Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.05.2020, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 28.05.2020, Blaðsíða 10
Hugmyndin kviknaði þegar Jósep Feyen, sem býr í endahúsi Greniteigs, sá færslu á Facebook frá listamanninum JuanPictures þar sem hann óskaði eftir veggjum til að skreyta. Jósep setti sig í samband við listamanninn og úr varð þetta skemmtilega verkefni. „Ég sagðist hafa vegg en spurði hvort hann vissi um einhvern í Keflavík sem tæki svona verk að sér. „Hvað með mig?“ var svarið sem ég fékk til baka,“ segir Jósep og brosir. „Ég hafði ekki búist við að hann myndi nenna að gera sér ferð úr Reykjavík til að taka að sér svona verk en sagði honum endilega að koma með hug- myndir, hann hefði frjálsar hendur til að gera hvað sem er.“ – Hver er hugmyndin á bak við myndina? „Mér fannst góð hugmynd að tengja verkið við íslenska menn- ingu og þjóðsögur. Sagan um íslenska jólaköttinn heillaði mig og því gerði ég þessa mynd af honum að elta barn sem hefur ekki fengið ný föt fyrir jólin. Mér fannst skemmtilegt að nýta þennan stóra vegg til að segja frá þessari séríslensku þjóðsögu,“ svarar JuanPictures. – Hefurðu orðið var við að þetta veki athygli? „Já, fólk hefur verið duglegt að stoppa og taka myndir. Jafnvel verið að staldra við og spyrja út í verkið, hvað maður sé að gera og þess háttar. Svo hefur þetta fengið góðar við- tökur á samfélagsmiðlum, held að það hafi verið komin vel yfir þúsund „like“ og hundrað athugasemdir eins og „geggjað!“ og þess háttar á Facebook og Instagram. Fólk virðist yfir sig hrifið.“ Spænskur vegglistamaður á Íslandi JuanPictures er myndlistamaður sem hóf feril sinn sem vegglista- maður [Graffity Artist] og fór svo í listaháskóla í Alicante á Spáni. „Ég byrjaði sem vegglistamaður en fór svo í listnám og hef nú þekkingu og kunnáttu á flestum sviðum mynd- listarinnar. Götulistin er samt sem áður það sem heillar mig mest, ekki bara það að mála veggi heldur að skapa eitthvað sem hefur þýðingu, lífgar upp á umhverfið og allir geta notið.“ – Hvernig stendur á því að spænskur vegglistamaður endar á Íslandi? „Ég er hérna til að mála veggi,“ segir JuanPictures og hlær. „Nei, í alvöru talað þá er erfitt að finna vinnu við hæfi á Spáni. Þú hefur jafnvel arki- tekta og lækna sem vinna á Burger King, það er ekki sú framtíð sem ég vil fyrir mig – þess vegna er ég hér.“ Reykjanesbær hafður með í ráðum „Ég leitaði til Reykjanesbæjar áður en við fórum í þetta,“ segir Jósep. „Fyrst og fremst til að leita eftir afstöðu bæjaryfirvalda í garð svona listaverks, hvort þau settu sig eitt- hvað upp á móti því eða hvort ég fengi leyfi fyrir að ráðast í það. Þessu erindi mínu var mjög vel tekið hjá bænum, þeim fannst hugmyndin frábær og úr varð að Reykjanesbær kom að verkinu með okkur ásamt fleirum. Nú er myndin komin á gaflinn og mér finnst hún koma vel út.“ í Keflavík Vegfarendur hafa líklega veitt athygli stóru vegglista­ verki sem nú prýðir húsgafl á mótum Hringbrautar og Vesturbrautar í Keflavík. Víkur­ fréttum lá forvitni á að vita hver væri tilurð þess og blaðamaður settist niður með húsráðanda og listamanni verksins. JuanPictures, Fahim Doviido, sem aðstoðaði við verkið, og Jósep Feyen. VF-mynd: JPK Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar: Reykjanesbær fagnar frumkvæði „Eigandi Greniteigs 53 hafði samband og spurði hvort við hann fengi leyfi til að setja þessa mynd á gaflinn á húsinu hjá sér og hvort Reykjanesbær vildi taka þátt í því. Við á umhverfissviði höfum verið að leita að svona verkefnum og því kom þessi fyrirspurn á góðum tíma. Hús- eigandinn sendi okkur skissu af myndinni og upplýsingar um listamanninn sem ætlaði í þetta verkefni. Ég og Guðlaug Lewis, verkefnastjóri menningarmála, hittum svo eigendann og lista- manninn á staðnum þar sem farið var yfir verklagið. Svo höfðum við samband við Slippfélagið á Hafnargötu sem var tilbúið að taka þátt í verkinu og veita okkur veglegan afslátt af málningunni. Við fögnum því þegar íbúar og fyrirtæki hafa frumkvæði að því að gera Reykjanesbæ skemmti- legri og við munum styðja við svona verkefni í framtíðinni, sem stendur eru nokkrir veggir og þar með verkefni til skoðunar hjá okkur.“ Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Smelltu á merkið til að sjá fleiri verk eftir JuanPictures. 10 // VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR Fimmtudagur 28. maí 2020 // 22. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.