Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 36

Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 36
Verkfræðingur Tæknifræðingur Eignaumsjón hf. óskar eftir að ráða byggingarverkfræðing eða tæknifræðing til starfa. Helstu verkefni eru: » Stuðningur við Þjónustuver og ráðgjafasvið innan Eignaumsjónar » Ráðgjöf til hússtjórna við undirbúning viðhaldsframkvæmda » Greining á rekstrarkostnaði fasteigna og ráðgjöf til hússtjórna » Almenn ráðgjöf og upplýsingagjöf til viðskiptavina Eignaumsjónar » Önnur fjölbreytt dagleg störf Hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði byggingarmála og kostur er að viðkomandi hafi haldgóða reynslu af rekstri og viðhaldi fasteigna. Reynsla af samningsgerð og samskiptum við verktaka og þjónustuaðila á byggingamarkaði er æskileg. Umsækjendur þurfa að vera töluglöggir, vanir tölvunotkun og með gott vald á íslensku í ræðu og riti. Áhersla er lögð á þjónustulund, frumkvæði, fagmennsku og metnað til árangurs í starfi. Við leitum að áhugasömum og lífsglöðum starfsmanni, sem hefur gaman af mannlegum samskiptum og vill vinna í síbreytilegu og lifandi starfsumhverfi. Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2020. Gengið verður frá ráðningu fljótlega. Umsóknir og meðfylgjandi gögn sendist til stra@stra.is. Guðný Harðardóttir veitir frekari upplýsingar í síma 588 3031 milli kl. 13-15 alla virka daga meðan á umsóknarferlinu stendur. Eignaumsjón er 20 ára leiðandi þekkingarfyrirtæki í þjónustu við eigendur fasteigna og hefur umsjón með daglegum rekstri yfir 600 hús- og rekstrarfélaga. Félagið býður heildarlausnir við rekstur fjöleignarhúsa, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og kemur hlutlaust og faglega að lausn mála. Áherslur okkar til framtíðar eru að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með góðri þjónustu og skilvirkum lausnum sem byggja á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum. Eignaumsjón hf. – Suðurlandsbraut 30 – 108 Reykjavík – sími 585 4800 – www.eignaumsjon.is Framkvæmdastjóri eldvarnasviðs Vilt þú taka þátt í að byggja upp framsækinn vinnustað sem leggur áherslu á nýsköpun, aðgengi upplýsinga og stafrænar lausnir? Við leitum að öflugum stjórnanda til að leiða nýtt svið eldvarna og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála á Íslandi. Eldvarnasvið verður staðsett á starfsstöð HMS á Sauðárkróki. Hlutverk sviðsins er að sinna lögbundnu eftirliti og samræm­ ingarhlutverki á sviði eldvarna. Sviðið hefur eftirlit með slökkvi­ starfi á Íslandi, samþykkir brunavarnaáætlanir sveitarfélaga, annast rannsóknir, fræðslu og forvarnir á sviði eldvarna og sér um útgáfu leyfa. Eldvarnasvið ber jafnframt ábyrgð á starfrækslu Brunamálaskólans. hms.is Starfs- og ábyrgðarsvið • Leiða og þróa hlutverk nýs eldvarnasviðs HMS • Skipulagning og samræming eftirlits með öryggisþáttum bygginga á sviði eldvarna • Þátttaka í undirbúningi reglugerða og gerð leiðbeininga á sviði eldvarna • Yfirumsjón með úttektum á slökkviliðum og búnaði slökkviliða • Yfirumsjón með öllu námi innan Brunamála­ skólans og forvörnum um eldvarnir • Ráðgjöf til stjórnvalda og hagsmunaaðila um eldvarnir Hæfnikröfur • Meistarapróf í byggingarverkfræði, sambærileg menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð reynsla af brunamálum • Forystuhæfileikar og drifkraftur • Reynsla af stjórnun og rekstri • Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð • Hæfni til að stýra breytingum og teymisvinnu • Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar • Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Nánari upplýsingar: Sigrún Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri gæðastjórnunar og mannauðs Netfang: sigrun.thorleifsdottir@hms.is  Sími: 440 6400 Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Í ráðningar ferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi um sækjandi verið fundinn sekur um refsi­ verða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið: starfsumsokn@hms.is Umsóknum skal fylgja: Starfsferilsskrá Kynningarbréf Umsóknarfrestur: Til og með 30. júní Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.