Íþróttablaðið - 01.12.1935, Qupperneq 21
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
19
þingmönnum, læknum, blaðamönnum og íþrótta-
mönum til að skoða húsið.
Ávarpaði hann gestina nokkrum orðum og fylgdi
þeim síðan um bygginguna. Að því loknu flutti Sig-
urjón Pétursson á Álafossi ræðu, þar sem hann
mintist íþróttastarfsemi Jóns á undanförnum árum.
Færði hann Jóni síðan silfurskjöld, sem var gjöf
frá íþróttaskólanum á Álafossi.
Því næst mælti forseti í. S. I. nokkur orð og
þakkaði Jóni m. a. fyrir það, hversu vel fimleika-
Sýningarnar á alþingishátíðinni 1930 hefðu tekist.
Þá afhenti hann Jóni í nafni í. S. í. merki sam-
bandsins og tvær myndir frá fyrrnefndum fim-
leikasýningum. Að því búnu kvöddu gestirnir, þökk-
uðu Jóni fyrir dugnað hans og árnuðu honum' allra
heilla í framtíðinni.
íþróttablaðið átti nýlega tal við Jón Þorsteins-
son, og sagði hann að aðsókn að skólanum virtist
ætla að verða mjög mikil, þrátt fyrir það hve seint
hann hefði tekið til starfa.
Þarf varla að efa að Jón, ásamt aðstoðarkennur-
um hans, fái nóg að starfa og nægileg verkefni í
þessum prýðilegu húsakynnum.
Að lokum óskar svo íþróttablaðið Jóni til ham-
ingju með íþróttahúsið, og væntir þess að hann eigi
þar langan og bjartan starfsferil fyrir höndum.
ípróttafréttir.
Frá útlöndum:
7 ný met í Svíþjóð. í frjálsum íþróttum hafa
Svíar sett 7 ný met í sumar. í 200 m. hlaupi á
21.5 sek., 20 km. hlaupi á 1 klst. 6 mín. 42 sek.,
stangarstökki 4.15 m., kúluvarpi 15.75 m-> kringlu-
kasti 53.02 m., 4x400 m. boðhlaupi á 3 mín. 14.2
sek. og 1000 m. boðhlaupi á 1 mín. 54.8 sek.
Færeyingar keptu nýlega í knattspyrnu á Shet-
landseyjum. Af 3 kappleikjum unnu þeir 1 (4:2),
tn töpuðu 2 (2:5, 3:4).
Heimsmet í beggja handa kúluvarpi hefir Ung-
verjinn Daranyi sett. Kastaði hann 29,46 m. sam-
anlagt (hægri hendi 15.77, v- h. 13-69 m-)-
Norðmenn setja 10 ný met. í eftirtöldum íþrótt-
um hafa Norðmenn sett ný met á þessu ári: 400
m. hlaup 48.6 sek., 800 m. hlaup 1 mín. 52.1 sek.,
3000 m. hlaup 8 mín. 35.4 sek., 5000 m. hlaup 14
mín. 48.8 sek., kúluvarp 15,00 m., kúluvarp beggja
handa 28.34 m., kringlukast 48.80 m., langstökk
án atrennu 3.47 m., .1000 m. boðhlaup 1 mín. 59.1
sek., 4x1500 m. boðhlaup 16 mín. 32.9 sek.
Finnar tapa í knattspyrnu. Undanfarið hafa
Finnar staðið sig illa í knattspyrnukappleikjum við
aðrar þjóðir. Þannig töpuðu þeir með 0:6 móti
Þjóðverjum, 1:5 móti Norðmönnum og 1:5 móti
Dönum.
Norðurlandamet í 100 m. sundi, frjálsri aðferð,
setti Finninn Hietanen í haust' á 59.7 sek.
5 ný met í Danmörku. Á ]>essu ári hafa Danir
sett 5 ný met í frjálsum íþróttum. Þau eru sem
hér segir: 1000 m. hlaup 2 mín. 31,8 sek., 5000 m.
hlaup 14 mín. 52,4! sek., 20 km. hlaup 1 klst. 6 mín.
45,2 sek., 4X100 m. boðhlaup 42,8 sek., hástökk
1,90 m.
*
Jjphjóiúisl(jó.(!juwi
(áður Mullersskólinn).
íþpóttaleikfími,
Hressingarleikfimi,
Miillersæfingar
o. fl.
Vetrarstarfsemi skólans er byrjuð.
Kensla allan daginn fyrir konur
og karla, unga og gamla.
Leitið yður upplýsinga um starf-
semi skólans, hvar sem þér eruð
á landinu.
Jón Þopsteinsson,
Sími 3738.