Íþróttablaðið - 01.12.1935, Page 13
Frá víyslu golfbrautarinnar.
mjög örvandi erindi um golf, og afar fróSlegt, því
aö flestir vi'Sstaddir voru ófróöir um íþróttina.
Hann mælti mjög meÖ kennara þeirn, sem okkur þá
stóö til boða, og talaði þar af eigin reynslu. Hann
taldi íþróttina sinn lífselixír, senr hann illa gæti
hugsað sér að vera án.
Saga G. í. er ekki löng, en hún er með þeim sér-
kennum, að allar yonir hans hafa rætst fyr en djörf-
ustu idealistarnir í stjórninni þorðu aö dagsetja þær.
Þetta er því að þakka, að klúbburinn hefir strax
orðiÖ óskabarn fjölda góðra manna og náð almennri
hylli. Fyrir þetta ber mér sem formanni nú sérstak-
lega að þakka. Eg vil þá fyrst þakka sendiherra
Sveini Björnssyni fyrir hjálp við stofnun klúbbsins
og að hafa stuÖlaÖ aÖ því aÖ við fengum svo á-
gætan kennara, enda þótt hann ætti ekki frum-
kvæðið að því. Því næst vil ég þakka háttvirtum
forsætisráðherra, Hermanni Jónassyni, mikilsverða
hjálp við að ná kennaranum hingað og fyrir ó-
keypis húsnæði fyrir innandyra kensluna og þann
■drengskap að láta ekki flæma klúbbinn þaðan,
meðan við þurfti. í þriðja lagi vil ég þakka kenn-
aranum alia ómetaníega hjálp, auk hans ágætu
kenslu. I fjórða lagi öllum, er klúbbnum hafa gef-
ið cg margvíslega fyrir hann unnið. Það yrði of
langt mál að telja það upp og ekki rétt, þar sem
stjórnin auðvitað væntir enn rneir.
Byrjunarörðugleikar eru að jafnaði talsverðir á
hverju sem er, en líklega óvíða meiri en að korna
af stað golfíþróttinni, því að til þess útheimtist svo
afskaplega margt og kostnaðarsamt. Fyrst þarf a.
m. k. 50 vel stæða og fórnfúsa félaga. 2) góða
kenslu (innandyra helst). 3) Því næst strax golfvöll
og 4) klúbbhús. — Allt þetta höfum við fengið í
dag. Við höfum um 70 félaga. Við höfum haft góða
kenslu, við höfum fengið góðan golfvöll, þótt lítill
sé, og húsið gæti verra verið. —- En í stað þess
að hafa golfvöll, sem er 18 hektarar að stærð og
rúrnar 18 holur, höfunr við golfvöll, sem er aðeins
6 hektarar að stærÖ og rúmar aÖeins 6 holur. Og
í stað þess að klúbburinn eigi völlinn sjálfur, erum
við hér leiguliðar til eins árs og borgurn 2500 kr.
fyrir. Hér er því enn tjaldaÖ til einnar nætur. Jón
heitinn Þorláksson borgarstjóri tók vel í það að