Spássían - 2010, Page 21

Spássían - 2010, Page 21
21 Sigríður Lára Sigurjónsdóttir beinir kastljósinu mest að börnum í fátækrahverfum og pólitíkinni (þar eru t.a.m. borgarstjórakosningar) og í þeirri fimmtu, sem er verið að sýna á Stöð 2, er tekið á fjölmiðlum og þeirra þætti í öllu saman. Vissulega áhugavert að fá þann vinkil á þeirri sjónvarpsstöð, einmitt núna. The Wire eru karlaþættir. Kvenpersónur í þáttunum hafa þurft að laga sig að karlaveldinu í valdakerfi Baltimore, hvort sem þær starfa innan stjórnkerfis, lögreglu eða glæpagengja, og finna sér tilgang innan þess. En testósterónið ræður ríkjum og stjórnar þessu samfélagi í smáu og stóru. Útkoman er viðbjóður og vitleysa. Í þáttunum má einnig sjá dæmi um hvernig spillingin virkar. Hvað það er sem skiptir stjórnmálamenn mestu máli. Vísbending: Það er ekki velferð almennings. Þættirnir sýna hvernig kerfið vinnur í rauninni með glæpaforingjum og hversu vel þeir kunna að spila á það. Hvernig pólitíkin getur farið illa með mál sem eru inni á borði rannsóknarteymisins. Hvað gerist þegar farið er að sauma að valdamiklum mönnum. Hvernig tilgang- urinn helgar ýmsar aðferðir valdamanna sem hafa (sumir) talið sér trú um að hugsjónir þeirra séu góðar og göfugar. The Wire er raunsönn birtingarmynd á dekkstu hliðum borgar sem hefur átt við langvarandi atvinnuleysi, mikið misrétti og veikt stjórnskipulag að stríða. Tengingin er einnig sterk við valdakerfið á Íslandi í dag og þá umfangsmiklu rannsókn sem nú stendur yfir á aðdraganda hruns fjármálakerfisins. Fljótt á litið virðist veruleiki þáttanna ólíkur Reykjavíkurborg í dag en hliðstæðurnar eru samt of margar til að framhjá þeim verði litið. Fyrir þá sem halda um stjórnartaumana í Reykjavík er The Wire skylduáhorf. Margir tóku yfirlýsingu Jóns Gnarr sem minnst var á í byrjun sem einhverju flippi. En líklega var krafan um að samstarfsmenn í borgarstjórn hefðu séð The Wire eitt það rökréttasta sem fram kom í kosningabaráttu Besta flokksins. Lögreglumennirnir Jimmy McNulty og „Bunk“ Moreland á vettvangi Omar Little. Ein áhugaverðasta persóna þáttanna Baltimore Vesturhluti Baltimore

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.