Fréttablaðið - 19.06.2020, Page 23
Hönnunarsprett-
irnir okkar eru
aðlagaðir okkar við-
skiptavinum hverju
sinni og höfum við um
þriggja ára reynslu í
þeirri vinnu.
Stokkur er hugbúnaðar-fyrirtæki sem sérhæfir sig í öppum, bæði hönnun og
þróun. Raquelita er framkvæmda-
stjóri Stokks og Snædís er verk-
efnastjóri en þær eru báðar
tölvunarfræðingar að mennt frá
Háskólanum í Reykjavík. Þær
segja tölvugeirann fjölbreyttari
en margir gera sér í hugarlund og
störfin margs konar.
„Við hjá Stokki höfum verið að
þróa öpp, bæði okkar eigin og fyrir
viðskiptavini í 13 ár. Hjá okkur
starfa núna níu manns, þar af tvær
konur. Eðlilega viljum við jafna
þessi hlutföll en það hefur verið
mjög erfitt að fá inn umsóknir
frá konum, á meðan karlar senda
inn umsóknir vikulega, stundum
daglega, í gegnum netfangið okkar
og Alfreð Atvinnuleit. Ætli þær
bestu séu ekki nú þegar með störf,“
segir Raquelita og brosir glettnis-
lega. Hún hóf að vinna hjá Stokki
meðfram námi árið 2015 sem
prófari, fór þaðan í verkefna- og
gæðastjórnun og tók síðan við sem
framkvæmdastjóri mánuði eftir
útskrift frá HR árið 2018.
Stokkur býður upp á ýmsar
lausnir, sem eru sniðnar að þörfum
viðskiptavinanna. „Við gerum allt
frá grunni, hvort sem um er að
ræða öpp, vefsíður eða bakenda.
Við erum sterkust í apphönnun og
appþróun en erum einnig með vefi
og bakenda. Við gerum öpp fyrir
mismunandi fyrirtæki á mismun-
andi sviðum. Með góðri þarfa-
greiningu með viðskiptavinum
skiptir ekki máli hvernig þjónustu
eða rekstur á við, við þróum öpp
fyrir alla sem vilja auka þjónustu-
stig sitt. Við höfum gert öpp fyrir
fyrirtæki eins og Strætó, Domino’s,
ASÍ, Einkaklúbbinn, Íslenska
Getspá og Getraunir, Olís, Löður,
Landsnet, Veðurstofu Íslands,
Fiskistofu og svona gætum við
haldið áfram,“ segir Raquelita.
Hönnunarsprettur
á fimm dögum
„Við bjóðum líka upp á þjónustu
sem kallast Hönnunarsprettur, og
erum við ótrúlega stolt af þeirri
vinnu. Hönnunarsprettirnir okkar
eru aðlagaðir okkar viðskiptavin-
um hverju sinni og höfum við um
þriggja ára reynslu í þeirri vinnu.
Með því að taka hönnunarspretti
erum við að fá svör á einungis
fimm dögum sem annars hefði
mögulega tekið marga mánuði.
Hönnunarspretturinn er gerður
til að hámarka árangurinn og sjá
til þess að allir hagsmunaðilar
séu með sömu sýn á kerfið,“ segir
Snædís.
Þegar þær eru spurðar hvaða
verkefni eru fram undan kemur í
ljós að Stokkur er með mörg járn
í eldinum. „Við erum ótrúlega
spenntar fyrir öllu því sem er á
dagskrá hjá okkur næstu mánuði
og það er margt í pípunum, en
ekkert sem að við getum sagt frá
að svo stöddu þar sem að við erum
bundnar trúnaði. Nýjasta appið
okkar sem kom út núna um daginn
er Getrauna-appið með 1X2 og
Lengjunni, sem við þróuðum með
Íslenskum getraunum. Það er hægt
að fylgjast með okkur á sam-
félagsmiðlum, við erum dugleg að
pósta ýmislegu þar,“ segir Snædís
glaðlega.
En skyldi starfsemin hafa breyst
í kjöfar COVID-19? „Starfsemin
breyttist lítið sem ekkert, enda er
hún þannig að við getum unnið
hvaðan sem er í heiminum. Við
unnum heima í kannski fjórar
vikur og tókum daglega fjarfundi
þaðan. Fólk var misánægt með
að vinna heima, enda misgóðar
aðstæður hjá fólki. Sumir eru með
börn og aðrir ekki og þess háttar.
Annars gekk okkur vel að takast á
við COVID-19,“ segir Raquelita.
Ekki láta vaða yfir sig
Þegar þær eru spurðar hvernig sé
að vera kona í tölvuheimi segja
þær að að sé virkilega gaman en á
sama tíma mjög krefjandi. „Þetta
er jú karllægur heimur og eflaust
einhverjar áskoranir sem við
þurfum að takast á við sem karlar
upplifa ekki, en í heildina litið er
þetta ótrúlega gefandi og skapandi
heimur sem býður upp á mörg
tækifæri,“ segir Raquelita.
„Ég finn fyrir því að konum er
að fjölga í tæknigeiranum og þær
geta verið duglegar að taka pláss
og láta í sér heyra. Áður en ég kom
til Stokks sótti ég aðallega um for-
ritunarstörf og áttaði mig ekki á
fjölbreytninni innan tölvugeirans
fyrr en ég kom til Stokks. Núna
vinna ég sem verkefnastjóri, próf-
ari, hönnuður og margt f leira sem
tengist ekki forritun en er 100% í
hugbúnaðarþróun,“ segir Snædís.
„Það þarf samt að vekja enn
meiri athygli á tölvunarfræði og
upplýsingatækni og eyða þeirri
ímynd að störfin í þessum bransa
tengist að mestu forritun. Sem
dæmi erum við hvorugar að forrita
en við gegnum báðar mikilvægum
hlutverkum hjá Stokki,“ segir
Raquelita.
Ekki stendur á svörum þegar
þær eru beðnar um ráð fyrir konur
sem hafa áhuga á að starfa innan
tölvu- og tæknigeirans. „Passa sig
á að vera alltaf samkvæmar sjálfri
sér og láta hvorki karla né konur
vaða yfir sig. Það er líka mikilvægt
að sýna frumkvæði og hafa skoð-
anir á hlutunum,“ segir Snædís.
„Eitt ráð sem ég myndi sérstaklega
vilja nefna er að aldrei ganga út af
fundi nema hafa sagt eitthvað, þó
að það sé ekki nema ein spurning
eða brandari. Láttu taka eftir þér,“
segir Raquelita.
„Til eru hagsmunasamtök sem
að við hvetjum allar konur í upp-
lýsingatækni til að skrá sig í, til
dæmis VERTOnet, sem Raquelita
er nýkomin í stjórn hjá. Þar geta
konur eflt tengslanet sitt við aðrar
konur í þessum bransa ásamt því
að sækja áhugaverða viðburði,“
segja þær að lokum.
Hugbúnaðarþróun er svo
miklu meira en bara forritun
Stokkur er leiðandi fyrirtæki í appþróun hérlendis og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu. Hér er
rætt er við þær Raquelitu Rós Aguilar framkvæmdarstjóra og Snædísi Zanoria Kjartansdóttur
verkefnastjóra sem segja tölvugeirann mun fjölbreyttari en margir geri sér í hugarlund.
Snædís og Raquelita segja mikilvægt að konur séu samkvæmar sjálfum sér og láti hvorki karla né konur vaða yfir sig. Mikilvægt sé að sýna frumkvæði og hafa skoðanir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 1 9 . J Ú N Í 2 0 2 0 KVENRÉTTINDABLAÐIÐ