Víkurfréttir - 26.03.2020, Side 30
30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa ástand-
ið í kringum COVID-19?
Þetta er auðvita skelfilegt ástand sem
er í gangi en fólk er að sýna mikla sam-
stöðu og skilning á ástandinu.
— Hefurðu áhyggjur?
Nei ekki þannig.
— Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Þetta er að hafa mikil áhrif á mitt
líf þar sem ég er í einangrun og fjöl-
skyldan í sóttkví.
— Hvernig eru dagarnir hjá þér
núna?
Ég reyna að halda mig eins mikið
til hlés eins og ég get. Þetta eru langir
dagar, ég var meira og minna rúmliggj-
andi í 3 daga, en er að hressast núna.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
Ég er frá vinnu vegna veikinda
— Ert þú eða þitt fólk í sóttkví?
Já, ég er í einangrun og fjölskyldan í
sóttkví. Það er ekki gaman, við höfum
heitapott sem drengirnir nota mikið og
svo erum við með smá heima-gym eins
og allir Íslendingar í dag sem konan
notar, ég get það ekki ennþá vegna
mæði.
— Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega?
Man það ekki nákvæmlega en
kannski svona um miðjan febrúar.
— Hvað varð til þess?
Maður sá bara hvað þetta var að
breiðast hratt út.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
Bara með því að fara eftir því sem
almannavarnateymið er búið að vera
tala um, halda fjarlægð, þvo og spritta.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
Roslega vel
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að fólk fari eftir því sem er verið að
segja og sýni þessu skilning, við erum
öll í þessu.
— Hvernig finnst þér sveitarfélagið
standa sig í þessum málum?
Bara vel
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
Nei er í einangrun
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Konan verslar á netinu, svo hafa vinir
og ættingjar verið að skilja eftir góða
hluti við dyrnar og hlaupa í burtu.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
Úff geri mér ekki grein fyrir því, 2-3
mánuði.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
Ég reikna með því að maður byrji á
að ferðast innalands og svo sjá hvernig
þetta er að þróast.
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
Ég reyna að halda mig eins mikið til hlés
eins og ég get. Þetta eru langir dagar, ég
var meira og minna rúmliggjandi í 3 daga,
en er að hressast núna.
JÓN NORÐDAL HAFSTEINSSON
Íþróttakennarinn og körfubolta-
kappinn Jón smitaðist í golfi
Jón Norðdal Hafsteinsson, íþróttakennari í Heiðarskóla í Reykjanesbæ er einn af þeim sem fékk COVID-19 veiruna. Hann smitaðist af félaga
sínum en þeir voru saman í golfhermi fjórir saman. Félagi hans hafði smitast af líkamsræktarþjálfara. Jón segir dagana langa og hann hafi verið
rúmliggjandi í þrjá daga en sé að hressast. Hann er búinn að vera veikur frá því á mánudag í síðustu viku. „Ég málaði einn vegg í dag en var móður
og þreyttur á eftir. Þannig að ég er alls ekki orðinn alveg góðour,“ segir Jón sem gerði garðinn frægan fyrir nokkrum árum í körfuboltanum með
meistaraliði Keflavíkur.
Páll Ketilsson
pket@vf.is