Víkurfréttir - 28.05.2020, Blaðsíða 44
– Nafn:
Einar Hannesson.
– Fæðingardagur:
30. janúar 1974.
– Fæðingarstaður:
Rigshospitalet í Kaupmannahöfn (en
er samt hundlélegur í dönsku).
– Fjölskylda:
Giftur Maddý Andrésdóttur og við
eigum þrjú börn saman, þau Andreu,
Bjarka Frey og Hlyn Þór.
– Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór?
Vissi ekki hvað mig langaði til að
verða þegar ég yrði stór fyrr en ég
varð stór. Finnst fyrst og fremst
gaman að vinna með fullt af alls
konar fólki.
– Aðaláhugamál:
Ætli körfubolti standi ekki þar upp
úr og að stússast í kringum íþróttir
barnanna í gegnum tíðina. Svo er
hrikalega gaman á skíðum.
– Uppáhaldsvefsíða:
kki.is
– Uppáhalds-app í símanum:
Leggja er geggjað!
– Uppáhaldshlaðvarp:
Kann ekki á svoleiðis.
– Uppáhaldsmatur:
Nauta ribey í 57° með Bearnaise-
sósu.
– Versti matur:
Brauðsúpa og slímugar ostrur.
– Hvað er
best á grillið?
Íslenska fjallalambið
klikkar ekki.
– Uppáhaldsdrykkur?
Ísköld nýmjólk.
– Hvað óttastu:
Að þurfa einhvern tímann að taka
stærðfræðipróf aftur.
– Mottó í lífinu:
Sinna vinum mínum af kostgæfni og
gefa af mér í leik og starfi.
– Hvaða mann eða konu úr
mannkynssögunni myndir þú
vilja hitta?
Maradona af því hann er óútreiknan-
legt ólíkindatól og hörkudansari.
Pottþétt hressandi að vera með
honum í góðu partýi.
– Hvaða bók lastu síðast?
Ítalskir skór eftir Henning Mankell
en er annars mikill aðdáandi Hall-
dórs Laxness.
– Ertu að fylgjast með ein-
hverjum þáttum í sjónvarpinu?
Maður er auðvitað búinn að þurrka
upp Netflix eins og hálft mannkynið.
Þar má nú helst nefna þætti eins og
Kalifat, The Last Dance og Ozark.
– Uppáhaldssjónvarpsefni?
Góðar njósnamyndir geta verið
klassa afþreying.
– Fylgistu með fréttum?
Já, líklega óþarflega mikið.
– Hvað sástu síðast í bíó?
Úff, man það bara ekki svona á
tímum kórónuveirunnar.
– Uppáhaldsíþróttamaður?
Erfitt að nefna ekki Michael Jordan.
Fíla menn með tryllt keppnisskap.
– Uppáhaldsíþróttafélag?
Er grjótharður Keflvíkingur (en
synir mínir segja að ég haldi með
Breiðablik).
– Ertu hjátrúarfullur?
Nei, mjög langt frá því.
– Hvaða tónlist
kemur þér í
gott skap?
Hjálmar tikka í
öll boxin.
– Hvað tón-
list fær þig til
að skipta um
útvarpsstöð?
Leyfi nú flestri tónlist að
slæda en nenni ekki að hlusta á of
mikið pólitískt þras í útvarpinu.
– Hvað hefur þú að
atvinnu?
Er framkvæmdastjóri hjá inn-
flutnings- og þjónustufyrir-
tækinu Fastus ehf.
– Hefur þú þurft að gera
breytingar á starfi þínu vegna
COVID-19?
Já, hef unnið töluvert að heiman
undanfarna mánuði. Fínt í hófi en
ég er mikil félagsvera og þrífst því
töluvert betur innan um margt fólk.
– Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Skrítið, stórfurðulegt – en hef líklega
aldrei verið jafn mikið með börn-
unum mínum sem er stórkostlegt.
– Er bjartsýni fyrir sumrinu?
Já, já, er það ekki bara.
– Hvað á að gera í sumar?
Verður maður ekki að ferðast um
landið fagra. Kannski veiða eitt-
hvað og jafnvel horfa eitthvað á þann
yngsta spila fótbolta.
– Hvert ferðu í sumarfrí?
Alla vega ekki til útlanda þetta
sumarið en annars finnst mér alltaf
næs að liggja á sólarströnd einhvers
staðar við Miðjarðarhafið og þá helst
með Piña Colada í hönd.
– Ef þú fengir gesti utan af
landi sem hafa aldrei skoðað sig
um á Suðurnesjum. Hvert
myndir þú fara með þá
fyrst og hvað myndir
þú helst vilja sýna
þeim?
Náttúran á Suður-
nesjum er falin perla.
Ótrúleg náttúrufyrir-
brigði á litlu svæði sem
alltof fáir þekkja. Geri
töluvert af því að fara með
utanaðkomandi fólk á áhuga-
verða staði svo sem Keili, Þorbjörn,
Garðskaga, Reykjanes og svo mætti
lengi telja.
Pottþétt hressandi
að vera með Maradona
í góðu partýi
Ei
na
r H
an
ne
ss
on
, f
ra
m
kv
æ
m
da
st
jó
ri,
e
r g
rjó
th
ar
ðu
r K
ef
lv
ík
in
gu
r
se
m
v
is
si
e
kk
i h
va
ð
ha
nn
v
ild
i v
er
ða
þ
eg
ar
h
an
n
yr
ði
st
ór
.
Maradona
Hjálmar
Netspj@ll
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
44 // VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR
Fimmtudagur 28. maí 2020 // 22. tbl. // 41. árg.