Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 17

Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 17
ÍÞRÓTTIR Guðrún Helga Magnús- dóttir tók við formennsku í Ung- mennasambandi Vestur-Hún- vetninga (USV H) af Reimar i Marteinssyni, sem setið hafði á for- mannsstólnum síðastliðin sex ár. Guðrún er 23 ára og meðal yngstu formanna sambandsaðila og aðild- arfélaga UMFÍ. Í tilkynningu frá UMFÍ segir að Guðrún sé aðf lutt fyrir tíu árum. Þó eigi hún rætur að rekja til Mið- fjarðar, þaðan sé faðir hennar, séra Magnús Magnússon, og í sveitinni hafi hún haft annan fótinn í æsku. Guðrún er jógakennari og zumba- kennari og er nýútskrifaður nudd- ari, með bakgrunn í körfubolta, fót- bolta og spretthlaupum. „Við tökum öll að okkur ýmislegt í sveitinni og leggjumst saman á eitt. Húnaþing er lítið en öflugt samfélag þar sem allir þekkja alla og vita hvernig á að nýta styrkleika fólks. Ég var opin fyrir því að koma í stjórnina, finnst gaman að vera í forystu og er að safna í reynslubankann,“ segir Guðrún. Sambandssvæði USVH er Húna- þing vestra, Miðfjörður og þar á meðal Hvammstangi. Innan USVH eru fimm aðildarfélög. Guðrún Helga situr í stjórn Ungmenna- félagsins Grettis í Miðfirði ásamt tveimur öðrum konum og er gjald- keri félagsins. Ungmennafélagið Grettir sér meðal annars um rétta- ballið í sveitinni og jólabingó og félagsvist á milli jóla og nýárs. Athygli vekur jafnframt að Guðrún Helga er ný í stjórn USVH. „Kona sem vinnur með mér bað mig um að koma í stjórnina. Ég var opin fyrir því af því að hér gera allir allt,“ segir hún, en bætir við að hún hafi ekki komist á þingið og ekki vitað niðurstöðuna strax. „Daginn eftir var fólk sem ég hitti alltaf að óska mér til hamingju. Það kom mér á óvart því ég vissi ekki að fólk væri svona ánægt með að ég væri orðin formaður,“ segir hún. – bb Tuttugu og þriggja ára kjörin formaður USVH Guðrún Helga á rætur að rekja til Miðfjarðar. Þar hefur hún ávallt haft annan fótinn. MYND/UMFÍ FÓTBOLTI Þýski landsliðsmaðurinn Leroy Sane ætlar að yfirgefa Man- chester City og halda á vit ævintýr- anna. Pep Guardiola, knattspyrnu- stjóri Manchester City, staðfesti för hans í gær. Samningur Sane rennur út næsta sumar en kappinn hefur ekki spilað síðan hann meiddist í leiknum um Samfélagsskjöldinn í ágúst í fyrra. Hann sat á bekknum gegn Arsenal allan leikinn. „Hann vill fara í annað félag. Ég veit ekki hvort hann mun fara núna í sumar eða næsta sumar, þegar samningur hans rennur út. Hann er góður drengur og mér þykir mjög vænt um hann. En hann vill önnur ævintýri,“ sagði Guardiola. Líkleg- asti áfangastur Sane er FC Bayern en hann hefur verið orðaður við þýsku risana í töluverðan tíma. Hann var sagður stutt frá því að ganga frá samningi við félagið skömmu áður en hann meiddist. – bb Sane vill fara frá Manchester City Leroy Sane, leikmaður Man. City. FÓTBOLTI Kynningarfundur fyrir Lengjudeild karla var haldinn í höfuðstöðvum KSÍ í gær þar sem ÍBV var spáð sigri og því að f ljúga upp í deild þeirra bestu á ný. Liðið féll síðasta sumar. Formenn, þjálf- arar og fyrirliðar spá Keflavík með ÍBV upp, en Leiknir F., og Magni fara niður samkvæmt spánni. Grindavík sem féll með ÍBV síðasta sumar endar í þriðja sæti en Vestri sem kom upp úr annarri deildinni heldur sæti sínu og endar í áttunda sæti, gangi spáin eftir. – bb ÍBV flýgur aftur upp í efstu deild Víðir Þorvarðarson, leikmaður ÍBV. 1. ÍBV 410 2. Keflavík 360 3. Grindavík 329 4. Leiknir R. 304 5. Fram 272 6. Þór 247 7. Víkingur Ó. 201 8. Vestri 137 9. Afturelding 134 10. Þróttur R. 109 11. Leiknir F. 105 12. Magni 72 ✿ Spá forráðamanna Lið Stig MENNINGARNOTT.IS Í ár höldum við Menningarnótt með breyttu sniði. Hátíðin dreist yr 10 daga og fer fram 13.- 23. ágúst. Borgarbúar geta því notið hátíðarinnar dag eftir dag, nótt eftir nótt. Við auglýsum eftir frumlegum hugmyndum til að fylla inn í nýstárlegt viðburðalandslag Menningarnætur 2020. Veittir eru styrkir á bilinu 100.000 - 500.000 kr. Listafólk, íbúar, rekstraraðilar, félagasamtök og allir áhugasamir geta sótt um styrki til að lífga upp á miðborgina á þessari þátttökuhátíð sem borgarbúar skapa og upplifa saman. MENNINGARNÓTT EFTIR NÓTT ERT ÞÚ MEÐ GÓÐA HUGMYND? KOMDU Í POTTINN! Nánari upplýsingar veita viðburðastjórar Reykjavíkurborgar í síma 411 6010 og á menningarnott@reykjavik.is. Hægt er að sækja um í Menningarnæturpottinn á menningarnott.is til 3. júlí. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans sem hefur verið máttarstólpi hátíðarinnar frá uppha. Við hlökkum til að gleðjast saman, nótt eftir nótt. S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17L A U G A R D A G U R 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.