Fréttablaðið - 19.06.2020, Page 2
Engin byggð eða
mannvirki ættu að
vera í hættu.
Magnús Tumi
Guðmundsson,
jarðeðlisfræð-
ingur
Við þurfum að
breyta kúltúrnum
og menningunni, koma því
þannig fyrir að það sé ekki
eðlilegt að
konur verði
fyrir ofbeldi.
Stella
Fjöldi þingmanna var á
mælendaskrá um Sam-
gönguáætlun í gær. Sumir í
fjórða sinn.
Veður
Suðaustan 8-13 m/s, en hægari
vindur norðvestanlands. Skýjað
og þurrt að kalla um vestanvert
landið, en þurrt og bjart austan til.
Hiti 8 til 21 stig. SJÁ SÍÐU 16
SAMFÉLAG „Íslendingar hafa tekið
ótrúlega vel í Fokk of beldi verk
efnið. Við höfum selt í kringum
tíu þúsund húfur og hálsklúta til
að ná upp í þessa tölu,“ segir Stella
Samúelsdóttir, framkvæmdastýra
UN Women á Íslandi. Samtökin
undirrituðu nýlega áframhaldandi
samning við Vodafone, þar sem fyr
irtækið hyggst styðja við verkefnið
fjórða árið í röð. Á síðastliðnum
þremur árum hefur verkefnið Fokk
ofbeldi aflað 47 milljóna króna sem
renna beint í að uppræta of beldi
gegn konum og stúlkum í fátækari
ríkjum heims.
„Vodafone hefur greitt fyrirfram
leiðslu á vörunum og þannig höfum
við geta margfaldað ágóðann, sem
rennur allur beint í þau verkefni
sem við teljum brýnust hverju
sinni,“ segir Stella, en ágóðinn hefur
til að mynda farið í uppbyggingu
kvennaathvarfs Jasítakvenna í Írak.
Stella segir Fokk of beldi afar
mikilvægan þátt í fjáröf lun UN
Women og sér í lagi nú í kóróna
veirufaraldrinum. „Í COVID19 far
aldrinum hefur orðið 30 til 40 pró
senta aukning á tilkynningum um
ofbeldi gegn konum, og tölur benda
einnig til gríðarlegrar aukningar á
þvinguðum barnahjónaböndum og
limlestingum á kynfærum stúlkna,“
segir hún.
Þá segir hún of beldi gegn konum
vera heimsfaraldur, sem mikilvægt
sé að uppræta.
„Við spyrjum okkur hvenær verði
litið á of beldi gegn konum nógu
alvarlega til að við segjum stopp
og tæklum það líkt og við höfum
tæklað COVID19 faraldurinn,“
segir Stella. „Við erum oft bara að
plástra þetta vandamál. Við byggj
um upp kvennaathvörf og reynum
að gera það sem við getum, en það
er ekki nóg. Við þurfum að breyta
kúltúrnum og menningunni, koma
því þannig fyrir að það sé ekki eðli
legt að konur verði fyrir of beldi.“
Stella segir mikilvægt að koma
ábyrgðinni frá þolandanum yfir á
gerandann. „Konur þurfa alltaf að
vera á varðbergi en nú þurfum við
að snúa þessu við,“ segir hún.
Fokk of beldi fer af stað í ágúst
og eins og síðustu ár verður seldur
varningur sem framleiddur verður
í samstarfi við Vodafone.
„Við verðum ekki með húfur í ár,
heldur ótrúlega spennandi nýjan
varning sem við munum greina
frá seinna. Allur ágóðinn rennur
svo til of beldismála í tengslum við
COVID19. Þörfin hefur aldrei verið
meiri en akkúrat núna.“
birnadrofn@frettabladid.is
Tugir milljóna safnast
vegna Fokk ofbeldis
Fokk ofbeldi, sem miðar að því að uppræta ofbeldi gegn konum, hefur á
síðastliðnum þremur árum aflað 47 milljóna. Framkvæmdastýran segir þörf
fyrir starf félagsins aldrei hafa verið meiri, vegna aukins ofbeldis í heiminum.
Lettneski listamaðurinn og umhverfishönnuðurinn Einars Timma, var í gær að leggja lokahönd á strandlistaverk sitt í Kolaportinu. Hann segir
að innblásturinn að verkinu sé COVID-19 faraldurinn, en markmiðið sé að gefa fólki kost á að komast á ströndina þrátt fyrir ferðatakmarkanir.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Kolaportinu að undanförnu, en opið verður frá klukkan 11-17 alla helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Strandlíf í miðborginni
Samtökin UN Women á Íslandi hafa frá árinu 2012 haldið viðburðinn
Milljarður rís, dansbyltingu gegn kynbundnu ofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ELDGOS Vísindaráð almannavarna
fundaði í gær með starfsmönnum
Veðurstofunnar og Háskóla Íslands
vegna hræringa í eldstöðinni
Grímsvötnum í Vatnajökli. Talið er
að bæði eldgos og jökulhlaup gætu
hafist á næstu dögum, vikum eða
mánuðum.
Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur segist búast við
litlu til meðalstóru gosi, sem ætti
ekki að valda miklu raski frekar en
hlaupið. „Engin byggð eða mann
virki ættu að vera í hættu. Brúin á
Skeiðarársandi ætti að þola stórt
hlaup og þetta ætti heldur ekki að
ógna veginum,“ segir Magnús. „Það
gæti hins vegar orðið öskufall og því
gæti þurft að passa upp á f lugum
ferð. En eins og er sofa allir rólegir.“
Stórt gos varð í Grímsvötnum
árið 2011 og síðan þá hefur kvika
safnast upp í eldstöðinni. Á dög
unum mældi Veðurstofan mikið
magn brennisteinsdíoxíðs í lofti við
Grímsvötn, það mesta sem mælst
hefur á Íslandi þegar eldgos er ekki
í gangi. Þá hefur jarðhiti hækkað
á svæðinu og jarðskjálftavirkni
sömuleiðis.
Vatnshæð mælist nú mikil í
Grímsvötnum. Þegar jökulhlaup
verður og þrýstingurinn minnkar
er líklegt að gos fylgi í kjölfarið, en
ekki öruggt að það gerist samfara.
Grímsvötn eru virkasta eldstöð
landsins og hefur gosið þar á fimm
til tíu ára fresti undanfarna áratugi.
Alls hefur hún gosið 13 sinnum frá
árinu 1902 og sennilega meira en
100 sinnum frá landnámi. – khg
Gæti gosið í
Grímsvötnum
STJÓRNMÁL „Það er vel mögulegt
að það verði þingfundur á laugar
dag,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis. Samkvæmt starfs
áætlun er gert ráð fyrir þinglokum
næsta fimmtudag, 25. júní.
Enn er stefnt að því að ljúka störf
um á réttum tíma. „En þetta gengur
rólega í augnablikinu,“ segir Stein
grímur og vísar til þess að fjöldi
þingmanna var enn á mælenda
skrá um samgönguáætlun þegar
þingfundi lauk í gærkvöldi, sumir
í fjórða sinn.
Aðspurður segir Steingrímur
unnið að því að afmarka þau mál
sem stefnt er að því að ljúka nú, og
sú vinna sé í höndum formanna
þingflokka. – aá
Fundað á þingi
yfir helgina
1 9 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð