Spássían - 2010, Page 38
38
Þær fregnir bárust í vor að hljóm-
sveitin Kolrassa Krókríðandi hyggði á
endurkomu í sumar á rokkhátíðinni
Eistnaflugi eftir nær 10 ára þögn. Af
því tilefni er tilvalið að rifja aðeins
upp sögu hljómsveitarinnar með
Sigrúnu Eiríksdóttur og Ester „Bíbí“
Ásgeirsdóttur.
Hljómsveitin Kolrassa Krókríðandi
var stofnuð árið 1991 í Keflavík af
Ester Bíbí, Sigrúnu, Elísu Geirsdóttur
og Birgittu Vilbergsdóttur, sem þá
voru allar á 16. ári. Áður höfðu þær
reyndar spilað undir öðrum nöfnum í
Holtaskóla.
Bíbí og Sigrún segjast hafa stofnað
hljómsveitina ásamt vinkonum sínum,
aðallega vegna þess að þeim leiddist í
Keflavík. Þær höfðu kynnst strákum sem
voru í hljómsveit, nenntu ómögulega að
vera grúppíur þeirra og höfðu mikinn
áhuga á að skapa sinn eigin hávaða.
Sigrún segir hugmyndina um að
stofna hljómsveit hafa fengið byr undir
báða vængi þegar þær stöllur horfðu á
hljómsveitina Shadows, þá á gamals
aldri, spila í sjónvarpinu. Þótti þeim
tilhugsunin um að þetta gæti orðið
hlutskipti þeirra, að standa á sviði og
spila tónlist í ellinni, vera það fyndin
að úr varð Kolrassa Krókríðandi.
Tilviljun ein réði því hver spilaði á
hvaða hljóðfæri. Móðir Sigrúnar hafði
keypt gítar nokkrum árum áður sem
var enn ósnertur, Elísa þótti líkjast
söngvara hljómsveitarinnar Pandóru,
Birgitta hafði spilað á sneril í lúðrasveit
og Bíbí var á klósettinu. Sigrún var send
á námskeið til að læra vinnukonugripin
og ódauðlegir slagarar á borð við Mr.
Cabdriver og Ó Gunna voru spilaðir af
krafti. Stelpurnar segja að það hafi tekið
um það bil ár að koma hljómsveitinni
í það form sem síðar varð Kolrassa
Krókríðandi.
Upphaflega æfðu Kolrössurnar í
æfingahúsnæði með hljómsveit sem
bar nafnið Pick. Þær segjast ekki hafa
öðlast virðingu þeirra og aðdáun en það
hafi hvort eð er aldrei verið markmiðið.
Þær vildu bara gera sitt eigið og einstakt
úthald þeirra í að skapa hávaða og læti
vakti mikla athygli. „Öll lög voru samin
með það í huga að fólki myndi annað
hvort bregða eða tæki andköf”, segir
Bíbí og hlær. „Þannig ætluðum við að
vinna hug og hjörtu þeirra”. „Ef fólki
var farið að líða vel undir lögunum var
eitthvað að”, bætir Sigrún við. Venjulegt
eða formúlukennt var það versta, þá
gátu þær alveg eins dáið.
Fyrstu tónleikar sem Kolrassa Krók-
ríðandi kom fram á voru haldnir í
Félagsbíói í Keflavík í nóvember árið
1991 þar sem stelpurnar hituðu upp fyrir
hljómsveitina Bootlegs. Hjólin fóru þó
að snúast af alvöru þegar hljómsveitin
tók þátt í Músíktilraunum árið 1992
og sigraði öllum að óvörum, ekki síst
þeim sjálfum. „Við þorðum varla að
fara upp og taka við verðlaununum”,
segir Sigrún, sérstaklega þar sem
heldur lífsstíll
Ekki frægð
Hljómsveitin Kolrassa krókríðandi vaknar úr löngum dvala eina helgi í júli