Spássían - 2010, Síða 27

Spássían - 2010, Síða 27
27 Hin stóra frásögn um bókmenntagagnrýni og rithöfunda á Íslandi lýsir höfundum sem viðkvæmum skepnum með lágt sjálfsálit og mikið skap – tilfinningasömum og bitrum grátkonum sem reiðubúnar séu að leggja líf sitt undir smánarlegar skærur við aumingjans gagnrýnendurna, sem hafa ekkert af sér gert annað en að segja sannleikann. Þessi frásögn þjónar bæði höfundum og gagnrýnendum, enda styður hún annars vegar við mýtuna um höfundinn sem ofurnæman snilling sem allir verði að sýna tillitssemi og hins vegar mýtuna um gagnrýnandann sem hugrakkan boðbera sannleikans. Og þannig fá allir að vera píslarvottar; fá allir að vera glaðir. Ég hef setið beggja vegna borðsins og upplifað allt hið yndislega spektrúm þessarar guðdómlegu paranoju; þessa fyrirtaks ofsóknarbrjálæðis. Ég hef reiðst heimsku gagnrýnenda, steytt hnefann að guðunum og óskað þeim óendanlegrar helvítisvistar án tafar. Og ég hef fussað og sveiað yfir viðkvæmni höfunda sem ekkert þola, sagt þá grunnhyggna, hégómagjarna og barnalega kjána sem væru kannski hótinu skárri ef þeir einbeittu sér að bókmenntum af sömu ástríðu og þeir einhenda sér í grátur og gnístran tanna. Í sem stystu máli hefur rithöfundinum mér þótt gagnrýnendur óttalegir besefar, á meðan gagnrýnandanum mér hefur þótt rithöfundarnir skelfilegar píkur – ef ég má bregða fyrir mig kynjuðu málfari til útskýringar. Þetta er ekki alveg út í bláinn. Rithöfundar lifa meðal annars á tilfinningum sínum; lifa meðal annars á því að rækta næmi sitt fyrir veröldinni og djöflast á sjálfum sér, rífa í sundur skjálfandi mennskar taugar sínar einsog holdið af kjúklingabeinum lesendum til skemmtunar. Rithöfundar lifa við stöðugt ójafnvægi – þeir vinna við að búa til dramatískar víddir þar sem allt morir í undirtexta, óorðuðum vilja og óorðinni framtíð. Allar góðar sögur spyrja til skiptis „hvers vegna?“ og „hvað næst?“ – og svörin eru undantekningalítið „vegna þess að það er eitthvað að“ og „eitthvað ennþá verra“. Og skal því engan furða að skáldin séu skjálfandi, paranojuð strá sem kunni illa við sig í roki. Gagnrýnendur (á Íslandi) eru síðan iðulega í þeim sporum að þurfa að tjá sig um bækur sem þeir hafa engan áhuga á. Þeir spæna í sig jólabókaflóðinu, 30- 40 bókum á þremur til fjórum vikum, svo aðfarirnar minna á hedónískt/masókískt kappát: „Já, mér finnst geðveikt gaman að lesa“, segir frussandi gagnrýnandinn sem gubbar kiljum gærdagsins um leið og hann vaknar, útþembdur og fretandi. „Ég hef ástríðu fyrir bókmenntum!“ Við þetta bætist ákveðin félagsleg vídd sem ætti að segja sig sjálf – og flestir gagnrýnendur eru áreiðanlega sjálfir meðvitaðir um innst inni: Það tekur enginn mark á gagnrýnanda sem hefur gaman að öllu sem hann les. Frægð öðlast gagnrýnandinn einungis með því að gerast slátrari. Þar getur hann látið skína í illkvittnislega orðheppni sína (sem er jú það sem gagnrýnendur verða frægir fyrir). Því rétt einsog það er ekkert gaman að lesa skáldsögu þar sem öllum lyndir frá upphafi til enda er ekkert gaman að lesa ritdóm þar rýnirinn er fullkomlega sáttur við bókina. Ritdómarinn þarf að feta einstigið – finna gallana, orða neikvæðni sína á skemmtilega miskunnarlausan máta og blása svo duglega í lúðra þess á milli til að hann fái nafnið sitt á bókarkápurnar sem liggja úti um allan bæ: „Stórkostlegt meistaraverk!“ // „Gríðarlega vel unnin bók!“ // „Einstakt þrekvirki!“ Rithöfundurinn er því í fullum rétti þegar hann reiðist gagnrýnandanum og gagnrýnandinn er í fullum rétti að reiðast rithöfundinum. Gagnrýnandinn er besefi og rithöfundurinn er píka og samfarir þeirra eru þvingaðar á báða bóga: öll penetreisjón er nauðgun // allt kynlíf er sjálfsfróun. Það er því ekki formálalaust (einsog þið sjáið) – og ekki vandræðalaust – að ég hef ákveðið að gera tilraun til þess að skrifa um (ljóða)bækur á síður þessa tímarits. Ég hef takmarkaðan áhuga á því að græta neinn með vanhæfi mínu eða hégómlegum derringi. Og raunar langar mig alls ekki að eyða pappír (og hvað þá hugsun og/eða orðum) í þá tegund neytendaverndar sem bókmenntarýni vill oft verða. Mig langar ekki að vernda ykkur – elskulegastir allra lesenda – fyrir bókum eða segja ykkur hvað þið ættuð að lesa. Ég nenni einfaldlega ekki að taka þátt í tilgangslausu skotgrafarrifrildi um hvaða bækur séu „góðar“ og hverjar „vondar“ – enda afskaplega litlar líkur á að sé smekkur minn sé smekkur hvers og eins ykkar (ég er svo illa haldinn af mótþróaþrjóskuröskun að ég er yfirleitt aldrei sammála neinum um neitt). Í íslenskri bókmenntaumræðu er hvort eð er nægu púðri eytt í innantóman auglýsingatexta, kanónudaður og smáborgaralegt röfl. Bókmenntir eru ekki samkeppnisíþrótt. Og til þess að þetta verði nú alveg áreiðanlega ekki leiðinlegt ætla ég ekki að skrifa um bækur sem vekja ekki áhuga minn. Ég hef starfað sem gagnrýnandi áður, í þeim sporum að þurfa að skrifa um allt sem barst í póstinum, og það er einfaldlega vonlaus staða. Maður hefur ekki áhuga á öllum bókum. Maður hefur ekki „eitthvað merkilegt“ að segja um allar bækur – og hafi maður ekkert merkilegt að segja er betra að halda sér einfaldlega saman (eða setja það á bloggið sitt) heldur en að segja eitthvað til þess að segja eitthvað, til þess að fylla út í eyðublaðið svo maður fái launatékkann. Íslenskar bókmenntir þurfa ekki á frekara metnaðarlausu sleni að halda. Ég kemst sjálfsagt aldrei undan því að vera hvorutveggja besefi og píka. Það er áreiðanlega í eðli starfanna og eðlið verður ekki flúið svo glatt – hvað sem líður viljanum. Og ég er ekki viss um að ég geti lofað því að þetta verði alveg sársaukalaust. En ég skal að minnsta kosti reyna að sjá til þess að þetta verði ekki alltof leiðinlegt. Formáli að bókmenntagagnrýni: Um píkur og besefa Eiríkur Örn Norðdahl

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.