Spássían - 2010, Blaðsíða 16

Spássían - 2010, Blaðsíða 16
 16 Í ágúst verður haldin leiklistarhátíð á Akureyri. Hátíðin er haldin á vegum North European Amateur Theatre Alliance (NEATA) en aðilar að því eru samtök áhugaleikfélaga á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum. Sambærilegar hátíðir hafa verið haldnar annað hvert ár frá stofnun samtakanna árið 1998 og hafa valdið straumhvörfum í leiklistarsamstarfi á milli þessara þjóða. Hátíðin á Akureyri er haldin undir yfirskriftinni „Af hjartans lyst“ eða Art of the Heart og verður haldin í Hofi, hinu nýja menningarhúsi Akureyringa, 10. - 15. ágúst. Á hátíðinni verða að þessu sinni ellefu leiksýningar, þrjár íslenskar og sýningar frá aðildarlöndum NEATA auk gestasýninga frá Rúmeníu og Frakklandi. Gagnrýnifundir þar sem þátttakendum gefst kostur á að ræða sýningarnar verða haldnir daglega. Umræðurnar leiða gagnrýnendur hátíðarinnar, Þorgeir Tryggvason, fyrrverandi leikhúsgagnrýnandi Morgunblaðsins, og Danute Vaigauskaite, doktor í leikhúsfræðum og sviðstjóri leiklistardeildar í listaháskóla- num í Klaipeida í Litháen, auk þess sem gestagagnrýnandi verður á hverjum fundi. Einnig verða leiksmiðjur starfrækar á hátíðinni undir stjórn Ágústu Skúladóttur og Rúnars Guðbrandssonar sem einnig stýrir atriði við opnunarathöfn. Bernd Ogrodnik mun einnig halda fyrirlestur um brúðuleikhús. Alþjóðatunga leikhússins Sýningar hátíða NEATA eru alla jafna fluttar á upprunatungumálum, hvorki textaðar né þýddar. Hins vegar er ítarlegum útdráttum dreift fyrir sýningar. Eitt af því sem reynslan af þessum hátíðum hefur leitt í ljós er að leiksýningar á framandi tungumáli skiljast betur en ætla mætti. Tjáningin skilar sér. Sjónrænir þættir sýninganna skipta meira máli en ella og öll skynjun á listform, sem alla jafna er (að minnsta kosti að hluta) textamiðuð, verður að miklu meira leyti sjónræn og hljóðræn. Listræn hönnun sýninganna fær aukið vægi. Þó er alls ekki átt við að leikmynd og hljóðmynd þurfi að útskýra efni sýningarinnar og/eða styðja við framvindu meira en gengur og gerist í leikhúsi heldur eykst vægi hefbundinnar sjónrænnar og hljóðrænnar hönnunar í viðtökum áhorf- andans sem ekki skilur tungumálið. Enda hafa sýningarnar alla jafna upphaflega verið settar upp til sýninga í þeirra heimalandi, en eru alls ekki sérhannaðar fyrir leiklistarhátíðir að öðru leyti en því að sumar eru styttar til að standast tímatakmarkanir sem stundum eru settar. Einnig má margt skilja af hrynjandi og áferð tungumálsins þó áhorfandi skilji ekki textann sjálfan. Hljómfegurð tungumálanna nýtur sín ennfremur mjög vel við þær aðstæður. Það er einnig áhugavert að sjá að góður leikur og vönduð leikhúsvinna skilar sér alltaf, óháð tungumáli. Vaxtarbroddar Þau tækifæri sem NEATA-hátíðirnar hafa skapað svo hægt sé að upplifa sýnishorn af grasrót leikhúss annarra landa, ræða þau og taka þátt í fjölbreyttum leiksmiðjum og námskeiðum hjá fagmönnum í ýmiss konar leikhúsvinnu, hefur skilað sér í nýrri sýn á vinnuaðferðir og hönnun. Ekki er fjarri lagi að tala um byltingu í sjón- og hljóðrænni hönnun þegar litið er á sýningar þeirra íslensku leikhópa sem mest hafa sótt sambærilegar hátíðir og gjarnan tekið þátt í öðru alþjóðlegu samstarfi í framhaldinu. Oftar en ekki hafa þeim íslensku leikhópum sem sótt hafa hátíðina borist boð á aðrar hátíðir í kjölfar sýninganna og hafa meðlimir leikhópanna þannig fengið tækifæri til að sjá enn fjölbreyttara starf en gerist á hátíðum NEATA, til dæmis á alþjóðlegum leiklistarhátíðum alþjóðlegra samtaka áhuga- leikhús, IATA (International Amateur Theatre Association). Sýningar á hátíðunum hafa spannað vítt svið gegnum tíðina. Allt frá uppsetningum á þekktum verkum kanónunnar yfir í sagnaleikhús, spunaleikhús, götuleikhús og tilraunastarfsemi af ýmsu tagi. Á síðustu hátíð, í Riga í Lettlandi árið 2008, var til dæmis bæði að finna sænska uppsetningu á Fröken Júlíu Strindbergs og færeyska uppsetningu á Óþelló Shakespeares, mörg frumsamin verk og leikgerð á smásögu, götuleikhús og uppistand. Í öllum tilvikum gefa verkin þó innsýn í nýsköpun og grasrótarstarf sem verið er að vinna í áhugaleikhúsi í aðildarlöndum sam- bandsins og víðar. Listræn gæði einstakra sýninga sem komið hafa á hátíðirnar hafa verið umdeild. Þetta heyrir þó til undantekninga. Valnefndir flestra aðildarþjóðanna leitast jafnan við að láta sín framlög til hátíðanna endurspegla það besta og áhugaverðasta sem hefur verið á fjölunum innan áhugaleikhúshreyfingar landsins. Í gegnum sögu hátíðanna hefur þó alla jafna verið ánægjulegast að sjá sýnishorn af vinnu leikhópanna frá löndunum við Eystrasalt. Sýningar sem Eistar, Lettar og Litháar hafa sent á hátíðirnar hafa yfirleitt verið mjög AF HJARTANS LYST Alþjóðleg leiklistarhátíð á Íslandi Úr dansleikgerð litháíska leikhópsins Aglija á sögunni um Rauðhettu á hátíðinni í Eistlandi 2004. Memento Mori, samstarfsverkefni Hugleiks og Leikfélags Kópavogs var framlag Íslands til hátíðarinnar í Færeyjum, 2006. Gestasýning frá rússneska leikhópnum Klinika vakti mikla athygli í Västerås 2002. Úr sýningunni Undir Hamrinum sem sýnd var á leiklistarhátíð NEATA í Viljandi árið 2004.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.