Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 36
Verkfræðingur
Tæknifræðingur
Eignaumsjón hf. óskar eftir að ráða byggingarverkfræðing eða tæknifræðing til starfa.
Helstu verkefni eru:
» Stuðningur við Þjónustuver og ráðgjafasvið innan Eignaumsjónar
» Ráðgjöf til hússtjórna við undirbúning viðhaldsframkvæmda
» Greining á rekstrarkostnaði fasteigna og ráðgjöf til hússtjórna
» Almenn ráðgjöf og upplýsingagjöf til viðskiptavina Eignaumsjónar
» Önnur fjölbreytt dagleg störf
Hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði byggingarmála og kostur er að viðkomandi hafi haldgóða reynslu af rekstri og
viðhaldi fasteigna. Reynsla af samningsgerð og samskiptum við verktaka og þjónustuaðila á byggingamarkaði er æskileg.
Umsækjendur þurfa að vera töluglöggir, vanir tölvunotkun og með gott vald á íslensku í ræðu og riti.
Áhersla er lögð á þjónustulund, frumkvæði, fagmennsku og metnað til árangurs í starfi. Við leitum að áhugasömum og
lífsglöðum starfsmanni, sem hefur gaman af mannlegum samskiptum og vill vinna í síbreytilegu og lifandi starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2020. Gengið verður frá ráðningu fljótlega.
Umsóknir og meðfylgjandi gögn sendist til stra@stra.is.
Guðný Harðardóttir veitir frekari upplýsingar í síma 588 3031 milli kl. 13-15 alla virka daga meðan á umsóknarferlinu stendur.
Eignaumsjón er 20 ára leiðandi þekkingarfyrirtæki í þjónustu við eigendur fasteigna og hefur umsjón með daglegum rekstri
yfir 600 hús- og rekstrarfélaga. Félagið býður heildarlausnir við rekstur fjöleignarhúsa, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og
kemur hlutlaust og faglega að lausn mála. Áherslur okkar til framtíðar eru að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með
góðri þjónustu og skilvirkum lausnum sem byggja á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum.
Eignaumsjón hf. – Suðurlandsbraut 30 – 108 Reykjavík – sími 585 4800 – www.eignaumsjon.is
Framkvæmdastjóri
eldvarnasviðs
Vilt þú taka þátt í að byggja upp
framsækinn vinnustað sem leggur
áherslu á nýsköpun, aðgengi
upplýsinga og stafrænar lausnir?
Við leitum að öflugum stjórnanda til að leiða nýtt svið eldvarna
og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar á sviði húsnæðis-
og mannvirkjamála á Íslandi. Eldvarnasvið verður staðsett á
starfsstöð HMS á Sauðárkróki.
Hlutverk sviðsins er að sinna lögbundnu eftirliti og samræm
ingarhlutverki á sviði eldvarna. Sviðið hefur eftirlit með slökkvi
starfi á Íslandi, samþykkir brunavarnaáætlanir sveitarfélaga,
annast rannsóknir, fræðslu og forvarnir á sviði eldvarna og
sér um útgáfu leyfa. Eldvarnasvið ber jafnframt ábyrgð á
starfrækslu Brunamálaskólans.
hms.is
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Leiða og þróa hlutverk nýs eldvarnasviðs HMS
• Skipulagning og samræming eftirlits með
öryggisþáttum bygginga á sviði eldvarna
• Þátttaka í undirbúningi reglugerða og gerð
leiðbeininga á sviði eldvarna
• Yfirumsjón með úttektum á slökkviliðum og
búnaði slökkviliða
• Yfirumsjón með öllu námi innan Brunamála
skólans og forvörnum um eldvarnir
• Ráðgjöf til stjórnvalda og hagsmunaaðila um
eldvarnir
Hæfnikröfur
• Meistarapróf í byggingarverkfræði, sambærileg
menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð
reynsla af brunamálum
• Forystuhæfileikar og drifkraftur
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð
• Hæfni til að stýra breytingum og teymisvinnu
• Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
• Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar:
Sigrún Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri
gæðastjórnunar og mannauðs
Netfang: sigrun.thorleifsdottir@hms.is
Sími: 440 6400
Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning
ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga.
Í ráðningar ferlinu verður óskað eftir að
umsækjendur skili sakavottorði. Hafi
um sækjandi verið fundinn sekur um refsi
verða háttsemi getur það orðið til þess að
viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna
starfinu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur
karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Umsóknir skulu sendar á netfangið:
starfsumsokn@hms.is
Umsóknum skal fylgja:
Starfsferilsskrá
Kynningarbréf
Umsóknarfrestur:
Til og með 30. júní
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út.
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R