í Heiðarskóla í Reykjanesbæ er einn af þeim sem fékk COVID-19 veiruna. Hann smitaðist af félaga sínum en þeir voru saman í golfhermi fjórir saman. Félagi hans hafði smitast af líkamsræktarþjálfara. Jón segir dagana langa og hann hafi verið rúmliggjandi í þrjá daga en sé að hressast. Hann er búinn að vera veikur frá því á mánudag í síðustu viku. „Ég málaði einn vegg í dag en var móður og þreyttur á eftir. Þannig að ég er alls ekki orðinn alveg góðour,“ segir Jón sem gerði garðinn frægan fyrir nokkrum árum í körfuboltanum með meistaraliði Keflavíkur. Páll Ketilsson pket@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.