Fréttablaðið - 19.06.2020, Síða 12
Tíminn minn hjá
Wolfsburg hefur
verið frábær og það verður
mjög skrýtið að fara héðan.
Mér finnst þetta hins vegar
rétti tímapunkturinn til
þess að breyta til.
Sara Björk Gunnarsdóttir
FÓTBOLTI Sara Björk er á sínu síðasta
ári hjá þýska liðinu Wolfsburg, en
eftir að hafa leikið með liðinu í fjögur
keppnistímabil, hefur hún ákveðið
að yfirgefa herbúðir liðsins þegar
yfirstandandi leiktíð lýkur. Á mið-
vikudaginn varð ljóst að hún mun
kveðja liðið sem fjórfaldur Þýska-
landsmeistari.
Sara segir að þrátt fyrir að frá-
bærlega hafi gengið innan vallar,
þá hafi tíminn hjá Wolfsburg verið
allt í senn skemmtilegur, viðburða-
ríkur og erfiður. Ýmislegt hafi gengið
á hjá sér og hún hafi lent í ofþjálfun
líkamlega og andlegum erfiðleikum
á þeim tíma sem hún hefur verið hjá
þýska liðinu.
„Það er mjög mikilvægt fyrir mig
persónulega að tímabilið hafi verið
klárað og að við höfum náð að landa
þýska meistaratitlinum á mínu síð-
asta ári hjá liðinu. Það hefði verið
glatað ef tímabilinu hefði verið hætt
og ég hefði ekki náð að kveðja liðið
almennilega. Ég finn fyrir miklum
létti yfir að titillinn sé í höfn og nú er
bara að klára leiktíðina með bikar-
meistaratitli og góðum árangri í
Meistaradeildinni,“ segir Sara Björk
í samtali við Fréttablaðið.
„Þessi fjögur ár hjá Wolfsburg hafa
verið gríðarlega lærdómsrík. Eftir
standa auðvitað titlarnir sem við
höfum unnið og ég er stolt af, en að
baki þeim er gríðarleg mikil vinna.
Þrátt fyrir sigursæl fjögur ár þá hefur
tíminn ekki verið eintómur dans á
rósum og fólk kannski áttar sig ekki
á því hvað það þarf að leggja mikið
á sig til þess að ná þeim árangri sem
við höfum náð,“ segir landsliðsfyrir-
liðinn.
„Það má í raun segja að fyrsta
leiktíðin hafi verið hvort tveggja í
senn, sú skemmtilegasta og um leið
erfiðasta, líkamlega og andlega. Það
var allt nýtt og gríðarlega spennandi
fyrir mér hjá Wolfsburg. Þá gekk
mér persónulega og liðinu vel, sem
var góð tilfinning. Ég tók hins vegar
lítið frí eftir að ég kom frá Rosengård
og eftir fyrsta tímabilið fór ég beint
á Evrópumótið sumarið 2017,“ segir
þessi öflugi leikmaður.
Lenti á vegg andlega eftir að
Evrópumótinu lauk árið 2017
„Eftir EM lenti ég bara á vegg andlega
séð. Ég átti í persónulegum erfið-
leikum sem ég hafði ýtt til hliðar í
töluverðan tíma og ekki dílað við.
Ég var að koma mér inn í liðið hjá
Wolfsburg og vildi ekki sýna á mér
neinn veikleika þar. Hlutverk mitt
sem leiðtogi íslenska landsliðsins
varð svo til þess að ég setti ekki mína
hluti í fyrsta sæti.
Þá fann ég fyrir miklum kvíða og
fékk kvíðaköst. Ég leitaði þá til sál-
fræðings sem hjálpaði mér mikið. Ég
náði bata og leið vel í nokkurn tíma,
þangað til ég fann fyrir niðursveiflu
aftur. Þá notaði ég þau trix sem sál-
fræðingurinn kenndi mér og náði
mér á strik á nýjan leik. Þessi tími
kenndi mér mikið og það sem skipt-
ir mig mestu máli er að setja ekki
vandamálin ofan í skúffu, heldur
tækla þau um leið og þau láta á sér
kræla. Þetta hefur mótað mig sem
manneskju,“ segir Sara Björk.
„Tíminn hjá Wolfsburg hefur verið
frábær og það verður mjög skrýtið að
fara héðan. Ég er svona fyrst núna að
ná að leiða hugann almennilega að
því að það séu kaflaskil fram undan.
Mér finnst þetta hins vegar réttur
tímapunktur til þess að breyta til og
fara annað þar sem ég þarf að sanna
mig upp á nýtt.
Æfingakúlturinn hér í Þýskalandi
hefur tekið sinn toll af líkamanum
og það verður gott að komast í annað
umhverfi. Ég hef bætt mig umtals-
vert tæknilega og taktískt séð hérna
en það er hollt fyrir mig að fá nýja
áskorun. Ég mun sakna leikmann-
anna sem ég hef spilað með og þá
kannski sérstaklega Pernille Harder
sem ég hef tengst sterkum böndum.
Af þeim leikmönnum sem ég hef
spilað með hjá Wolfsburg og standa
upp úr, má svo nefna Caroline Han-
sen, Ewu Pajor, Alexöndru Popp og
Nillu Fischer,“ segir miðjumaðurinn
sem hefur verið orðuð við Lyon og
Barcelona. hjorvaro@frettabladid.is
Ekki eintómur dans á rósum
Sara Björk Gunnarsdóttir segir að árin fjögur hjá Wolfsburg hafi liðið eins og 20 ár. Margt hafi gerst bæði
innan vallar og utan. Sara Björk kveðst hafa lært að takast betur á við andlega erfiðleika á síðustu árum.
Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir varð fyrr í þessari viku Þýskalandsmeistari með Wolfsburg, í fjórða skipti á fjórum árum. MYND/WOLFSBURG
FÓTBOLTI Ole Gunnar Solskjær,
stjóri Manchester United, talaði
afar fallega um Marcus Rashford
á blaðamannafundi fyrir leikinn
gegn Tottenham í kvöld. Hann sagð-
ist vera gríðarlega stoltur af honum,
en Rashford fékk ríkisstjórn Breta
til að snúa við ákvörðun um matar-
pakka fyrir fátæk börn. Er hann
hylltur sem þjóðhetja.
„Það er heiður fyrir mig að þjálfa
Marcus og það hefur verið frábært
að fylgjast með honum og hans
verkum í samkomubanninu. Ekki
aðeins fékk hann forsætisráðherra
landsins til að snúa við ákvörðun
sinni, því hann hefur verið mjög
virkur og sýnilegur í baráttunni
gegn fátækt undanfarna mánuði,“
sagði Solskjær meðal annars.
„Hann er dásamlegur maður og
hvernig hann hefur nýtt sér sína
eigin reynslu til að hjálpa svona
mörgum börnum, hefur verið frá-
bært. Við, sem félag, erum mjög stolt
af honum.“
Rashford safnaði 20 milljónum
punda fyrir góðgerðafélag og breyt-
ingin hjá ríkisstjórninni mun kosta
um 120 milljónir punda. Talið er að
það hafi áhrif á 1,3 milljónir barna.
Flestir spá því að hann taki einn
daginn við fyrirliðabandinu hjá
Manchester United.
„Hann hefur þegar verið fyrirliði
hjá Manchester United og er fram-
tíðarleiðtogi liðsins. Hver veit nema
það verði líka fyrir England eins
og Mancester United? Þrátt fyrir
ungan aldur sýnir hann það nánast
á hverjum degi hversu dásamlegur
hann er og við gætum ekki verið
stoltari að hafa hann innan okkar
raða.“
Rashford, sem og Paul Pogba, er
heill heilsu og þeir ættu að byrja
leikinn gegn Tottenham sem hefst
um kvöldmatarleytið. – bb
Ole Gunnar Solskjær lýsti manngæsku Marcus Rashford
Marcus Rashford á æfingu í vikunni. Hann er orðinn einn umtalaðasti leik-
maður heims, eftir góðverk sín í samkomubanni Breta. MYND/GETTY
FÓTBOLTI UEFA hefur staðfest að
sambandið muni slaka á FFP-regl-
unum, eða Financial Fair Play í
sumar. FFP-reglurnar miða að því
að félög eyði ekki um efni fram.
Félögum sem ekki fara eftir reglum
getur verið refsað og þau sett í bann
frá keppnum UEFA, eins og Man-
chester City lenti í.
En vegna COVID-19 ástandsins
ætlar UEFA að slaka á reglunum,
enda eru fjölmörg félög að berjast í
bökkum. Flest félög eru til í að selja
sína bestu leikmenn til að bjarga
næsta tímabili, en fá lið geta keypt.
Chelsea reyndar keypti Timo Wer-
ner.
FFP-reglurnar komust í gagnið
árið 2011 og samkvæmt yfirlýsingu
UEFA er ástandið sagt vera þannig
að félögin um álfuna þurfi meiri
tíma til að komast á réttan kjöl.
Manchester United og Chelsea,
auk félaga með forríka eigendur,
eru sögð ætla að nýta sér þetta gat
og fjárfesta grimmt. Sem gæti verið
slæmt fyrir komandi Englands-
meistara Liverpool, því Fenway
Sport group, eigandi félagsins, er
mikill aðdáandi FFP-reglnanna
og ekki fús að tæma vasana fyrir
skammtímaárangur. Félagið bakk-
aði út úr viðræðum við Werner.
UEFA hefur einnig óskað eftir
því að félagaskiptaglugginn lokist
á sama tíma í álfunni og hefur 5.
október verið nefndur. Sambandið
tilkynnti að félög verði að skila leik-
mannalistum fyrir riðlakeppnir
Meistara- og Evrópudeildarinnar
þann 6. október. – bb
UEFA breytir
FFP-reglunum
Philippe Coutinho fer væntanlega
frá Barcelona í sumar, eftir heldur
misheppnaða dvöl í borginni.
FÓTBOLTI Zinedine Zidane, þjálfari
Real Madrid, segir að samband hans
og Gareth Bale sé, og hafi allaf verið,
gott. „Þegar hann er ekki að spila þá
fara fjölmiðlar alltaf að tala um að
samband okkar sé skelfilegt,“ sagði
Zidane á blaðamannafundi. „Við
vitum hvað hann hefur gert fyrir
félagið og hverju hann hefur afrek-
að síðan hann kom til félagsins. Ég
virði hann og ég get ekki stjórnað
hvað þið skrifið, en samband mitt
við hann er frekar eðlilegt myndi ég
segja.“ – bb
Zidane blæs
á sögusagnir
1 9 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT