Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 26.03.2020, Blaðsíða 24
24 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. — Hvernig ert þú að upplifa ástand- ið í kringum COVID-19? „Ég hélt að ég myndi nú aldrei lifa svona tíma. Ég upplifi mikla óvissu í kringum mig en á sama tíma finnst mér yndislegt að upplifa þennan mikla samhug og samstöðu sem er í gangi í þjóðfélaginu okkar“. — Hefurðu áhyggjur? „Nei, ég hef ekki áhyggjur og gengur bara nokkuð vel að leiða hugann að öðru – en að því sögðu þá finn ég stundum óþægileg til- finning í maganum sem líklegast mætti flokka sem einhverja tegund af áhyggjum“. — Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? „Einhvern veginn er allt breytt. Börnin læra heima. Maðurinn minn vinnur heima og við reynum að fara sem minnst út af heimilinu. Strákurinn okkar átti að fermast í apríl en því hefur verið frestað fram í ágúst. Svo átti ég að vera fara með alla tengdafjölskylduna til Tenerife um páskana en það verður bara að bíða betri tíma. Núna erum við fjöl- skyldan komin í sjálfskipaða sóttkví í sumarbústaðnum okkar þannig að dagarnir framundan verða mjög rólegir. Ég hef allt til alls til að halda í mína daglegu hreyfingu og nóg af bókum til að lesa“. — Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu? „Ég er svo heppin að vera heima- vinnandi þannig að það er bara meira líf og fjör inná heimilinu þar sem allir eru heima mest allan dag- inn. Þeir fundir sem ég þarf að sækja vegna stjórnarstarfa fara nú að mestu fram í fjarfundarbúnaði“. — Ert þú eða þitt fólk í sóttkví? „Foreldrar mínir eru í sóttkví eftir að hafa verið í sólinni á Kanarí. Þau bera sig vel og við systkinin sjáum um að færa þeim matvöru og sendum þeim reglulega myndir og myndbönd af því sem við erum að bralla“. — Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega? „Ég held að það hafi verið um leið og fyrstu tilfellin greindust hér á landi. Þá fyrst fór þetta að verða raunverulegt. Ég á góðan vin sem býr í Colorado í Bandaríkjunum og um miðjan febrúar sendi hann mér skilaboð og var að hafa áhyggjur af áhrifum Covid á heimsvísu. Ég man að þegar ég svaraði honum þá fannst mér engin ástæða til að hafa miklar áhyggjur. Tveimur vikum seinna greindist svo fyrsta tilfellið hér á landi“. — Hvað varð til þess að þú tókst COVID-19 alvarlega? „Við það að fyrsta tilfellið greindist þá var hættustig almannavarna virkjað og það fyrir mér þýddi ein- faldlega að þetta bæri að taka mjög alvarlega“. — Hvernig ert þú að fara varlega? „Ég hef tileinkað mér aukinn handþvott og geng um með spritt og nota það óspart. Ég er meðvituð um 2m regluna þegar ég þarf að fara á staði þar sem fleira fólk er. Reyni að fara sem minnst og svo núna með því að fara í sjálfskipaða sóttkví“. — Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum? „Mér finnst þau standa sig sjúk- lega vel og ég er þess fullviss að allir sem að málinu koma eru að vinna dag og nótt til að tryggja okkar vel- ferð og að við sem þjóð komumst sem best út úr þessu“. — Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? „Að huga vel að andlegu hliðinni og vera góð við hvort annað. Pössum að setja ekki of mikla orku í að hugsa um það sem við getum ekki haft áhrif á og notum frekar tímann til að gera eitthvað jákvætt og uppbyggi- legt fyrir okkur og fjölskylduna“. — Finnst þér að sveitarfélagið þitt gæti gert meira? „Ég trúi því að allir séu að gera sitt besta en að því sögðu tel ég að mitt sveitarfélag þurfi að koma til móts við fyrirtæki og heimili með lækkun fasteignaskatta. Svo tel ég að það þurfi að huga sérstaklega að þeim sem minna mega sín og treysti því að sveitarfélagið mitt geri allt sem í þeirra valdi stendur til að hlúa að þeim“. — Er samkomubannið að hafa áhrif á þig? „Já það hefur áhrif á svo margan hátt. Eftir að það komu tilmæli um að börn ættu að minnka eins og kostur er umgang við aðra krakka en þá sem eru með þeim í skólahóp þá flæktist lífið töluvert“. — Hvernig hagar þú innkaupum í dag? „Já, við fjölskyldan höfum pantað meira af matvöru á netto.is en áður. Svo pöntuðum við á netinu það sem uppá vantaði til að geta gert æfingarnar okkar heima. Ég nýtti mér frábæra þjónustu hjá Bókasafni Reykjanesbæjar og fékk bókina sem mig hefur lengi langað að lesa heims- enda“. — Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi? „Okkar færustu sérfræðingar tala um að veiran muni ná hámarki um miðjan apríl. Í framhaldi af því held ég að taki við tímabil þar sem við reynum að átta okkur á nýrri heimsmynd og ég held að það geti alveg varað í einhverja mánuði. Þetta verður skrítið sumar“. — Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innan- lands eða utan? „Í dag líður mér þannig að ég muni fara erlendis um leið og það verður í boði en svo þegar á reynir er svo ekkert víst að ég hafi löngun til þess. Við erum með utanlands- ferð planaða um miðjan september sem ég vona að við getum farið í. Ef allt verður með kyrrum kjörum í sumar þá munum við ferðast tölu- vert innanlands, m.a. á fótboltamót, ættarmót og svo renna eitthvað fyrir lax“. — Hvernig eru börnin á heimilinu að upplifa þetta? „Það eru tvö börn á heimilinu, níu og þrettán ára. Mér finnst þau vera ótrúlega dugleg og jákvæð miðað við að þeirra daglega lífi hafi verið snúið á hvolf. Þeim finnst þetta allt mjög skrítið eru ekki alveg að skilja alvar- leika málsins. Ég viðurkenni að við höfum aðeins misst tökin á skjátíma takmörkunum á heimilinu en til að bregðast við því ákváðum við að útbúa starfsáætlun fyrir vikuna þar sem tekinn er frá tími til að stunda nám, daglega hreyfingu, tölvu/síma og svo einhverja sameiginlega af- þreyingu fyrir fjölskylduna saman“. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK Guðný María Jóhannsdóttir segir að við eigum að huga vel að andlegu hliðinni og vera góð við hvort annað. „Pössum að setja ekki of mikla orku í að hugsa um það sem við getum ekki haft áhrif á og notum frekar tímann til að gera eitthvað jákvætt og uppbyggilegt fyrir okkur og fjölskylduna“. Einhvern veginn er allt breytt. Börnin læra heima. Maðurinn minn vinnur heima og við reynum að fara sem minnst út af heimilinu. Strákurinn okkar átti að fermast í apríl en því hefur verið frestað fram í ágúst. Svo átti ég að vera fara með alla tengdafjölskylduna til Tenerife um páskana en það verður bara að bíða betri tíma. GUÐNÝ MARÍA JÓHANNSDÓTTIR Reynum að átta okkur á nýrri heimsmynd

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.