Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Side 10
10 FÓKUS - VIÐTAL 3. janúar 2020 EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Dramadrottning, ekki nettröll F riðjón Valtýr Sigurðsson, oft kallað- ur Fribbi, er virkur í athugasemdum og hefur lengi verið bendlaður við hugtakið nettröll. Hann hefur ver- ið umdeildur á mörgum spjallsvæðum Ís- lendinga í ríflega áratug og var sérstaklega þekktur innan samfélagsins á Barnalandi þegar það var upp á sitt besta á árum áður. En hver er maðurinn á bak við not- andanafnið? DV sló á þráðinn til Fribba sem rakti erfiða reynslu sína af einelti, samfélagsmiðlum og lífinu. Þolandi eineltis „Ég er Reykvíkingur og hef búið lengst af í Breiðholti. Ég vek kátínu hvar sem ég kem við sögu, enda mikill húmoristi. Minn helsti kostur er að koma öðru fólki til að hlæja. Ég hef lengi verið þekktur sem Fribbi. Fyrst var ég reyndar kallaður Frikki, síðar Friddsi og að endingu Fribbi.“ Fribbi varð fyrir miklu einelti í Breiðholtsskóla þegar hann var yngri. Hann var með gleraugu, fjarsýnn og með sjónskekkju, með athyglisbrest og talgalla, einrænn og vinafár. „Ég var auðvelt skotmark fyrir gerendur mína. Ég var oft niðurlægður og hafður að fífli. Vegna þessa reyndi ég oft að skrópa í skólanum og leið aldrei vel þar. Ég þorði þó aldrei að segja foreldrunum frá og neyddi mig frekar í skólann, ég átti ekki annan val- kost. Ég var oft neyddur til að gera asnalega hluti sem ég sé eftir enn þann dag í dag.“ Sem dæmi um það einelti sem hann var beittur nefnir hann að hann hafi verið skil- inn útundan, uppnefndur, valinn síðastur í íþróttir, tyggjói klínt í hárið á honum, eigur hans eyðilagðar, og mynd tekin af honum nöktum í sturtu. „Ég bara þakka guði fyrir að netið var ekki til á þessum tíma, því þá hefði myndin örugglega verið send á hefndarklámsíðu þar sem nektarmyndum er dreift í óþökk þolandans. Eineltið mót- aði manninn sem ég er í dag. Ég er var um sjálfan mig og passa mig enn í dag á því að vera ekki blekktur, eða hvort verið sé að reyna að hafa mig að fífli.“ Virkur í athugasemdum Fribbi var 25 ára þegar hann hóf þátttöku á opnum spjallsvæðum á netinu. Fyrst á síðunni strik.is, síðan nulleinn.is, hugi.is, minnsirkus.is og barnaland.is. „Ég tók þátt í ýmsum umræðum, um stjórnmál, kynlíf og sérstaklega öllum um- ræðum sem hétu Nöldur, en ég á það til að tuða og tauta um ansi margt. Mér fannst mjög spennandi að taka þátt í slíku enda voru umræðurnar þar oft mjög áhugaverð- ar. Svörin sem ég fékk frá fólki voru oft skít- kast og alls konar stælar. En ég var þarna orðinn harður maður eft- ir allt ein- eltið og lét því ekkert stoppa mig eða hræða. Ég hóf þá bara skítkast á móti og gaf ekk- ert eftir. Núlleinn.is var eiginlega unglinga- samfélag, og þar var ég einn af elstu not- endunum. Á þessum árum var ekki mikið um fullorðið fólk á svona samfélagsvefj- um, heldur voru þetta aðallega krakkar undir 18 ára aldri. Ég varð því sér á báti þar sökum aldurs. Ég var ansi duglegur að mæta daglega þar til að taka þátt í umræð- um. Flestum notendur á núlleinum þótti ég bæði fyndinn og leiðinlegur. En þegar maður er mikill einfari og hefur ekkert annað að gera á daginn þá eyðir maður oft tímanum í að spjalla við krakkana á null- einn.is. Ég átti það til að skamma ungling- ana þar ef mér þótti þeir fara yfir strikið. Sjálfur fór ég þó líka yfir strikið, til dæm- is þegar ég lýsti minni fyrstu kynlífsreynslu á kynlífsþræðinum þar. Ég hefði að sjálf- sögðu átt að halda bara kjafti.“ Eftirminnilegur og umdeildur á netinu Fribbi segir að hann hafi alla tíð verið mik- ið fyrir athygli, athyglissjúkur jafnvel. Þrátt fyrir að vera feiminn og lokaður. „Ég þótti einum of opinskár og einlæg- ur í samræðum á núlleinum. Ég veit vel að Umdeildur á samfélagsmiðlum í yfir áratug - Þolandi eineltis og netníðs - Hætti að vera skotinn í Ásdísi Rán þegar hann sá hana reykja Erla Dóra erladora@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.