Íþróttablaðið - 01.12.1935, Síða 10
8
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Valur vann íslandsmótiS, B-liös mótiö og haustmót
2. flokks. K. R. vann vor- og haustmót 3. flokks
og Fram vann vormót 2. flokks. Knattspyrnumót
Reykjavíkur féll niöur aö þessu sinni vegna utan-
fara og heimsóknar knattspyrnumanna.
Knattspyrnufélagiö Valur fór til Noröurlanda í
júní-mánuöi, eftir aö hafa hlotið titilinn „Besta
knattspyrnufélag Islands“ á þá nýloknu Islands-
móti. Þó að Valur færði okkur ekki sigurinn heirn,
þá fengu þeir rnjög góða dóma erlendis. Utanför
þeirra hefir markað nýtt tímamót í sögu félagsins
og aukiö mjög á félagslífið.
Úrvalsflokkur Þjóöverja kom hingað þann 13.
júlí og kepti 4 kappleiki, auk eins sýningarleiks.
Það munu allir sammála urri það, að þetta er sá
fcesti knattspyrnuflokkur, sem hingað hefir komiö.
Leikni þeirra og framkoma var aödáunarverö og
til eftirbreytni fyrir knattspyrnumenn okkar. Þessi
flokkur var boöinn hingaö af knattspyrnufélög-
unum í Reykjavík, fyrir milligöngu Norræna fé-
lagsins þýska, sem svo bauð knattspyrnusveit frá
Reykjavík, til þess að keppa við ýms félög í Þýka-
landi.
SHELL
= BIFREIÐAOLÍUR=:
SINGLE DOUBLE
TRIPLE GOLDEN
HINAR RÉTTU ÞYKKTIR
íslendingarnir fóru utan 7. ágúst og voru 1 mán-
uð í ferðalagdnu. Þeim var mjög vel tekið og nutu
þeir höfðinglegrar gestrisni allan tímann, sem þeir
feröuðust um Þýskaland. Ollum þeirn, sem með
þessum rnálum fylgjast, eru kunn hin sorglegu úr-
slit kappleikjanna við Þjóðverja, og þykir ekki á-
stæða til þess að rifja ]iau upp hér. En hvernig
stóð á þessum óförum ? Hvað höfum við lært á
s. 1. sumri og hvaða verkefni bíða nú knattspyrnu-
manna okkar, til þess að koma í veg fyrir svipað-
ar endurtekningar og að þeir geti komið fram á
erlendri grund þjóð sinni til sóma?
Ritstjórinn hefir góðfúslega lofað mér rúmi í
næsta tölublaði Iþróttablaðsins, og mun ég þá víkja
nánar að þessurn málum.
Áhugi fyrir knattspyrnuíþróttinni hefir verið vax-
andi í flestum kaupstöðum og kauptúnum landsins,
en þrátt fyrir það tók ekkert utanbæjarfélag þátt
í Islandsmótinu, og er það illa farið.
Vonandi sjá Véstmannaeyingar og Akureyringar
sér fært að taka þátt í íslandsmótinu 1936, því að
báðir þessara staða hafa góðum knattspyrnumönn-
um á að skipa. Yfirleitt þarf að takast nánari sam-
vinna á milli- Reykjavíkurfélaganna og félaga úti
á landi um gagnkvæmar heimsóknir, því að þær
eru í öllum tilfellum báðum aðilurn til gagns og
ga.mans.
()11 knattspyrnufélögin i Reykjavík hafa nú byrjað
innan-húss æfingar af kappi, og eftir útliti að dæma
rná búast við spennandi og skemtilegri knattspyrnu
að sumri. Við sjáum hvað setur.
Tómas Pétursson.
Knattspyrnan í Danmörku. Hinn 14. nóv. s. 1.
var staða dönsku knattpyrnufélaganna í meistar- flokki þannig:
Frem . 8 stig
B. 93 • 5 —
A. B • 5 —
Esbjerg • 5 —
A. G. F ■ 5 —
B. 1903 ■ 4 —
Helsingör • 4 —
Aa. B • 3 —
K. B • 3 —
Næstved 2