Spássían - 2010, Síða 8

Spássían - 2010, Síða 8
 8 virðast vera og erfitt að ráða í hvað hefur merkingu og hvað ekki. Tískudauðadæmd Píslarvottar án hæfileika kallast á við Blómin frá Maó á ýmsan hátt. Eitt meginviðfangsefni terroristasamtakanna, fyrir utan að finna sér málstað, er að reyna að finna nafn á samtökin. Það tekst aldrei og reyndar ríkir engin sátt um það hvort samtökin þurfi nafn eða nokkurs konar ímynd þótt markaðssamfélagið krefjist þess. Nafngiftir koma einnig við sögu í Blómunum frá Maó: En af hverju ekki Ösk m-l, Öreiga-sam- tökin, Kínakommar, spurði ég, það hljómar þó eins og íslenska og gæti verið fyrri hlutinn af sögninni að öskra eins og fólk gerir þegar það mótmælir. Formanninum fannst þessi hugmynd satt að segja gjörsamlega út í hött og afar barnaleg. En hvað segiði þá um pé fyrir Pekingendur, stakk Gauti upp á. (37) Þótt nafnaágreiningurinn verði aldrei meira en málamyndaandóf gegn yfirvaldi Asparhreyfingarinnar felst í honum kaldhæðin gagnrýni á smáborgaralega ímyndarsköpunina sem liggur í slíkum nafngiftum. Að auki vekur hann upp óvelkomna tengingu við trúarsamtök: Hún sagðist hafa heyrt ávæning af umræðunni um péið og spurði hvort ekki væri best að péið stæði fyrir pílagrímar, því öll værum við pílagrímar Krists á ferð til fyrirheitna landsins sem væri á himnum. Ómar varð hálfskömmustulegur og minnti mömmu sína á að þetta væru pólitísk samtök en ekki trúarsamtök, en hún hafði um langt skeið verið í Vottum Jehóva. (38) Hæfileikalausu píslarvottarnir falla ekki í gryfju tilbeiðslunnar eins og maóistarnir. Segja má að kaldhæðni einkenni bæði lífsviðhorf þeirra og örlög. Samfélagið hefur barið niður drauma þeirra og þau eru ofurmeðvituð um það hversu gegnumsýrð þau eru af hugmyndafræði kapítalísks neyslusamfélags, án þess þó að það breyti nokkru um lífsstíl þeirra. Yfir öllu hangir fullvissan um að hvað sem þau taki sér fyrir hendur verði það „ekkert sem breytir heiminum“ (222). Þau eru „helvítis tískudauðadæmd, félagsdauðadæmd, hugsjónadauðadæmd, tilgangsdauðadæmd, sálardauðadæmd, bara fokkings heiladauðadæmd“ (125) . Útsaumaður Fönix Píslarvottarnir eru fastir og innilokaðir í sínum eigin persónulega harmleik. Þótt einn þeirra eigi foreldra sem prófuðu kommúnulíf á sínum tíma eru þessi ungmenni algjörlega áhugalaus um fortíðina og velta því ekkert frekar fyrir sér af hverju sú tilraun gekk ekki upp. Þau eru reyndar jafnáhugalaus um nútíðina, þ.e.a.s. það sem snertir þau beint, nánasta umhverfi sitt. Það eina sem virðist kveikja hjá þeim óljósan áhuga eru fjarlægar hetjur á borð við Che Guevara, sem fyrir löngu er orðinn söluvarningur á stuttermabolum líkt og Maó. Og á meðan búsáhaldabylting vekur nýja von á Íslandi æða þau til Palestínu, á staðinn þar sem allar hugsjónir hafa fyrir löngu drukknað í blóðugum hversdeginum. Stærra samhengi lokar þau aðeins enn frekar inni í veröld tilgangslauss ofbeldis. Undir lok Blómanna frá Maó situr Bogga og saumar út fuglinn Fönix á meðan hún horfir á fréttirnar. Hið heimilislega og persónulega rennur saman við það pólitíska en togstreitan þar á milli er eitt af viðfangsefnum bókarinnar. Það eru svo sem engin ný tíðindi að hugsjónamaðurinn sem vill bjarga heiminum gleymir oft sínum nánustu og að hið persónulega vill flækjast fyrir þegar kemur að því að lifa samkvæmt hugsjónunum. Þegar Sigurborg bjó í kommúnunni reyndi hreyfingin sífellt að stýra einkalífi hennar sem gerði það að verkum að hún spyrnti á móti. Hið persónulega og hið pólitíska, Bogga og Sigurborg, urðu tveir ósættanlegir pólar. Í útsaumnum undir lokin má þó greina þá hugmynd að innan veggja heimilanna, á sviði hins persónulega, geti sprottið öðruvísi bylting úr ösku hinna gömlu. Að byltingarvopnin úr pottaskápnum heima bíti betur en önnur. Auður Aðalsteinsdóttir

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.