Mosfellingur - 30.01.2020, Blaðsíða 17
Rauði krossinn auglýsir eftir karlmönnum.
Kynningarfundur á verkefninu Karlar í skúrum Mosfellsbæ
verður þriðjudaginn 4. febrúar næstkomandi kl. 16:00
í Þverholti 7 í húsnæði Rauða krossins í Mosfellsbæ.
áhugasömum karlmönnum til þess að
hefja þetta verkefni í Mosfellsbæ.
Karlar í skúrum er verkefni sem byrjaði
fyrir tæplega tuttugu árum í Ástralíu,
undir nafninu Men in Sheds.
Áhugasamir hafið samband við Hörð Sturluson í síma: 694-1281 og 570-4220.
Getið líka sent tölvupóst á hordur@redcross.is eða mætt á fundinn. Kaffi og meðlæti í boði.
Karlar
í skúrum
Allstaðar hefur þetta verkefni gengið
einstaklega vel. Í dag eru til dæmis um
420 „skúrar“ bara á Írlandi. Í dag eru þrír
skúrar starfræktir á Íslandi, í Hafnarfirði,
í Breiðholti og í Vesturbyggð.
Karlar í skúrum er opið fyrir alla karlmenn
og gefur karlmönnum stað og stund
til að hittast, spjalla og vinna að ýmsum
sameiginlegum verkefnum sem þeir
sjálfir ákveða. Rauði krossinn leitar að
Viljayfirlýsingu um byggingu þjónustu-
íbúða fyrir eldri borgara við Bjarkarholt í
Mosfellsbæ.
Mosfellsbær hefur skrifað undir viljayf-
irlýsingu ásamt Eir öryggisíbúðum, Arion
banka og Ásgeiri Erni Hlöðverssyni fjárfesti
og ráðgjafa fyrir hönd væntanlegs eiganda
og framkvæmdaaðila óstofnaðs eignar-
haldsfélags um þróun og uppbyggingu
íbúðar- og þjónustuhúsnæðis fyrir eldri
borgara við Bjarkarholt.
Byggingarreiturinn er sunnan við nú-
verandi öryggisíbúðir Eirar. Unnið er að
kaupum á lóðunum sem um ræðir og nýju
deiliskipulagi þar sem núverandi skipulag
gerir ráð fyrir hefðbundinni íbúðarbyggð.
Íbúðirnar verða ýmist leigðar eða seldur
íbúðaréttur og verður öll þjónusta í samráði
við Eir og sambærileg þeirri þjónustu sem
er í dag.
Fjöldi íbúða sem fyrirhugað er að reisa
ræðst af þeirri vinnu sem fer fram í þróun
og skipulagi á verkefninu. Stefnt er að
því að fyrsta áfanga framkvæmda ljúki að
þremur árum liðnum.
Mosfellsbæ
Opið hús
samfylkingin í Mosfellsbæ verður með
opið hús í Þverholti 3 laugardaginn
8. febrúar milli kl. 11:00 og 12:30.
Kaffi og með því. Gestur á opnu húsi
verður Ágúst Ólafur Ágústsson
alþingismaður Samfylkingarinnar.
Allir velkomnir í skemmtilegt spjall.
Þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara • Nýtt deiliskipulag
Vilja byggja þjónustu-
íbúðir í Bjarkarholti
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Mosfellsbær hefur tekið í gagnið nýjan ráðningarvef.
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum
má sjá og sækja um á nýjum ráðningarvef:
www.mos.is/storf
Laus störf í Mosfellsbæ
www.mosfellingur.is - 17
Ármann Andri Einarsson fulltrúi Arion banka, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Sigurður
Rúnar Sigurjónsson forstjóri Eirar, Ásgeir Örn Hlöðversson fjárfestir og Guðjón Magnússon arkitekt.