Spássían - 2010, Blaðsíða 35

Spássían - 2010, Blaðsíða 35
35 Hyrjarhöfða 9, 110 Reykjavík spesart(at)spesart.is PERSÓNULEG GJÖF Strigaprentanir Neon skilti Sandblástur Viðgerðir, viðhald, sprautun, sérsmíði, bílamerkingar og risaprentanir OPIÐ neon skilti með eða án ramma, inni eða úti, með eða án blikkara. Sérsmíðum eftir máli, ýmsir litir í boði Afmæli - Gifting - Ferming Prentum ljósmynd á striga og römmum inn. Tilvalin tækifærisgjöf. KÍKTU VIÐ Á HEIMASÍÐU OKKAR: Eða hafðu samband í s: 5 7777 67 www.spesart.is að bankakerfið var orðið allt of stórt fyrir landið. Það er ekkert til að hreykja sér af að hafa komið auga á það, ég meina hvers konar fífl sáu það ekki?“ Hann segist hafa tekið efnahagshruninu fagnandi og heldur áfram að binda vonir við það. „Nýir fjölmiðlar eru að fæðast og það er meiri áhugi á því sem er íslenskt og þjóðlegt. Því fylgja auðvitað ákveðnar hættur, t.d. á þjóðernissinnuðum viðhorfum og rasisma. En því geta líka fylgt jákvæðir hlutir. Í stað þess að lifa í eilífu núi er lögð rækt við rætur og menningu afa og ömmu, þriggja vídda manneskja í stað einnar víddar útrásarvíkinga. En ég veit líka að hrunið verður og er djöfullegt fyrir marga, fólk flýr úr landi og er mjög illa statt fjárhagslega.“ Undanfarin ár hafa samtímabókmenntir einkennst af þrá eftir veruleika, segir Hermann. „Í þessu veruleikafirrta góðæri var veruleikinn farinn, horfinn. Allir þessir peningar voru bara loft, góðærið byggðist á röngum reikningi. Höfundar reyndu að finna veruleikann í blekkingamistrinu, ég gerði það alla vega í mínum bókum. Þessar hugmyndir eru svo sem komnar til ára sinna í hugvísindum og má nefna kenningar Baudrillards og Hals Fosters sem skrifaði The Turn of the Real árið 2001. Ég held reyndar að þeir hafi verið á undan sinni samtíð: það var ekki fyrr en seinna sem veruleikinn lét sig hverfa fyrir alvöru en með einhverjum öðrum hætti samt. Sýnin á veruleikann er skarpari núna. Þá þarf að finna henni farveg áfram. Besti flokkurinn hefur til dæmis mjög skýra sýn á veruleikann og það er svakaleg þörf fyrir hann. Ef við lítum á stefnumál þeirra má nefna að þeir hafa ráðið Sjón sem ráðgjafa í samgöngumálum. Hann er ekki með bílpróf og fer allra sinna ferða í strætó. Í jafnréttismálum lýsti Jón Gnarr því yfir að konum þyki gaman að vaska upp og þess vegna sé gott að fá þær í hreingerninguna eftir hrunið. Þetta er mjög óforskammað en afhjúpar fyrst og fremst það sem hinir flokkarnir eru að hugsa en segja ekki, að þeir byggja á staðalmyndum. Síðan má gagnrýna Besta flokkinn fyrir að vera ekki nógu jafnréttissinnaður í reynd. En Jón Gnarr hefur tekið mark á þeirri gagnrýni og fengið fleiri konur til liðs við sig. Flokkurinn er bráðskemmtilegur möguleiki og það mun koma í ljós hvernig vinnst úr honum á næstu mánuðum. Ég treysti honum til að gera eins vel og hann getur og það var lán að fá svona framboð núna en ekki til dæmis rasistaflokk. Enginn annar flokkur hefur til dæmis rutt Framsóknarflokknum frá, hreinlega lagt hann niður. Fólk er hins vegar furðu ólæst á þetta fyrirbæri. Jón Gnarr ræðst á það hvernig stjórnmálamenn tala og hafa talað. Hann ræðst ekki persónulega á neinn stjórnmálamann og ekki einu sinni á Sjálfstæðisflokkinn. Hann gerir generískt grín að því hvernig stjórnmál virka – og þau virka augljóslega ekki, af mörgum ástæðum. Meðal annars vegna orðræðuhefðarinnar: innihaldslausra frasa og ræða. Það ríkir falskt raunsæi og svo þegar komið er inn fyrir dyrnar morar allt í spillingu og ógeði. Besti flokkurinn getur ekki staðið sig verr en hinir flokkarnir sem hafa t.d. hamast við að gefa auðlindir, ja helst ræna þeim eða einkavæða þær. En ég áskil mér rétt til að vera áfram krítískur eins og alltaf - eins og rithöfundar verða að vera.“ Auður Aðalsteinsdóttir 1 Hermann Stefánsson, „Eitthvað nýtt”, Lesbók Morgunblaðsins, 9. júní 2007. Hermann hefur gefið út skáldfræðiritið Sjónhverfingar: Fjarvistarsannanir fyrir íslenskan veruleika (2003), ljóðabækurnar Borg í þoku (2006) og Högg á vatni (2009), smásögusafnið Níu þjófalyklar (2004) og skáldsögurnar Stefnuljós (2006) og Algleymi (2008). Þá skrifaði hann útvarpsleikritið Skyldan kallar - pólitískur gamanleikur (2009). Nú er hann með bók í smíðum sem ber vinnuheitið Játningar spunameistara.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.