Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 69
Mígreni er hvimleiður sjúk-dómur sem getur haft veruleg áhrif á líf fólks,“
segir Sigrún Sif, lyfjafræðingur hjá
LYFIS. „Lyfjameðferð við mígreni
skilar oft góðum árangri ef lífsstíls-
breytingar duga ekki til.“
Mígreni
Mígreni er slæmt höfuðverkjakast
sem er oft öðrum megin í höfðinu
með þungum æðaslætti. Önnur
einkenni mígrenis geta meðal
annars verið ógleði, uppköst, sjón-
truflanir og ljós- og hljóðnæmni.
Mígrenikast getur varað í nokkrar
klukkustundir og í mjög slæmum
tilvikum getur það varað í nokkra
daga.
„Enn er margt á huldu um
orsakir mígrenis. Áður var talið
að orsök mígrenis væri eingöngu
tímabundin æðavíkkun í höfð-
inu,“ segir Sigrún Sif. „Nýlegri
rannsóknir sýna hins vegar að
orsök mígrenis sé einnig oförvun
í þrenndartauginni, en þrenndar-
taugin er stærsta heilataugin.”
Það eru ýmsir þættir sem geta
valdið mígreni: erfðaþættir,
hormónaójafnvægi og umhverfis-
og lífsstílsþættir eins og stress
og þreyta. Sumir fá fyrirboða-
einkenni eins og sjóntruflanir,
máltruflanir og doða í andlit eða
hendur.
Greining á mígreni er byggð á
heilsufarssögu viðkomandi og er
mígreni oft f lokkað sem mígreni
með fyrirboðaeinkennum eða
mígreni án fyrirboðaeinkenna.
Sumatriptan Apofri
Sumatriptan Apofri er notað sem
bráðameðferð við mígreniköstum,
með eða án fyrirboðaeinkenna.
„Lyf við mígreniköstum hafa
aðeins verið fáanleg gegn lyfseðli
frá lækni og því er kærkomið að
fá Sumatriptan Apofri á markað
sem lausasölulyf,“ upplýsir Sig-
rún Sif. „Lyfið dregur úr víkkun
æða í höfðinu og hamlar virkni í
þrenndartauginni.“
Sumatriptan Apofri 50 mg
töflur eru fáanlegar í tveggja
stykkja pakkningu og er ráðlagður
skammtur 1 tafla eins fljótt og
hægt er eftir að mígrenikast hefst.
Virkni lyfsins er óháð því á hvaða
stigi kastsins það er tekið.
Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og fylgiseðli, fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir.
Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á serlyfjaskra.is. Apofri AB.
APO200501-maí 2020.
Góð hjálp fyrir þá sem fá mígreni
Sumatriptan Apofri er lyf við mígreniköstum og fæst án lyfseðils í apótekum. Lyf sem ætluð eru
sérstaklega við mígreniköstum hafa hingað til eingöngu verið fáanleg gegn lyfseðli frá lækni.
Mígreni er hvimleiður sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á daglegt líf fólks. Sumatriptan Apofri er notað sem bráðameðferð við mígreniköstum, með eða án fyrirboðaeinkenna.
Sumatriptan Apofri lyf við mígreniköstum fæst án lyfseðils í apótekum.
Sigrún Sif, lyfjafræðingur hjá LYFIS, segir enn margt á huldu um mígreni.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0