Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 38

Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 38
38 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. Disconnect er LP Plata frá upprennandi listamanni, Sævari Helga Jóhanns- syni, sem gengur undir listamanns- nafninu S.hel. Hann er Keflvíkingur, sonur Jóhanns Smára Sævarssonar. Platan kemur á óvissutímum, þar sem að sóttkví og takmörkuð samskipti er á allra vörum. Samt sem áður, þá var þessi plata og kjarni hennar ekki sköpuð með þetta í huga, heldur var listamaðurinn S.hel að endurspegla vangaveltur um sjálfið/sjálfsmyndir og hvernig við upplifum þær. Skiptir staður uppruna yfirhöfuð máli? Sem barn flutti hann mikið og leið stundum eins og hann hefði engar rætur, sem leiddi til þess að honum fannst hann vera aftengdur. Árum seinna, eftir að hann kom sér fyrir á Íslandi, áttaði hann sig á jákvæðu hliðunum sem að fylgdu þessari reynslu. Það er til þýskt orðatiltæki sem hljómar svona:„Ich bin Weltbürger: überall zu Hause, überall fremd“ sem í grófri þýðingu er „Ég er heimsborgari, kunnugur all- staðar, ókunnugur allstaðar“. S.hel finnst þetta lýsa sér mjög vel; fæddur í London, uppalin að hluta í Þýskalandi og býr á Ís- landi. Disconnect, sem er gefin út í samstarfi við breska plötu- fyrirtækið Whitelabrecs, kemur í kjölfar sjálfsút- gefinni EP plötu „Lucid“, 2018, og er með píanó í for- grunni. Platan verður gefin út á degi pían- ósins, 28.mars, 88. Dag ársins alveg eins og píanó- ið er með 88 nótur. Margir áhrifavaldar úr píanótónlist höfðu áhrif á sköpun þessara plötu, þ.á.m. kennarar S.hel; tónlistarmaðurinn Mikael Lind, sem einnig mixaði plötuna, píanistar á borð við Sunnu Gunn- laugs og Kjartan Valdemarsson og einnig frá öðrum íslenskum tónskáldum eins og Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir o.s.frv. Nýklassísk tónskáld á borð við Nils Frahm, Arvo Pärt og Max Richter veittu S.hel einnig mikla andagift við tónsköpunina. Disconnect fikrar sig á milli einlægrar og lífrænar píanó verka yfir í granuleruða og hluta-til handahófskennda raf-hljóð- heima vafða strengjum og hljóðgervlum. Brestandi og vönduð augnablik vafra um skynjaða þögn og spennu, meðan stemningin skiptir áreynslulaust yfir í klass- ískari útsetningar. Um listamanninn S.hel og hvað er framundan: Sævar Helgi Jóhannsson, eða S.hel, er að stunda tónsmíðanám í Lista- háskóla Íslands og hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum á ferli sínum. Þar er helst að nefna nýja tónlist sem að hann samdi fyrir uppsetninguna á „Mutter Courage“ e. Bertolt Brecht undir leikstjórn Mörtu Nordal, sem var m.a. sýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri og Kassanum í Þjóðleikhúsinu í fyrra; þar að auki glæsti þessi frumsamda tónlist upphafsatriði Grímunar 2019. S.hel mun koma fram á Iceland Airwaves í ár og er einnig að vinna í nýrri plötu í samstarfi við Mikael Lind sem mun fókusera á „prepared piano“ tækni; þar sem að hlutir eru settir inn í píanóið til þess að fá áhugaverða áferð úr hljóðfærinu. Platan verður tekin upp í Greenhouse Studios og hefur hlotið styrk frá hljóðritunarsjóð Rannís. S.HEL MEÐ DISCONNECT andrea@vf.is Viltu auglýsa í Víkurfréttum?

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.