Spássían - 2010, Side 20
20
Hugmyndasmiðir sjónvarpsþáttanna
The Wire eru David Simon og Ed Burns.
Simon var um árabil sakamálafréttamaður
hjá Baltimore Sun og þekktur af yfirgrips-
mikilli rannsóknarblaðamennsku þar á 9.
og 10. áratug síðustu aldar. Viðfangsefnið
voru undirheimar Baltimore og þau
gríðarlegu félagslegu vandamál sem sú
borg á við að etja og að miklu leyti tengjast
fátækt, eiturlyfjasölu og -neyslu. Í starfi
sínu lagði Simon sig fram um að kynnast
undirheimum borgarinnar jafnframt því
sem hann kom sér upp samböndum innan
lögreglunnar. Simon hefur einnig gefið út
skáldsögurnar The Corner og A Year on
the Killing Streets sem sjónvarpsþættirnir
Homicide: Life on the Street (1993–1999)
voru byggðir á. Ed Burns starfaði sem
lögreglumaður í Baltimore í 30 ár og fékkst
mest við eiturlyfja- og morðmál. Einnig
fengu þeir við gerð þáttanna til liðs við sig
fólk sem þekkti til á ýmsum vígstöðvum
innan borgarsamfélagsins. Auk þess er
í þáttunum leitast við að gefa raunsanna
mynd af samfélaginu og stundum er byggt
á raunverulegum atburðum og persónum.
Þáttaraðirnar hafa unnið til fjölda
verðlauna, þar á meðal BAFTA og Emmy.
Hér verður drepið á efnistökum í
framvindu þáttanna. Þeir sem ekki hafa
séð þá þurfa þó ekki að óttast uppljóstranir
sem eyðileggja upplifunina af því að
horfa á þá. Þetta eru ekki hefðbundnir
„lögguþættir“ þar sem spennan hverfist
um rannsóknina á því hver eða hverjir
sökudólgarnir eru. Það er ljóst frá upphafi.
The Wire gerist í Baltimore og
fylgst er með mörgum þáttum þess
borgarsamfélags, frá mörgum og mis-
munandi sjónarhornum. Þetta gerir
það að verkum persónugalleríið er afar
stórt og nokkuð snúið að henda reiður á
því, í upphafi. Í rauninni eru líka töluð
nokkur tungumál í þáttunum, þar sem
talsverður munur er á tungutaki hæst
settu embættismanna og slangurmáli
götubarna. Síðan má heyra margvísleg
afbrigði af tungutaki ýmissa stétta og
starfsgreina þess á milli. Það fer því ekki hjá
því að mönnum geti þótt þeir hafa ofmetið
enskukunnáttu sína þegar farið er að ráða
í samskipti á tungumáli sem helst kemur
kunnuglega fyrir hlustir af rapptextum.
Nú er velmegun í mörgum hlutum
Baltimore-borgar í raunveruleikanum,
en sögusvið The Wire eru fyrst og fremst
fátækrahverfin í austur- og vesturhluta
Baltimore.
Í þeim hluta Baltimore sem þættirnir
gerast eru eiturlyfin hin markaðsráðandi,
og í raun allsráðandi öfl. En þeir sem
eru efstir í fæðukeðjunni í þeim geira
eru ósnertanlegir. Tengsl þeirra og ítök
í stjórnmálum borgarinnar eru marg-
slungin. Pólitíkin tengist æðstu mönn-
um í lögreglu og réttarkerfi. Inn í þetta
fléttast svo barátta stjórnmálamanna
og yfirmanna lögreglunnar við að halda
tölfræðinni um glæpatíðni, morð og
handtökur í borginni í lagi svo þeir haldi
störfum sínum og/eða virðingarstöðum.
Helst án þess að stjaka við þeim
ósnertanlegu í glæpaheiminum vegna
oft óræðra fjárhagstengsla. Tölfræðin er
þannig mikilvægari í stjórnskipulaginu en
raunveruleg velferð þegnanna.
Í fyrstu seríu er myndað rannsóknar-
teymi innan lögreglunnar. Það fer þannig
fram að nokkrum vandræðamönnum
héðan og þaðan úr lögregluliðinu er
smalað saman í afskekkt húsnæði með
lélegan aðbúnað og eiga þeir að þykjast
rannsaka einn eiturlyfjahringinn sem talið
er að maður að nafni Barksdale stýri. Þetta
er sýndarverkefni af hálfu yfirmanna.
Ákveðin mál sem tengjast genginu hafa
komist í hámæli, sem er óþægilegt fyrir
yfirvöld. Meðlimir rannsóknarteymisins
eru úr ýmsum áttum. Sumir þeirra nenna
ekki að vinna vinnuna sína. Aðrir eru
uppá kant við kerfið. Innanum reynast
nokkrir ágætir rannsakendur sem komast
að ýmsu áhugaverðu en þurfa til þess og í
framhaldinu að kljást við vanvirkt og spillt
réttarkerfi.
Áhorfandi veit alltaf hvað er að gerast á
öllum vígstöðvum. Veit í raun miklu betur
en lögreglumennirnir hvað gangsterarnir
eru að gera. Og hvað af þessu öllu er að
hreyfa við pólitíkinni á hverjum tíma.
Persónur eru marglaga og allar hafa
þær sína kosti og galla. Þótt stundum sé
auðveldara sé finna til samkenndar með
sumum en öðrum þá eru allar persónurnar
breyskar og í raun mótaðar af því gallaða
samfélagi sem þær koma úr. Vegferð hvers
og eins í þessum fimm þáttaröðum getur
líka orðið býsna margbreytileg. Margir
eru fyndnir. Örlög annarra gríðarlega
harmræn. Eins og gengur og gerist í lífinu.
Allar persónurnar hafa góðar og slæmar
hliðar; eiga góða og slæma daga.
Þættirnir bera þess nokkur merki að
hugmyndasmiðir þeirra hafa fengist við
skáldsagnagerð. Haldið er um marga þræði
í hverri þáttaröð, og nokkra í gegnum
allar, þó framvindan sé nokkuð heildstæð.
Stóra samhengið er til staðar þó fylgst sé
með mörgum og misjöfnum persónum
innan þess. Það þýðir hins vegar ekkert
að horfa á þættina öðruvísi heldur en að
sjá hverja þáttaröð frá upphafi til enda.
Ekkert frekar en hægt er að sleppa úr kafla
í lestri skáldsögu.
Í hverri þáttaröð er lögð áhersla
á mismunandi efni. Í þeirri fyrstu
er rannsóknin á Barksdale-genginu
miðlæg, í annarri færist fókusinn yfir til
hafnarinnar og ýmissa mála, þar sem
tengjast undirheimum borgarinnar, sú
þriðja færir fókusinn aftur að Barksdale
og öðrum eiturlyfjahringjum. Sú fjórða
Sjónvarpsþættirnir The Wire (2002–2007) hafa verið nokkuð í
umræðunni eftir að Jón Gnarr, nýkjörinn borgarstjóri Reykvíkinga,
gaf út þá yfirlýsingu í kosningabaráttunni að hann myndi ekki íhuga
meirihlutasamstarf með neinum sem ekki hefði séð áðurnefnda
sjónvarpsþætti.
Undarleg krafa. Eða hvað?
Skylduáhorf dagsins:
The Wire