Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 8
Það kemur á óvart
hvað eignir á
þessum stöðum eru að
seljast langt undir auglýstu
verði.
Páll Heiðar
Pálsson,
fasteignasali
VIÐSKIPTI Fasteignir í Þingholtun-
um, Skuggahverfinu og „Tungunni“
svokölluðu í miðbæ Reykjavíkur
seljast síst á ásettu verði. Samkvæmt
tölum fjártæknifyrirtækisins Two
Birds sem sérhæfir sig í gögnum um
fasteignamarkaðinn, seldust fast-
eignir í f lestum hverfum og bæjar-
félögum á lægra verði en ásettu, frá
júlí í fyrra til júní í ár.
Mesti munurinn var á eignum
í Þingholtunum í Reykjavík, þar
seldust fasteignir að meðaltali á
tæplega 16 prósent lægra verði en
var sett á eignina og 10 prósent í
Skuggahverfinu. Í Tungunni, svæð-
inu sunnan Laugavegar að Snorra-
braut, var munurinn yfir 7 prósent
að meðaltali.
Að meðaltali seldust eignir í Þing-
holtunum á átta milljónir króna
undir ásettu verði, 5,5 milljónir í
Skuggahverfinu og 3,3 milljónir í
Tungunni.
Við söfnun gagnanna var einung-
is tekið mið af mun þar sem 20 eða
fleiri sölur voru gerðar.
Munurinn var einnig mikill í
Norðurbrekkunni á Akureyri, þar
var ásett verð að meðaltali um 8,7
prósent hærra en söluverð. Í Borgar-
byggð og á Reyðarfirði var munur-
inn tæplega 7 prósent.
Á höfuðborgarsvæðinu minnkar
munurinn því fjær sem dregur mið-
bænum, að Hjallahverfi í Kópavogi
undanskildu, þar var munurinn
yfir sex prósent. Munurinn mælist
hátt í sex prósent í Vesturbænum og
Laugarási.
Munurinn mælist undir tveimur
prósentum í Mosfellsbæ, Linda-
hverfi í Kópavogi, Teiga- og Rima-
hverfi í Reykjavík, Akureyri, að
Síðuhverfi og Norðurbrekkunni
undanskildum, Egilsstöðum og
Reykjanesbæ.
„Það kemur á óvart hvað eignir á
þessum stöðum eru að seljast langt
undir auglýstu verði. 80,3 prósent af
eignum seljast undir auglýstu verði
og 38 prósent af nýbyggingum selst
undir auglýstu verði og meðal sölu-
tíminn er um 84 dagar. 14,6 prósent
af nýjum eignum seldust yfir ásettu
verði,“ segir Páll Heiðar Pálsson
fasteignasali.
„Algengt er að eignir seljist á 2
til 5 prósent undir auglýstu verði.
Þegar eignir seljast á svo mikið frá
auglýstu verði eru það oft væntingar
seljanda um verð sem eru töluvert
hærri en markaðurinn er tilbúinn
að greiða fyrir eignina.“
Fram kemur í skýrslu hagdeildar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
fyrir júnímánuð að íbúðaverð hafi
hækkað um 3,4 prósent að nafnvirði
milli ára. Hefur það hækkað um 1,4
prósent í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins en staðið í stað á lands-
byggðinni.
Varðandi Þingholtin bendir Páll
á að verðið hafi lækkað talsvert frá
því í desember. „Meðalfermetra-
verð í Þingholtunum var um 509
þúsund krónur í fjölbýli. Í apríl
2019 var meðal fermetraverð í 101
Reykjavík um 560 þúsund í fjölbýli
en var komið niður í 551 þúsund í
apríl í ár og hefur lækkað töluvert
frá því það náði hæst í desember
2019 þegar það var um 672 þúsund
krónur.“ arib@frettabladid.is
Fá síst ásett verð í miðbænum
Fasteignir í miðbæ Reykjavíkur, þá sérstaklega Þingholtunum, seljast síst á ásettu verði, samkvæmt
tölum Two Birds. Fasteignasali segir koma á óvart hvað eignir í hverfinu seljist langt undir ásettu verði.
Fasteignir í Þingholtum, Skuggahverfi og Tungunni í Reykjavík seljast síst á ásettu verði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ársfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Kosning stjórnar og varamanna
4. Tryggingafræðileg athugun
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
- Kynning á fyrirkomulagi rafrænna kosninga
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins, upplýsingar um frambjóðendur
til stjórnar og aðrar upplýsingar um fundinn má nálgast á frjalsi.is.
Sjóðfélagar þurfa að framvísa skilríkjum með mynd við skráningu
inn á fundinn.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn
þriðjudaginn 23. júní kl. 17.15 í Silfurbergi í Hörpu.
SAMFÉLAG Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, Klúbbur matreiðslumeistara
og Íslenska Bocuse d’Or Akademí-
an, undirrituðu í gær samning um
veglegt framlag atvinnuvega- og
nýsköpu na r r áðu ney t isins t i l
keppnismatreiðslu. Skrifað var
undir samninginn í Súlnasal Hótel
Sögu og hristu landsliðskokkarnir
nokkra stórkostlega rétti fram úr
erminni af því tilefni. Samningur-
inn er sá fyrsti sinnar tegundar og er
samningsfjárhæð samtals 40 millj-
ónir króna á tveggja ára tímabili.
Með samningnum er Klúbbi mat-
reiðslumeistara og Íslensku Bocuse
d’Or Akademíunni falið að vinna
að því að kynna íslenskt hráefni á
erlendri grundu og styrkja ímynd
Íslands sem mataráfangastaðar.
Styrkhafar munu einnig vinna að
því að ef la vöruþróun, nýsköpun
og fagþekkingu í matvælagreinum.
Eliza Reid, forsetafrú og verndari
kokkalandsliðsins, sagðist vera
stolt af íslenskri matarmenningu
og reyna að koma henni á framfæri
hvenær sem tækifæri gefst. „Ég vil
hrósa kokkalandsliðinu á þessum
degi fyrir að fá f leiri stelpur til að
taka þátt og það finnst mér frá-
bært,“ sagði Eliza meðal annars.
„Kokkalandsliðið er búið að ná
eftirtektarverðum árangri að und-
anförnu. Íslensk matarmenning
og hefðir eru ein besta leiðin til að
kynnast Íslandi, bæði hér heima og
erlendis.“
Friðgeir Ingi Eiríksson, formaður
Klúbbs matreiðslumanna, segir
þetta stóran áfanga fyrir íslenska
keppnismatreiðslu og muni skapa
betra starfsumhverfi fyrir hana.
„Með samningnum er keppnismat-
reiðslu gefið aukið vægi, sem mun
skila sér í enn betri kynningu á
íslenskum hráefnum og efla matar-
menningu hérlendis.“
Upphæðin er töluverð en Kristján
Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, segir að þetta
styðji við landbúnað, sjávarútveg
og matvælaframleiðslu og íslenskt
þjóðlíf. Það sé því auðvelt að rétt-
læta þennan styrk. „Við erum ekki
örlát á styrki út úr þessu ráðuneyti,
en það er í mínum huga auðvelt að
réttlæta það með hvaða hætti við
erum að koma að þessu.“ – bb
Landslið fær 40 milljónir
Eliza Reid forsetafrú hélt ræðu í tilefni undirritunar samnings um stuðning-
inn, en hún er verndari kokkalandsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FRAKKLAND Franskir kvikmynda-
leikarar mega kyssast á nýjan leik
í upptökum fyrir kvikmyndir og
sjónvarpsþætti. En aðeins ef þeir
hafa báðir verið prófaðir fyrir kór-
ónaveirunni.
Kossar spila stóra rullu í franskri
menningu og ekki að ástæðulausu
að tungukossar eru gjarnan kallaðir
franskir.
„Nei, kossinn er ekki búinn að
vera,“ sagði Franck Riester, menn-
ingarmálaráðherra Frakklands,
þegar hann var spurður í útvarps-
þætti hvort félagsforðun vegna
COVID-19 væri að drepa ástarsenur
kvikmyndanna.
Sagði Riester að kossinn væri
ákaflega mikilvægur franskri kvik-
myndagerð, sem er sú umfangs-
mesta í Evrópu. En hann vildi þó
ekki upplýsa hvaða leikarar hefðu
túlkað fyrsta kvikmyndakossinn
eftir að það var heimilt á nýjan leik
en kvikmyndahús verða bráðum
opnuð í landinu eftir þriggja mán-
aða lokun. Aðeins má hleypa helm-
ingi færra fólki inn en vanalega.
Samkvæmt sóttvarnaleiðbein-
ingum Frakklands er almenningur
hvattur til að kyssast ekki, hvorki
með tungu né á kinn. Handabönd
hafa einnig verið sett út af sakra-
mentinu ásamt f leiri tjáningar-
formum nándar. – khg
Franski kossinn
leyfður aftur
Depardieu og Hüppert í Cannes.
2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð