Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 44
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir
lausa til umsóknar stöðu leiðara í
flautudeild frá og með hausti 2020.
Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til
Unu Eyþórsdóttur, mannauðsstjóra starf@sinfonia.is
Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að
minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnispróf.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar
Íslands www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra
(starf@sinfonia.is) í síma 8985017.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2020.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS er ein stærsta
menningarstofnun landsins með um 100 manna starfslið.
Hljómsveitin heldur úti fjölbreytilegri tónleikadagskrá,
hljóðritar til innlendrar og erlendrar útgáfu, fer í
tónleikaferðir innanlands og utan, auk þess sem hún stendur
fyrir metnaðarfullu fræðslustarfi fyrir börn og fullorðna.
Aðsetur Sinfóníuhljómsveitarinnar er í Hörpu.
www.sinfonia.is
Hæfnispróf fer fram 28. ágúst 2020 í Hörpu.
Einleiksverk:
1) Mozart flautukonsert í G-dúr, 1. kafli
með kadensu
2) Ibert flautukonsert, 2. og 3. kafli
3) Verk að eigin vali
STAÐA LEIÐARA Í FLAUTUDEILD