Spássían - 2010, Blaðsíða 11

Spássían - 2010, Blaðsíða 11
11 Hvers vegna skvísubókmenntir? Ásta Gísladóttir bækur Einu sinni voru til ástarsögur. Fyrir jólin komu út fallega innbundnar ástarskáldsögur eftir Barböru Cartland, Theresu Charles og Snjólaugu Bragadóttur í tonnavís og fólk, þó aðallega konur, neytti af stakri ánægju. Á meðan voru karlarnir (og einhverjar konur) í hasarbókum Alistairs McLean og allir sáttir með sitt. En kalda stríðinu lauk og Bridget Jones lenti í tilvistarkreppu og skyndilega leit ástar- og hasarlandslagið allt öðruvísi út. Nú lesa allir, konur og karlar, sögulega glæpareyfara og að ungum konum er otað „chick-lit“. Skvísubækur kallast þær á íslensku og eiga að hitta nútímakonuna í hjartastað. Eins og hjá formóður þeirra, Bridget, hefst flækjan gjarnan á upplausn og sundrung í lífi hinnar ungu konu – vinnan horfin, einkalífið blekking ein og sjálfsmyndin í molum. Við tekur uppbygging þar sem djúp sjálfsskoðun ungu konunnar á lífi sínu og fólkinu sem hún umgengst ásamt óvæntum tækifærum í vinnu og einkalífi koma ástandinu í eðlilegt horf áður en yfir lýkur. Svona er skvísubókmenntaformúlan í grófum dráttum. Nútímakonan er með allt niðrum sig en með smá áræðni, heppni og rétta manninn á hliðarlínunni má finna hamingjuna í lokin. Þetta er nýtanleg formúla því hún virkar. Nútímakonan hefur fyrir löngu komist að því að hún er ekki prinsessa í dulargervi og er í staðinn afskaplega þakklát að fá staðfestingu á því að til eru fleiri sem standa sig jafn illa, ef ekki verr, í væntingakapphlaupinu. En er þá raunverulegur munur á skvísubókmenntum og ástarsögum? Spássían hafði samband við Dagnýju Kristjánsdóttur, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og lagði fyrir hana þessa spurningu. „Munurinn á hefðbundnum skvísubók- menntum og ástarsögum er sá að ástar- sögur fjalla um ást tveggja einstaklinga sem endar á farsælan hátt. Þær enda alltaf vel en það gera skvísubækurnar ekkert endilega. Eitt dæmi er Makalaus eftir Þorbjörgu Marinósdóttur sem kom út núna í vor. En þótt hlutirnir gangi ekki eins og þær hefðu viljað eru konurnar í skvísubókunum ólæknandi optimistar sem trúa að einhvers staðar sé maðurinn sem þeim er ætlaður. Þær gera miklar kröfur en læra í gegnum frásögnina að horfa á veruleikann en ekki drauminn. Draumar eru fínir en þeir geta orðið að þráhyggju. Svo eru þær gjarnan fyndnar. Ólíkt ástarsögum sem eru alvarlegar og tilfinningasamar halda skvísubækurnar írónískri fjarlægð.“ Þetta má vissulega sjá í Sítrónum og saffran sem gerir töluvert meira úr tilraunum söguhetjunnar til að ná árangri í starfi og gera upp fortíðina heldur en sjálfri ástarsögunni sem mallar rólega á hliðarlínunni. En er þá eitthvað selt af hefðbundnum ástarsögum í dag? Dagný bendir á Ásútgáfuna á Akureyri sem gefur út pakka með fimm ástarsögum í hverjum mánuði í mörg þúsund eintökum. Hún segir þar mikið þýtt af Harlequin ástarsögum og þetta vera stóran iðnað en margir af höfundunum eru bókmenntafræðingar. Skvísubækurnar séu ekki hluti af þessum iðnaði þótt reynt hafi verið að innlima þær því flottustu höfundarnir hafi aðgang að öðrum og virðulegri markaði. Dagný skrifaði grein í Ritið í febrúar 2002 sem hét „Ljúft er að láta sig dreyma“ og fjallaði um þetta efni. Þar er farið yfir fræðileg skrif síðustu áratuga um ástarsögur og leitað svara við spurningunni hvers vegna konur hafi þörf fyrir að lesa slíkar sögur. Dagný segir hins vegar í viðtalinu að karlar séu alveg jafn hrifnir af ástarsögum og konur. Og í vissum ríkjum í Afríku, þar sem klám er bannað, liggi karlar í Harlequin sögunum og drekki í sig krassandi lýsingarnar. Aðdráttarafl fantasíunnar sem bæði ástarsögur og skvísubókmenntir bjóða upp á ætti því ekki að vera vanmetið. Eftir því sem báðar greinar þróast og betri skilningur á eðli fantasíunnar myndast verður til skýrari mynd af því hvaða þrá er í raun verið að uppfylla. Jafnt menningarlega sem sálfræðilega.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.