Spássían - 2010, Side 18

Spássían - 2010, Side 18
Nú í sumar kemur loksins nýr diskur með hinni vinsælu hljómsveit Scissor Sisters. Hann kallast Night Work og kom á markað 28. júní. Þetta er þriðja platan sem hljómsveitin gefur út en nokkuð er síðan önnur plata Scissor Sisters, Tah-Dah, kom út, og hafa aðdáendur beðið í eftirvæntingu frá árinu 2006. Í millitíðinni hafa orðið mannabreytingar, trommarinn Paddy Boom yfirgaf sveitina á síðasta ári og við tók Randy Neal, og heilli plötu var hent á haugana. Eftir útkomu Tah-Dah hafði hljómsveitin strax hafist handa við að semja nýtt efni en eftir eins og hálfs árs vinnu hætti hún við. Í viðtali við BBC News lýsir Jake Shears þeirri pressu sem var á bandinu: „Ég vissi að þessi plata væri mjög mikilvæg, hún varð að vera frábær. Ef hún væri ekki frábær, ef hún væri ekki eitthvað sem við gætum stutt af heilindum og trúað á, hugsa ég að hljómsveitin liði undir lok. Hefðum við gefið eitthvað út sem væri lélegt væri þetta búið spil hjá Scissor Sisters. Við enduðum á undarlegum stað eftir útgáfu síðustu plötu og mér fannst ég geldur og kynlaus. Mér fannst hljómsveitin hafa þynnst út undir lok síðustu herferðarinnar og það var mér mjög mikilvægt að koma kynþokkanum aftur að.“1 Lausnina fann hann í því að stinga af til Þýskalands í nokkra mánuði. Hann virðist hafa komið endurnærður til baka því hin nýja plata Night Work var sett saman á talsvert styttri tíma og með öðrum áherslum. Night Work er undir sterkum diskó/nýaldar/rafrokk áhrifum. Erfitt er að greina eina stefnu frá annarri því öllu er blandað í pott og hrært vel svo úr verður hljómur sem tilheyrir óumdeilanlega aðeins Scissor Sisters. Lagið „Invisible Light“ sker sig þó nokkuð úr og sækir grimmt í Innrásina frá Mars eftir Jeff Wayne en með öðrum áherslum þó þar sem Ian McKellan flytur dramatíska einræðu um skylmingaþræla og partýfólk sem sogast inn í kynorkuhlaðið ljós svallveislunnar. Hljómsveitin var stofnuð árið 2001 af söngvaranum Jake Shears og gítar- og bassa- leikaranum Babydaddy. Fljótlega bættust Ana Matronic og Del Marquis við bandið en trommuleikarann, Paddy Boom, fundu þau í gegnum auglýsingu. Nafnið á hljómsveitinni vísar í kynlífsstellingu tveggja kvenna sem kölluð er træbadismi. Hljómsveitin á rætur sínar að rekja til dansklúbbamenningar New York borgar – sérstaklega innan hýra geirans – og gætir slíkra áhrifa í þeim plötum sem hljómsveitin hefur sent frá sér hingað til. Árið 2004 kom út plata sem bar nafn hljóm- sveitarinnar, Scissor Sisters. Hljómsveitin vakti fyrst athygli á sér með dansútgáfu af Pink Floyd þunglyndisslagaranum „Comfortably Numb“ og fylgdi honum fljótt eftir með lögum á borð við „Take your mama out“, „Laura“ og „Mary.“ En góðar viðtökur plötunnar voru nær eingöngu bundnar við í Evrópu og Ástralíu. Bandaríkin voru, og eru enn, treg við að hampa sínum heimamönnum. Enda er hljómsveitin greinilega ekki á leiðinni að aðlagast íhaldssamri útvarpsstefnu Bandaríkjamarkaðar. 1http://news.bbc.co.uk/2/hi/entertainment/8665388.stm Sc is so r S is t er s Ásta Gísladóttir Þjóhnappar dansarans Peter Reed prýða umslag nýjustu plötunnar, Night Work. Myndin var tekin á níunda áratugnum og er eftir hinn fræga ljósmyndar Robert Mapplethorpe. Fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 2004. Fyrsta smáskífan nefnist Fire with fire og ber kynþokkafullri stefnu hljómsveitarinnar vitni.

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.