Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 18
18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa ástand-
ið í kringum COVID-19?
„Það eru skrítnir tímar núna og
án nokkura fordæma. Ég hef starfað
sem leigubílstjóri í nokkur ár og man
varla eftir samfélaginu í eins miklum
hægagír eins og núna. Hrunárin
voru erfið en þó öðruvísi. Mér finnst
persónulega miklu meira frumkvæði
af hendi yfirvalda núna heldur en
í hruninu. Menn búa vissulega af
reynslu og Íslendingar eru ekkert
óvanir krísustjórnun“.
— Hefurðu áhyggjur?
„Já vissulega, fyrst og fremst hef
ég áhyggjur af vinnu og því að fram-
fleyta fjölskyldunni, Það er gömul
saga og ný með þá sem starfa sjálf-
stætt. En nú skilst mér að okkur
verið einnig gert kleift að sækja um
bætur til Vinnumalastofnunar. En
áhyggjur af flensunni eru vissulega
líka til staðar. En ég hef reynt að til-
einka mér að takast á raunverulegan
vanda en ekki búa hann til“.
— Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
„COVID-19 fór í raun að hafa
áhrif á mitt líf og mín störf strax
upp úr síðustu mánaðarmótum.
Leigubílastöðin Hreyfill, sem ég
starfa á, er með gríðarstór verkefni
fyrir Reykjavíkurborg, þar með
talinn akstur með aldraða og fatlað
fólk. Þegar þessi hópur var settur í
einangrun um síðustu mánaðarmót
snarminnkað í vinnan okkar. Enn-
fremur fór maður fljótlega að finna
fyrir því hversu margir unnu heima.
Svo fóru ferðamenn að hverfa úr
landi, og fáir sem komu og nú er svo
komið að ég kalla það ekki að fara
að vinna heldur í dagdvölina. Þetta
er seinnilega komið niður í 20-30%
af því sem áður var. Og þá er ég að
tala um góðu dagana. En vissulega
eru að detta inn verkefni. Meira um
skutl með mat og nauðsynjar heim
að dyrum“.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
„Ekki svo mikið nema sjá til þess
að iPad-inn sé fullhlaðin. Gjörsam-
lega bráðnauðsynlegt tæki þega mikil
bið er. Og vissulega forðast maður
margmenni og situr því meira í
bílnum. Annars er ég venjulega ár-
risull en hef leyft mér að sofa lengur
enda er enginn morgunvinna“.
— Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega?
„Ég fylgist með fréttum og fylgdist
vel fréttum frá Kína. Þegar smit barst
til Evrópu vissi maður að það yrði
stutt í að þetta bærist til Íslands. En
það gerðist þó mun hraðar en ég
ímyndaði mér“.
— Hvað varð til þess?
„Þegar Íslendingar fóru að koma
smitaðir heim úr ferðalagi fór maður
að líta á þetta alvarlegum augum
og gæta mun meiri varúðar í sam-
skiptum“.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
„Handþvottur hvenær sem ég
kem því við. Er svo með handspritt
í bílnum og nota það óspart. Reyni
að takmarka allar snertingar. Nota
svo hanska þurfi ég að aðstoða fólk
með farangur. Er með andlitsmaska í
bílnum en hef ekki notað þá enn“.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
„Mér finnst vel tekið á þessum
málum hjá Almannavörnum og
Landlækni. Skýr sklilaboð og fum-
lausar aðgerðir. Það er líka mikilvægt
að hlusta á lækna sem hafa áratuga
reynslu af sóttvörnum og faralds-
fræði sjúkdóma. Treysti þessu fólki
100%“.
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Hlustum og hlýðum ábendingum
og ráðleggingum fagfólks. Förum
varlega en gleymum ekki að vera til.
Nú er mikilvægast að standa saman.
Standa þétt við bak þeirra sem þurfa
aðstoð. Það er oft sagt um Íslendinga
að þeir standi þétt saman á erfiðum
tímum og það er satt“.
— Finnst þér að sveitarfélagið þitt
gæti gert meira?
„Sýnist það standa sig bara vel“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Get ekki sagt það. Þá ekki nema
vinnulega. En ég læt það ekki á
mig fá. Uppáhaldsstaðurinn minn
er heimilið. Þar hef ég allt sem ég
þarfnast“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„Fer enn í búð en það kann að
breytast“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Á von á því að flensan gangi
yfir að mestu leiti á næstu tveimur
mánuðum. Það er apríl og maí. En
við verðum lengi að ná fullum styrk
og skriðþunga í atvinnulífinu. Þetta
sumar og jafnvel ár er ónýtt í ferða-
þjónustunni. Getum afskrifað það að
mestu leiti. Gætum farið að sjá ferða-
menn næsta vetur. En ferðamenn
koma aftur og Ísland verður enn sem
fyrr vinsæll áfangastaður“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Fyrst um sinn innanlands. En
það eru enginn plön uppi um það.
Höfðum ekki í huga að ferðast utan-
lands næsta sumar. Stefnan var á
fjölskylduferð um næstu jól. Tíminn
leiðir í ljós hvað við gerum“.
— Hvernig eru börnin á heimilun að
upplifa þetta?
„Yngsta dóttir mín er í grunnskóla.
Eðlilega veltir hún þessu fyrir sér. En
það er mikilvægt að ræða við börnin
og útskýra fyrir þeim aðstæður. Ekki
leyna neinu en heldur ekki að magna
upp ótta“.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
Kristján Jóhannsson starfar sem leigubílstjóri og
COVID-19 fór í raun að hafa áhrif á hans líf og störf
strax upp úr síðustu mánaðarmótum. „Leigubílastöðin
Hreyfill, sem ég starfa á, er með gríðarstór verkefni fyrir
Reykjavíkurborg, þar með talinn akstur með aldraða
og fatlað fólk. Þegar þessi hópur var settur í einangrun
um síðustu mánaðarmót snarminnkað í vinnan okkar.
Ennfremur fór maður fljótlega að finna fyrir því hversu
margir unnu heima. Svo fóru ferðamenn að hverfa úr
landi, og fáir sem komu og nú er svo komið að ég kalla
það ekki að fara að vinna heldur í dagdvölina,“ segir
Kristján um ástandið. Hann svaraði nokkrum spurningum
blaðamanns Víkurfrétta.
Vinnan orðin
20-30% af því
sem áður var
Hlustum og hlýðum ábendingum og ráðleggingum fagfólks.
Förum varlega en gleymum ekki að vera til. Nú er mikilvægast
að standa saman. Standa þétt við bak þeirra sem þurfa aðstoð.
Það er oft sagt um Íslendinga að þeir standi þétt saman á
erfiðum tímum og það er satt.
KRISTJÁN JÓHANNSSON