Spássían - 2010, Qupperneq 17

Spássían - 2010, Qupperneq 17
17 Úr sýningu Theatre Atelier frá Eistlandi í Þórshöfn, 2006. fagmannlega unnar. Einnig hafa sýningar frá þessum löndum verið fjölbreyttar að efnisvali sem úrvinnslu. Fagmennskan hefur verið í fyrirrúmi á öllum póstum, og leiklist, tónlist, sjónrænni hönnun og dansi gjarnan blandað saman á nýstárlegan og spennandi hátt. Sá metnaður og eldmóður sem einkennir jafnan sýningar Baltanna hefur óhjákvæmilega smitað út frá sér til annarra leikhópa sem sótt hafa hátíðirnar. Það hefur tíðkast að bjóða til hátíðarinnar gestasýningum frá hinum svæðasambönd- unum í Evrópu, CEC (Central European Committee) og CIFTA (Conseil International des Fédérations de Théâtre Amateur de Culture Latine) en undanfarnar tvær hátíðir hafa gestasýningar ekki séð sér fært að koma. Það sætir því nokkrum tíðindum að á hátíð- inni á Akureyri skuli verða sýningar frá báðum samböndunum, rúmenska stúdentaleikhúsið frá Ludic fyrir hönd CEC og Leikhópurinn L´asse du Coin frá Frakklandi sem gestur frá CIFTA. Það fjölmarga íslenska leikhúsfólk sem hefur sótt þessar hátíðir hefur orðið fyrir miklum áhrifum af að upplifa þessi sýnishorn af því besta af leikhúsvinnu aðildarþjóða NEATA. Hátíðirnar hafa orðið mörgum innblástur og orðið til þess að leikhópar setja markið hærra hvað varðar fagmennsku og fjölbreytni í efnisvali og hvers konar leikhúsvinnu. Það er því mikið fagnaðarefni að fá þessa hátíð hingað til lands og ástæða til að hvetja áhugafólk um leikhús til að láta hana ekki framhjá sér fara. Dagskrá hátíðarinnar Af hjartans lyst á Akureyri, 10. - 15. ágúst 2010 Þriðjudagur 10. ágúst kl. 20.00 Leikfélag Kópavogs sýnir verkið Umbúðalaust eftir Vigdísi Jakobsdóttur og leikhópinn í leikstjórn Vigdísar. Miðvikudagur 11. ágúst kl. 14.00 Leikhópurinn Te-Nord frá Noregi sýnir Shabbana. Söng- og danssýning um stúlkuna Shabbana sem býr ásamt pakistanskri fjölskyldu sinni í Osló. Höfundur er Sonia Mona Din og leikstjóri Mara Acantalicio. kl. 15.00 Druskininkai-leikhúsið frá Litháen sýnir A ´la musicale. Sýningin byggir á verki J. Erlickas, „Afmæli Kólumbusar“. Leikstjóri er Asta Žiurinskienė. kl. 17.00 Stúdentaleikhús Ludic frá Rúmeníu sýnir Poem Irlandez pentru vioara si suflet eða Írskt ljóð fyrir fiðlu og sál eftir John Kendrick. Leikstjóri er Aurel Luca. kl. 20.00 Teater Nea frá Svíþjóð sýnir Gränskontroll. Verkið er tilraunaverkefni með samspili sviðsleiks og myndar sem sýnd er á tjaldi, samið af leikhópnum og leik- stjóri er Erik Nihlgård. Fimmtudagur 12. ágúst kl. 14.00 Leikhópurinn L´asse du Coin frá Frakklandi sýnir Laveurs de Cerveaux eða Heilaþvottamenn. Leik- stjóri er Gilles Grazilly og höfundur Matei Visniec. kl. 16.00 Leikfélag Selfoss sýnir Birtíng eftir Voltaire í leik- gerð Hilmars Jónssonar. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. kl. 20.00 Unglingaleikhópurinn Floppi frá Finnlandi sýnir verkið Louhi ja kultanainen eða Louhi og gullna stúlkan. Verkið byggir á Kalevala sagnabálkinum í leikgerð Pirkko Kurikka. Leikstjóri er Tuire Hindikka. kl. 21.00 Leikhópurinn Auseklis Limbazi frá Lettlandi sýnir verkið After Magritte eftir Tom Stoppard. Leikstjóri er Didzis Jonovs. Föstudagur 13. ágúst kl. 14.00 Danski götulistahópurinn Dunkelfolket sýnir gö- tuleiksýninguna Dunkel Parade í göngugötunni. Verkið er eftir Larry Hunt, Katrine Faber, Kirsten Gitz og leikhópinn og er í leikstjórn Katrine Faber. kl. 16.00 Leikhópurinn Royndin frá Færeyjum sýnir verkið Havgird. Verkið er eftir leikhópinn og leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. kl. 20.00 Freyvangsleikhúsið sýnir verkið Vínland eftir Helga Þórsson. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Nánari upplýsingar er að finna á Leiklistarvefnum leiklist.is. Ókeypis verður inn á allar sýningar hátíðarinnar á meðan húsrúm leyfir. Sýningin Umbúðalaust frá Leikfélagi Kópavogs verður opnunarsýning Art of the Heart, leiklistarhátíðar NEATA á Akureyri í ágúst Leiklistarhátíð NEATA 1998 – NEATA stofnað á leiklistarhátíð NAR (Nordisk Ama- teureaterraad) í Harstad í Noregi í byrjun ágúst. Sýningar frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Rússlandi auk allra ríkja Norðurlandanna utan Færeyja. Hátíðn heppnaðist einstak- lega vel og ákveðið var að halda sambærilega hátíð í einh- verju aðildarlandanna á tveggja ára fresti framvegis. Framlag Íslands var sýning Hugleiks Sálir Jónanna ganga aftur í leikstjórn Viðars Eggertssonar. Sýningunni var í framhaldinu boðið að sýna á listahátíð í Trakai í Litháen sumarið 1999 og á landsfundi Meginfélags áhugaleikara Föroyja, sama ár. 2000 – Fyrsta leiklistarhátíð NEATA haldin í Litháen með þátttöku allra aðildarlandanna utan Færeyja auk gestasýn- inga frá Rússlandi, Hvíta Rússlandi og Póllandi. Framlag Ís- lands var óperuþykknið Bíbí og Blakan frá Hugleik í leikstjórn leikhópsins. Sýningunni var í framhaldinu boðið að sýna á fjölda hátíða í Evrópu. 2002 – Önnur NEATA-hátíðin haldin í Västerås í Svíþjóð með þátttöku aðildarlanda NEATA auk gestasýninga frá Makedóníu, Hvíta Rússlandi og Rússlandi. Framlag Íslands var sýningin Grimms frá Leikfélagi Kópavogs. Leikstjóri var Ágústa Skúladóttir. Sýningin var einnig valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins af Þjóðleikhúsinu leikárið 2001–2002. 2004 – Leiklistarhátíð NEATA haldin í þriðja sinn, í bænum Viljandi í Eistlandi. Sýningar voru frá öllum aðildarlönd- unum auk gestasýningar frá Belgíu. Framlag Íslands var Undir Hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, frá Hugleik. Sýningin fór einnig á alþjóðlega leiklistarhátíð IATA í Mónakó sumarið 2005 og tvær leiklistarhátíðir í Rússlandi sumarið 2006. 2006 – Fjórða leiklistarhátíð NEATA haldin í Þórshöfn í Færeyjum með þátttöku allra aðildarlandanna. Framlag Ís- lands var sýningin Memento Mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Sýningin var samstarfsverkefni leikfélagsins Hugleiks og Leikfélags Kópavogs. Sýningin fór einnig á alþjóðlega leiklistarhátíð IATA í Kóreu sumarið 2007. 2008 – Fimmta leiklistarhátíð NEATA var haldin í Riga í Lettlandi með þátttöku allra aðildarlandanna. Framlag Íslands var leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, samstarfsverkefni Leikfélags Kópavogs og Hugleiks. 2010 – Bandalag íslenskra leikfélaga heldur 6. leiklistathátíð NEATA í Hofi, nýju menningarhúsi Akureyringa. Þátttökusýn- ingar verða frá öllum aðildarlöndunum utan Eistlands auk gestasýninga frá Rúmeníu og Frakklandi. Þrjár íslenskar sýningar verða á hátíðinni, Vínland eftir Helga Þórsson frá Freyvangsleikhúsinu í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar (sýningin var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af Þjóðleikhúsinu 2009), Birtingur frá Leikfélagi Selfoss í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar og opnunarsýningin verður verkið Umbúðalaust í leikstjórn Vigdísar Jakobsdóttur frá Leikfélagi Kópavogs. Sigríður Lára Sigurjónsdóttir leiklist

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.