Víkurfréttir - 28.05.2020, Page 10
Hugmyndin kviknaði þegar Jósep Feyen, sem býr í endahúsi Greniteigs, sá
færslu á Facebook frá listamanninum JuanPictures þar sem hann óskaði
eftir veggjum til að skreyta. Jósep setti sig í samband við listamanninn
og úr varð þetta skemmtilega verkefni.
„Ég sagðist hafa vegg en spurði hvort
hann vissi um einhvern í Keflavík
sem tæki svona verk að sér. „Hvað
með mig?“ var svarið sem ég fékk
til baka,“ segir Jósep og brosir. „Ég
hafði ekki búist við að hann myndi
nenna að gera sér ferð úr Reykjavík
til að taka að sér svona verk en sagði
honum endilega að koma með hug-
myndir, hann hefði frjálsar hendur
til að gera hvað sem er.“
– Hver er hugmyndin á bak
við myndina?
„Mér fannst góð hugmynd að
tengja verkið við íslenska menn-
ingu og þjóðsögur. Sagan um
íslenska jólaköttinn heillaði mig
og því gerði ég þessa mynd af
honum að elta barn sem hefur
ekki fengið ný föt fyrir jólin.
Mér fannst skemmtilegt að nýta
þennan stóra vegg til að segja frá
þessari séríslensku þjóðsögu,“
svarar JuanPictures.
– Hefurðu orðið var við að þetta
veki athygli?
„Já, fólk hefur verið duglegt að
stoppa og taka myndir. Jafnvel verið
að staldra við og spyrja út í verkið,
hvað maður sé að gera og þess háttar.
Svo hefur þetta fengið góðar við-
tökur á samfélagsmiðlum, held að
það hafi verið komin vel yfir þúsund
„like“ og hundrað athugasemdir
eins og „geggjað!“ og þess háttar á
Facebook og Instagram. Fólk virðist
yfir sig hrifið.“
Spænskur vegglistamaður
á Íslandi
JuanPictures er myndlistamaður
sem hóf feril sinn sem vegglista-
maður [Graffity Artist] og fór svo í
listaháskóla í Alicante á Spáni. „Ég
byrjaði sem vegglistamaður en fór
svo í listnám og hef nú þekkingu og
kunnáttu á flestum sviðum mynd-
listarinnar. Götulistin er samt sem
áður það sem heillar mig mest, ekki
bara það að mála veggi heldur að
skapa eitthvað sem hefur þýðingu,
lífgar upp á umhverfið og allir geta
notið.“
– Hvernig stendur á því að
spænskur vegglistamaður
endar á Íslandi?
„Ég er hérna til að mála veggi,“ segir
JuanPictures og hlær. „Nei, í alvöru
talað þá er erfitt að finna vinnu við
hæfi á Spáni. Þú hefur jafnvel arki-
tekta og lækna sem vinna á Burger
King, það er ekki sú framtíð sem ég
vil fyrir mig – þess vegna er ég hér.“
Reykjanesbær hafður
með í ráðum
„Ég leitaði til Reykjanesbæjar áður
en við fórum í þetta,“ segir Jósep.
„Fyrst og fremst til að leita eftir
afstöðu bæjaryfirvalda í garð svona
listaverks, hvort þau settu sig eitt-
hvað upp á móti því eða hvort ég
fengi leyfi fyrir að ráðast í það. Þessu
erindi mínu var mjög vel tekið hjá
bænum, þeim fannst hugmyndin
frábær og úr varð að Reykjanesbær
kom að verkinu með okkur ásamt
fleirum. Nú er myndin komin á
gaflinn og mér finnst hún koma vel
út.“
í Keflavík
Vegfarendur hafa líklega
veitt athygli stóru vegglista
verki sem nú prýðir húsgafl
á mótum Hringbrautar og
Vesturbrautar í Keflavík. Víkur
fréttum lá forvitni á að vita hver
væri tilurð þess og blaðamaður
settist niður með húsráðanda
og listamanni verksins.
JuanPictures, Fahim Doviido, sem aðstoðaði
við verkið, og Jósep Feyen. VF-mynd: JPK
Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis-
og skipulagssviðs Reykjanesbæjar:
Reykjanesbær fagnar frumkvæði
„Eigandi Greniteigs 53 hafði
samband og spurði hvort við
hann fengi leyfi til að setja þessa
mynd á gaflinn á húsinu hjá sér
og hvort Reykjanesbær vildi taka
þátt í því. Við á umhverfissviði
höfum verið að leita að svona
verkefnum og því kom þessi
fyrirspurn á góðum tíma. Hús-
eigandinn sendi okkur skissu af
myndinni og upplýsingar um
listamanninn sem ætlaði í þetta
verkefni. Ég og Guðlaug Lewis,
verkefnastjóri menningarmála,
hittum svo eigendann og lista-
manninn á staðnum þar sem farið
var yfir verklagið. Svo höfðum
við samband við Slippfélagið á
Hafnargötu sem var tilbúið að
taka þátt í verkinu og veita okkur
veglegan afslátt af málningunni.
Við fögnum því þegar íbúar og
fyrirtæki hafa frumkvæði að því
að gera Reykjanesbæ skemmti-
legri og við munum styðja við
svona verkefni í framtíðinni,
sem stendur eru nokkrir veggir
og þar með verkefni til skoðunar
hjá okkur.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Smelltu á merkið
til að sjá fleiri verk
eftir JuanPictures.
10 // VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR
Fimmtudagur 28. maí 2020 // 22. tbl. // 41. árg.