Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.06.2020, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 20.06.2020, Qupperneq 42
Fleiri verk kalla á fleiri starfsmenn, við leitum því af faglærðum smiðum til starfs. Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir starfsmanni í mötuneyti í fullt starf. Sjá nánari upplýsingar á starfatorg.is. Aðstoðarskólastjóri Djúpavogsskóli auglýsir eftir aðstoðarskólastjóra Áherslur Djúpavogsskóla eru í takt við hugmyndafræði Cittáslow með velferð og vellíðan að leiðarljósi. Starfsandinn er góður og tækifærin mörg fyrir einstak­ linga sem eru tilbúnir að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í skapandi vinnu. Skólinn er í mikilli þróun og á næsta skólaári verður áherslan meðal annars á teymis­ og úti­ kennslu, grenndarnám, núvitund og nýskapandi vinnu. Við leitum að aðstoðarskólastjóra sem hefur farsæla starfsreynslu, er tilbúinn að taka þátt í samrýmdu teymi stjórnenda, taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans. Aðstoðarskólastjóri í Djúpavogsskóla er staðgengill skóla­ stjóra, hefur umsjón með stoðþjónustu, tekur þátt í að leiða faglega þróun og hefur kennsluskyldu. Menntunar- og hæfnikröfur: • Umsækjendur þurfa að hafa kennsluréttindi. • Framhaldsmenntun í stjórnun er kostur. • Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum, hafa gott vald á íslenskri tungu, vera sjálf­ stæðir í vinnubrögðum og geta nýtt sér upplýsingatækni í störfum sínum. • Umsóknir sendist á skolastjori@djupivogur.is ásamt kynningarbréfi. Laun greiðast skv. kjarasamningi SÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kennari í hönnun og smíði Einnig er laus staða kennara í hönnun og smíði. Í haust opnar nýbygging við skólanns sem hýsir m.a. nýja aðstöðu fyrir kennslu í hönnun og smíði. Framtíðarsýn skólans á þróun kennsluhátta í greininni fylgir eflingu nýsköpunar í skólanum. Menntunar- og hæfnikröfur: • Umsækjendur þurfa að hafa kennsluréttindi. • Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum, hafa gott vald á íslenskri tungu, vera sjálf­ stæðir í vinnubrögðum og geta nýtt sér upplýsingatækni í störfum sínum. • Umsóknir sendist á skolastjori@djupivogur.is Laun greiðast skv. kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar um störfin veitir Signý Óskarsdóttir skólastjóri Djúpavogsskóla, skolastjori@djupivogur.is Umsóknarfrestur fyrir bæði störfin er t.o.m. 29. júní 2020. BYGG offer you a job Mechanic To fix heavy machinery and small machines Information Gudjon S:617-3000 gudjon@bygg.is Ground worker Used to work around Heavy machinery Laying blocks and work around pipes Information, Gudjon S:617-3000 www.bygg.is guðjon@bygg.is BYGG byggir á 32 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði. Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG) hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000 glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 200 manns og er meðalstarfsaldur hár. Öll verkefni fyrirtækisins eru á höfuðborgarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu er öflugt starfsmannafélag. Traust atvinna í boði. Barnið er að byrja í skóla - Verkefnisstjóri innritunar Skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir verkefnisstjóra innritunar í leikskóla, grunnskóla og á frístunda- heimili Reykjavíkurborgar. Verkefnisstjórinn ber ábyrgð á innritun, greiningu gagna og tölfræðilegri upplýsingagjöf auk þess sem almenn upplýsingagjöf og aðstoð vegna innritunar við foreldra og stjórnendur starfseininga sviðsins er ríkur þáttur í starfinu. Á komandi skólaári verður lögð sérstök áhersla á þróunarverkefni sem felst í stafrænni þjónustu. Verkefnisstjóri innritunar er einn lykilaðila í stafrænni vegferð sviðsins. Verkefnisstjórinn er hluti af teymi starfsmanna á skrifstofu sviðsstjóra. Hlutverk skrifstofunnar er m.a. að hafa yfirsýn yfir framkvæmd stefnumörkunar í skóla- og frístundastarfi, öflun og miðlun tölfræðilegra upplýsinga og niðurstaða rannsókna á skóla- og frístundastarfi, umsjón með daglegum rekstri skrifstofu sviðsins, skjalamálum, gæðamálum og skipulagi stærri viðburða. Verkefnisstjórinn vinnur einnig í nánu samstarfi við fagskrifstofu og aðrar starfseiningar sviðsins. Skóla- og frístundasvið veitir börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og annast m.a. rekstur leikskóla, grunn- skóla, frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita auk umsjónar með daggæslu. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Helstu verkefni: • Umsjón með innritun í leikskóla, biðlistum eftir leikskóla- dvöl og flutningi á milli leikskóla. • Umsjón með nemendaskrá nemenda á grunnskólaaldri, skólasögu, eftirliti vegna skólaskyldu, innritun og skóla- skiptum. • Umsjón með skrá barna sem dvelja á frístundaheimilum og þátttaka í innritun. • Upplýsingagjöf og aðstoð vegna innritunar til foreldra, stjórnenda og annarra samstarfsaðila innan borgar og utan. • Vinnsla barna- og nemendatalna s.s. vegna stefnumót- unar, fjárhagsáætlunargerðar og eftirlits. • Þátttaka í stafrænni vegferð sviðsins í þróun á verklagi og umsjónarkerfum innritunar. • Fræðsla og þjálfun starfsmanna sviðsins á umsjónar- kerfum innritunar. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Reynsla sem nýtist í starfi, sbr. helstu verkefni. • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum sam- skiptum. • Góð hæfni og þekking í notkun mismunandi tölvukerfa. • Áhugi og geta til virkrar þátttöku í stafrænni þróun skóla- og frístundasviðs. • Greiningarhæfni og færni í framsetningu og miðlun upp- lýsinga. • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð. • Skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri í starfi. • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Starfið er laust frá 10. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2020. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu sviðsstjóra, sími 6648470. Netfang: adalbjorg.disa.gudjonsdottir@reykjavik.is. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.