Íþróttablaðið - 01.12.1935, Page 17
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
15
— Auk mín eru í stjórninni: Björgvin Schram,
varaform., Tómas Jóhannsson, ritari, Björn ÞórS-
arson, gjaldkeri, Stefán Þ. GuSmundsson, féhirSir,
SigurSur Olafsson, skrásetjari, og Olafur Þ. Guö-
mundsson, áhaldavörður.
Nú hringir síminn, og vér sjáum aö friöurinn er
úti. Þökkum vér því Erlendi fyrir upþlýsingamar
og kveöjum.
í. R.
Vér leggjum því næst leiö vora upp á Laugaveg
ii og skjótumst inn í ljósmvndastofu Jóns Kaldal,
en hann er svo sem kunnugt er formaöur I. R.
Eftir skamma bið vindur Kaldal sér inn í bið-
stofuna, sporléttur og hvatlegur eins og hlaupara
sæmir.
— Viltu fá mynd af þér, spyr Kaldal.
— Nei, ekki í bili, en getur þú ekki brugöiö upp
fyrir oss mynd af starfsemi í. R. nú í vetur? Hvaöa
íþróttir iðkið þið aöallega?
— Fyrst og fremst fimleika eins og ávalt undan-
farið.
— Hve margir flokkar æfa hjá ykkur?
i. S. í. 1. S. í-
Skjaldarglíma Ármanns
verður háð í Iðnó föstudaginn 31. jan-
úar 1936.
Keppendur gefi sig skriflega fram við
stjórn glímufélagsins Ármann fyrir 17.
janúar.
30 á.r& afmæli
glímufélagsins Ármann verður lialdið há-
tíðlegt með íþróttasýningum o. fl. í Iðnó
a afmælisdaginn (7. janúar).
Nánar auglýst síðar.
Stjórn glímiifélagsins Ármann.
— Nú þegar æfa af fullum krafti karlm.flokkur,
kvenflokkur, frúarflokkur og öldungaflokkur og
seimia bætast svo við telpuflokkur og drengjaflokk-
ur.
— Eru eintóm gamalmenni í hinum svonefnda
öldungaflokki ?
— Nei, þar cru menn svo aðl segja á öllum aldri,
að vísu ekki unglingar, en leikfimin er ekki eins
erfiö eins og i i. flokki karla, og sniöin við hæfi
þeirra, sem ýmist eru óvanir eða hættir þátttöku
í i. flokki.
— Hvaða kennara hafið þið?
— iBaldur Kristjánsson kennir karlmönnum en
Þorbjörg Jónsdóttir kvenfólki.
— Hefir ungfrúin kent leikfimi áður?
— Nei, en hún hefir nýlokið leikfimisprófi í
Danmörku og kennir hina svonefndu Bertram-leik-
fimi, sem ryður sér nú rnjög til rúms erlendis.
— Iðkið þið fleiri íþróttir í vetur?
— Já, frjálsar íþróttir og badminton' innan húss,
og um hverja helgi eru farnar gönguferðir upp um
fjöll og firnindi. Upp úr nýárinu verður svo byrj-
að á skíðaferðum.
— Hvers konar íþrótt er badminton?
— Það er knattleikur í líkingu við tennis, en þó
frábrugðinn að ýmsu leyti. Áhugi er mikill fyrir
þessum leik, enda er hann mjög skemtilegur.
— Hvernig eru æfingarnar sóttar?
— I einu orði sagt, prýðilega.
Vér sjáum nú að Kaldal er farinn að ókyrrast
og það ekki að ástæðulausu, því 3 yngismeyjar hafa
komið inn meðan á samtalinu stóð og bíða nú ó-
þreyjufullar eftir að fá af sér poly-foto.
Um leið og vér kveðjum Kaldal og þökkurn hon-
um fyrir skýr svör, spyrjum vér um stjórn félags-
ins, en hana skipa: Jón Kaldal form., og með-
stjórnendur Guðmundur Sveinsson, Jón Jóhannsson,
Magnús Þorgeirsson og Þórarinn Arnórsson.
Ármann:
Á leiöinni niður í bæinn erum vér svo hepnir að
rekast á Jens Guðbjörnsson, formann Glímufél. Ár-
mann.
Vér berum strax upp erindið og j)ó Jens sé á
hraðri ferð, leysir hann fúslega úr spurningum vor-
um.
— Verður mikill kraftur í Ármann í vetur?