Spássían - 2010, Page 36

Spássían - 2010, Page 36
 36 Sagan gerist á milli svefns og vöku gamals manns – í endurminningum og fantasíu – á meðan hann bíður eftir því að suðan komi upp á tekatli. Ekki er um eiginlegan söguþráð að ræða heldur lýsingu á ástandi. Gamli maðurinn liggur í rúminu og lætur hugann reika um minningarnar, nær og fjær í tíma. Dauðinn vomir yfir allri frásögninni og kemur þar teketillinn inn sem rauður þráður og boðberi hans. Þegar sýður á katlinum klárast eitthvað ferli og nýtt ástand tekur við. Gamli maðurinn er allan tímann að bíða eftir þessari breytingu en skýtur henni í sífellu á frest á meðan hann reynir að gera upp líf sitt og skilgreina þetta undarlega ástand, elli, sem hann stendur skyndilega frammi fyrir: Fólk er forviða um ellina, „hvernig líður henni, komin á þennan aldur?“ en enginn vill gera neitt. Fólk bíður, líka börnin, bæði synir og dætur, afkomendurnir, ættingjarnir. Hver sér um hana? Var hún verri í dag? Er dagamunur á henni? Fólk hnýsist í sjúkdóminn, í hrörnunina. Þetta er eitthvað sem laðar að eins og ólykt, svitalykt, táfýla, andremma, hlandlykt, það sem kemur fram á okkur, og eins og ellin. Hún á eftir að bitna á öllum sem lifa nógu lengi, síðan dauðinn, en enginn vill annast þá sem eru komnir í aðdraganda endalokanna. Að þeim loknum er spurt: „Hvernig dó hún?“ eins og til að átta sig á væntanlegri eigin för fremur en för þeirra sem fóru. (90-91) Eitt af umfjöllunarefnum bókarinnar er gróteska ellinnar og sú andúð sem það ástand vekur hjá flestum, einnig þeim sem eru komnir á háan aldur. Veruleikinn í Missi er mun meira ógnvekjandi en í meðalreyfara eða vampíruspennusögu. Gróteska ellinnar er í senn sú fjarlægasta, raunverulegasta og algengasta ógn sem manneskjan stendur frammi fyrir. Enginn vill eldast en flestir þurfa að upplifa ellina með minnisleysi sínu, sambandsleysi, getuleysi, veruleikafirringu og frelsishöftum. Allir þessir þættir sameinast á fráhrindandi hátt í eiginkonu gamla mannsins. Þegar sagan gerist er stutt síðan hún dó. Lesandi fær í upphafi þá tilfinningu að hún hafi verið frekar ómerkileg kerling og sennilega best geymd í gröfinni. Söknuður gamla mannsins eftir henni virðist a.m.k. rista grunnt. Þótt hún sé til í einstaka minningum hans sem einhvers verð, kona sem hann þráði og elskaði, er hún ferskari sem skrímslið sem saug úr honum líf og sál. Veikburða gömul kona sem maðurinn sá um, þreif og eldaði fyrir. Sísuðandi og kvartandi, uppþornuð og illa lyktandi. Hún var ekki einu sinni góður kokkur eins og hann kemst að þegar hann neyðist til að taka að sér matseldina á heimilinu: Í nýjasta verki sínu, smáskáldsögunni Missi, hleypir Guðbergur Bergsson lesendum inn í heim hinna öldruðu og hrörnuðu í öllum sínum ljótleika. saga um tvo líkama

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.