Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 42
Fleiri verk kalla á fleiri starfsmenn,
við leitum því af faglærðum
smiðum til starfs.
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir
starfsmanni í mötuneyti í fullt starf.
Sjá nánari upplýsingar á starfatorg.is.
Aðstoðarskólastjóri
Djúpavogsskóli auglýsir eftir aðstoðarskólastjóra
Áherslur Djúpavogsskóla eru í takt við hugmyndafræði
Cittáslow með velferð og vellíðan að leiðarljósi.
Starfsandinn er góður og tækifærin mörg fyrir einstak
linga sem eru tilbúnir að vinna eftir stefnu skólans og taka
þátt í skapandi vinnu. Skólinn er í mikilli þróun og á næsta
skólaári verður áherslan meðal annars á teymis og úti
kennslu, grenndarnám, núvitund og nýskapandi vinnu.
Við leitum að aðstoðarskólastjóra sem hefur farsæla
starfsreynslu, er tilbúinn að taka þátt í samrýmdu teymi
stjórnenda, taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu
og framtíðarsýn skólans.
Aðstoðarskólastjóri í Djúpavogsskóla er staðgengill skóla
stjóra, hefur umsjón með stoðþjónustu, tekur þátt í að
leiða faglega þróun og hefur kennsluskyldu.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Umsækjendur þurfa að hafa kennsluréttindi.
• Framhaldsmenntun í stjórnun er kostur.
• Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni í mannlegum
samskiptum, hafa gott vald á íslenskri tungu, vera sjálf
stæðir í vinnubrögðum og geta nýtt sér upplýsingatækni
í störfum sínum.
• Umsóknir sendist á skolastjori@djupivogur.is
ásamt kynningarbréfi.
Laun greiðast skv. kjarasamningi SÍ og Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Kennari í hönnun og smíði
Einnig er laus staða kennara í hönnun og smíði. Í haust
opnar nýbygging við skólanns sem hýsir m.a. nýja aðstöðu
fyrir kennslu í hönnun og smíði. Framtíðarsýn skólans á
þróun kennsluhátta í greininni fylgir eflingu nýsköpunar í
skólanum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Umsækjendur þurfa að hafa kennsluréttindi.
• Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni í mannlegum
samskiptum, hafa gott vald á íslenskri tungu, vera sjálf
stæðir í vinnubrögðum og geta nýtt sér upplýsingatækni
í störfum sínum.
• Umsóknir sendist á skolastjori@djupivogur.is
Laun greiðast skv. kjarasamningi KÍ og Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Signý Óskarsdóttir
skólastjóri Djúpavogsskóla, skolastjori@djupivogur.is
Umsóknarfrestur fyrir bæði störfin er t.o.m. 29. júní 2020.
BYGG offer you a job
Mechanic
To fix heavy machinery and small machines
Information Gudjon S:617-3000 gudjon@bygg.is
Ground worker
Used to work around Heavy machinery
Laying blocks and work around pipes
Information, Gudjon S:617-3000
www.bygg.is
guðjon@bygg.is
BYGG byggir á 32 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG)
hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000
glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið
hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara
og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 200 manns og er
meðalstarfsaldur hár. Öll verkefni fyrirtækisins eru
á höfuðborgarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu er öflugt
starfsmannafélag. Traust atvinna í boði.
Barnið er að byrja í skóla - Verkefnisstjóri innritunar
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir verkefnisstjóra innritunar í leikskóla, grunnskóla og á frístunda-
heimili Reykjavíkurborgar. Verkefnisstjórinn ber ábyrgð á innritun, greiningu gagna og tölfræðilegri upplýsingagjöf auk
þess sem almenn upplýsingagjöf og aðstoð vegna innritunar við foreldra og stjórnendur starfseininga sviðsins er ríkur
þáttur í starfinu.
Á komandi skólaári verður lögð sérstök áhersla á þróunarverkefni sem felst í stafrænni þjónustu. Verkefnisstjóri innritunar
er einn lykilaðila í stafrænni vegferð sviðsins.
Verkefnisstjórinn er hluti af teymi starfsmanna á skrifstofu sviðsstjóra. Hlutverk skrifstofunnar er m.a. að hafa yfirsýn yfir
framkvæmd stefnumörkunar í skóla- og frístundastarfi, öflun og miðlun tölfræðilegra upplýsinga og niðurstaða rannsókna
á skóla- og frístundastarfi, umsjón með daglegum rekstri skrifstofu sviðsins, skjalamálum, gæðamálum og skipulagi stærri
viðburða. Verkefnisstjórinn vinnur einnig í nánu samstarfi við fagskrifstofu og aðrar starfseiningar sviðsins.
Skóla- og frístundasvið veitir börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og annast m.a. rekstur leikskóla, grunn-
skóla, frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita auk umsjónar með daggæslu.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Helstu verkefni:
• Umsjón með innritun í leikskóla, biðlistum eftir leikskóla-
dvöl og flutningi á milli leikskóla.
• Umsjón með nemendaskrá nemenda á grunnskólaaldri,
skólasögu, eftirliti vegna skólaskyldu, innritun og skóla-
skiptum.
• Umsjón með skrá barna sem dvelja á frístundaheimilum og
þátttaka í innritun.
• Upplýsingagjöf og aðstoð vegna innritunar til foreldra,
stjórnenda og annarra samstarfsaðila innan borgar og
utan.
• Vinnsla barna- og nemendatalna s.s. vegna stefnumót-
unar, fjárhagsáætlunargerðar og eftirlits.
• Þátttaka í stafrænni vegferð sviðsins í þróun á verklagi og
umsjónarkerfum innritunar.
• Fræðsla og þjálfun starfsmanna sviðsins á umsjónar-
kerfum innritunar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Reynsla sem nýtist í starfi, sbr. helstu verkefni.
• Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum sam-
skiptum.
• Góð hæfni og þekking í notkun mismunandi tölvukerfa.
• Áhugi og geta til virkrar þátttöku í stafrænni þróun skóla-
og frístundasviðs.
• Greiningarhæfni og færni í framsetningu og miðlun upp-
lýsinga.
• Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð.
• Skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri í starfi.
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Starfið er laust frá 10. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2020.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags. Umsækjendur eru
beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu sviðsstjóra, sími 6648470.
Netfang: adalbjorg.disa.gudjonsdottir@reykjavik.is.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.