Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1935, Blaðsíða 16

Íþróttablaðið - 01.12.1935, Blaðsíða 16
14 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Vetrar- starfsemi íþróttafélag- anna í R.vík. Erlendur Pétursson, form. K. R. Jón Kaldal, form. í. Ií. Jens Guðbjörnsson, fom. Armanns. íþróttafélögin í Reykjavík hafa nú fyrir nokkru hafiS vetrarstarfsemi sína af fullum krafti. IþróttablaSið hefir haft tal af formönnum þriggja stærstu íþróttafélaganna í bænum, og fer hér á eftir viðtal við þá. K. R. Vér náurn tali af Erlendi Péturssyni formanni K. R., í skrifstofu ,,Sameinaða“, þar sem hann situr við skrifborð sitt þungt hugsandi, með þykk- an bunka af farmskírteinum og öðrum skipspapp- írurn fyrir framan sig. — Konrdu sæll Erlendur, hvað getur ])ú frætt oss um vetrarstarfsemi K. R. ? — Um vetrarstarfsemina er margt að segja, því flokkarnir eru margir, sem æfingar stunda. Fim- leikar eru t. d. iðkaðir í 7 flokkum, 2 drengja- flokkum, 2 telpuflokkum, 2 karlaflokkum og 1 kvenflokki. — Er fullskipað í öllum flokkum? — Já, æfingarnar eru yfirleitt rnjög vel sóttar og áhuginn mikill. -—■ Iðkið þið ekki fleiri íþróttir? — Jú, blessaður vertu. Glíma, róður, knatt- spyrna, hnefaleikar og frjálsar íþróttir eru iðkaðar af miklu kappi og auk þess eru skíðaferðir farnar um hverja helgi, þegar veður og færð leyfir. — Hvaða íþróttakennara hafið þið —• Benedikt Jakobsson kennir fimleika, glímu og frjálsar íþróttir, Guðmundur Ólafsson knatt- spyrnu, en hnefaleika kennir Þorsteinn Gíslason. Eins og ])ú sérö eru þetta alt þaulvanir og góðir kennarar. — Og hvar fara svo allar þessar æfingar frarn? — Auðvitað í K. R. húsinu, það er að segja nerna skíðaferðirnar. Þá fyrst er K. R. húsið of lítið. — Er ekki sérstök stjórn, sem sér um húsið? — Jú, svokölluð húsnefnd. Hana skipa Ólafur Nielsen, Nikulás Jónsson, Björgvin Jónsson, Odd- geir Sveinsson og' Jón Gíslason, en framkvæmdar- stjóri hússins er Kristján L. Gestsson. — Hve margir félagar eru í K. R. — Eg hefi nú ekki við hendina nákvæmar tölur um félagafjöldann, en alls munu skráðir í félaginu 1700—1800 manns, ungir og gamlir. — Hverjir stjórna öllu þessu bákni?

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.