Spássían - 2010, Síða 28

Spássían - 2010, Síða 28
 28 Gyða Margrét Pétursdóttir, aðjúnkt í kynjafræði við stjórn- málafræðideild Háskóla Íslands, fjallaði um fataval og karlmennsku á alþjóðlegu ráðstefnunni After the Gold Rush sem fram fór á vegum Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands 27.-28. maí síðastliðinn. Gyða Margrét nýtir sér kenningar Connells og Messerschmidts en þeir lýsa stigveldi karlmennskunnar sem menningarlegu forræði. Það þýðir að stigveldið byggir ekki einungis á styrk og valdbeitingu heldur er því að einhverju leyti viðhaldið með því að framleiða dæmi um karlmennsku eins og það sem lýst var hér í upphafi. Þessi dæmi verða ráðandi karlmennskutákn þrátt fyrir að flestir karlar og drengir nái ekki að fylgja þeim fullkomlega eftir.1 Viðskiptakarlmennskan Í fyrirlestri Gyðu Margrétar kom fram að á Íslandi hefur ímynd karlmannsins sem fyrirvinnu verið ríkjandi, þrátt fyrir mikla þátttöku íslenskra kvenna á vinnumarkaði. Karlar vinna að meðaltali lengur en konur, jafnvel þótt íslenskar konur vinni næstum jafnlangan vinnudag og norskir karlar. Virði íslensks karls sem manneskju er mælt í stundunum sem hann eyðir á vinnustaðnum og launum hans. Þetta endurspeglast m.a. í launamun kynjanna, en á Íslandi er hann meiri en annars staðar á Norðurlöndum. Árin 2005 og 2006 tók Gyða Margrét viðtöl við 48 manneskjur, 24 karla og 24 konur, stjórnendur og almenna starfsmenn í opinberum stofnunum og einkareknum fyrirtækjum. Að auki heimsótti hún fyrirtækin og fylgdist með. Var þetta liður í doktorsverkefni hennar, en niðurstöðurnar voru m.a. þær að margir karlar virðast byggja sjálfsmynd sína að miklu leyti á því að vera í launaðri vinnu og á því að vinna langan vinnudag. Ég hef alltaf bara unnið og alltaf 12 til 14 tíma ... ég er bara vanur þessu. Ég hef ekkert verið að pæla neitt í því hvað klukkan er maður bara klárar verkið og þó að maður byrji fimm á morgnana þá bara klárar maður það sem þarf að gera. (Knútur)2 Nátengt þessu er löngunin til að afla góðra tekna og vera þar með talinn alvöru þátttakandi í atvinnulífinu. Flesta karlana sem rætt var við væri hægt að flokka sem „Homo economicus“, sagði Gyða, hinn skynsama mann sem setur peninga í fyrsta sæti. Þriðja einkenni ráðandi karlmennsku fyrir kreppu var vinnuumhverfi sem byggðist jöfnum höndum á samkeppni og samvinnuanda. Að byggja mikið sem maður lærir í íþróttunum... það er skorið... í fyrsta lagi, allar mælingar verða að vera uppi á borðinu, það verður að vera hægt að sjá hvernig þú stóðst þig í síðustu viku, náðir þú inn 240 þúsund eða 380 þúsund, þetta verður bara að sjást svart á hvítu, ein tala, krónur. Hvernig á ég að geta stýrt þessu fyrirtæki ef ég hef ekki eitthvað svona og hvernig átt þú að geta leiðrétt það sem þú ert að gera ef þú hefur ekki svona, þetta er svona ámóta eins og að segja, heyrðu nú skulum við spila körfubolta, það verður engin markatala, þið fáið að vita útkomuna úr leiknum eftir mánuð, kannski, þannig að höfum þetta svona einfalt og skýrt og skorinort. (Árni)3 Spáð í framtíð karlmennsku Eftir bankahrunið gekk þessi mynd manna á milli í tölvupósti. Í stað „Range Rover“ stendur „Game Over“. Á myndinni sést einnig hin dæmigerða skrautfjöðureiginkona frá tímum góðærisins. • Vinnustundir karla – 2006: 47.5 klst. á viku – 2009: 43.8 klst. á viku (Heimild: Hagstofa Íslands) • Atvinnuleysi karla – 2008: Minna en 1% – apríl 2010: 9.8% (Heimild: Vinnumálastofnun) • Atvinnuþátttaka 25-54 ára árið 2006 – Konur: 85% – Karlar: 95% (Heimild: Hagstofa Íslands) Karlmaður sem gekk í svörtum jakkafötum, starfaði í banka eða í fjárfestingarfyrirtæki, keyrði um á Range Rover og átti fallega eiginkonu var á tíma góðærisins ímynd hinnar fullkomnu karlmennsku. Þetta hefur breyst. Rétt eftir bankahrunið varð karlmaður í jakkafötum táknmynd gjaldþrots. En hver er þá ný ímynd karlmennskunnar og breytir hún einhverju um ójafnræði kynjanna?

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.