Spássían - 2010, Page 14

Spássían - 2010, Page 14
 14 Á litlu sviði, fyrir framan hóp af fólki, stendur venjuleg ung kona með dagbók. Hún er að segja sögu sína og velta því fyrir sér hvernig hún geti hætt að vera alltaf svona venjuleg. Hvað sem það kostar. Dagbók Önnu Knúts – helförin mín er uppi- standssýning eftir Önnu Knútsdóttur og Gunnar Björn Guðmundsson sem jafnframt leikstýrir henni. Gunnar segir í viðtali við Spássíuna að þessi sýning hafi verið í fæðingu í þrjú ár: „Hún var tilbúin fyrir tveimur árum en við vorum alltaf að fá vinnu einhvers staðar, stundum úti á landi, og því var sýningin unnin til hliðar þegar tími gafst.“ Loksins þvinguðu þau sig á svið síðasta vetur og voru 6 sýningar á Café Rosenberg nú í vor svo og 5 sýningar í júní á ýmsum stöðum á landsbyggðinni, við frábærar viðtökur. Gunnar segir að sýningin brúi bilið milli leikhúss og uppistands. Handritið er djarft og afdráttarlaust og var unnið upp úr dagbókum Önnu og vinkvenna hennar en á sýningum er hún líka að spila á salinn. Fyrst og fremst er hún að segja eigin, kunnuglegu sögu. „Sýningin fjallar um það hversu ógeðslega venjuleg henni fannst hún vera og hversu óþolandi og óásættanlegt það var. Því fór hún að prófa eitt og annað til að vera óvenjulegri, t.d. eiturlyf og lystarstol.“ Verst af öllu var að vera venjuleg og segir Gunnar það vera vandamál sem flestir geti þekkt. Anna Knútsdóttir útskrifaðist úr Leik- listarskóla Íslands 2007 og hefur birst reglulega í Stundinni okkar í vetur sem hin kraftmikla Fransína mús. Gunnar Björn hefur leikstýrt bæði leikritum og kvikmyndum um árabil, m.a. Astrópíu. Saman stóðu þau á bak við síðasta Áramótaskaup sem Gunnar leikstýrði einnig. Þegar þetta er skrifað er Anna nýkomin heim úr stuttu leikferðalagi en Gunnar segir að viðtökurnar hafi verið það góðar að áformað sé að fara í annað ferðalag nú í sumar. Anna er vön að slá tvær flugur í einu höggi á ferðum sínum um landið og halda á daginn fría barnasýningu í gervi Fransínu músar. „Barnasýning á daginn,“ segir Gunnar og hlær, „klámsýning á kvöldin.“ Verst að vera venjuleg Leitin að sérstæðunni Á sumarsíðdegi þyrpast barnafjölskyldur í lítið skógarrjóður og koma sér fyrir á teppum eða fataplöggum. Jafnvel fjörugustu prakkararnir sitja grafkyrrir og fylgjast með af fullri athygli þegar ævintýrapersónur stilla sér upp milli trjánna og hefja leik sinn. Það er komið að enn einni barnasýningunni hjá Leikhópnum Lottu. Þótt Lotta setji upp nýja sýningu á hverju ári eiga allar sýningarnar það sameiginlegt að sækja í ævintýraheima og að hópurinn nýtir sér náttúrulegt umhverfið sem hluta af leikverkinu. Dæmi um það er samtal Öskubusku við fuglana í skóginum sem stóðu sig með prýði í sínu hlutverki. Lotta hefur m.a. sett upp Dýrin í Hálsaskógi og Galdrakarlinn í Oz. Í fyrra fór hún hins vegar þá leið að sjóða saman leikverk úr mörgum ævintýrum undir yfirskriftinni Rauðhetta. Í ár fer hópurinn sömu leið. Sýningin heitir Hans klaufi en efniviðurinn er sóttur í fjölmörg ævintýri. Fyrir vikið verður söguþráðurinn nokkuð margþættur en megináhersla lögð á innri rökvísi ævintýra. Þetta hafa höfundar á borð við Terry Pratchett gert með afburðaárangri. Hér vantaði þó upp á úrvinnsluna til að verkið væri nógu bitastætt fyrir eldri áhorfendur. Til dæmis hefði mátt taka kynjahlutverkin til skoðunar. Nánd leikara við áhorfendur á væntanlega sinn þátt í því að börn lifa sig svo sterkt inn í leiksýningar Lottu. Leikhópurinn gætir þess jafnframt að skemmta foreldrum ekki síður en börnum svo enginn fer fýldur heim. Þetta árið var atburðarásin stundum full flókin fyrir yngri áhorfendur. Það breytir því þó ekki að falleg náttúran, fjörugur leikurinn og nándin við leikarana gera sýninguna að einni skemmtilegustu leikhúsupplifun sem í boði er fyrir börn á Íslandi. Leikhópurinn Lotta verður á ferð um landið í sumar. Dagskrána má finna á vefsíðunni http://leikhopurinnlotta.is. Öskubuska mætir Hans klaufa Söguþráðurinn er að miklu leyti fenginn úr Öskubusku þar sem ljótu systurnar halda uppi fjörinu. Klaufinn og draumaprinsinn í froskgervinu mynda fallegt tvíeyki sem jafnast á við Batman og Robin eða Sancho Pancha og Don Kíkóta. Ekki er þó fullkomlega ljóst hvor er kómíska hjálparhellan og hver er aðalhetjan. Alvöru prinsessa fundin. Söngur, dans og gleði í lokin að góðra ævintýra sið.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.