Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Síða 27
SAKAMÁL 273. janúar 2020
hafði einnig leitað betur þar sem
lík Carol fannst og fundið þar
grjóthnullung, sömu tegundar og
var notuð við gerð hlaðins veggjar
sem umkringdi einbýlishús Park-
-fjölskyldunnar.
Óbein sönnunargögn og vitn-
isburður
Réttarhöldin yfir Gordon Park
stóðu í tíu vikur og ekkert atriði
eitt og sér benti til sektar hans.
Ákæruvaldið benti hins vegar á að
þegar sönnunargögn voru tengd
saman sýndu þau að hann væri
sekur, en ekki einhver „dularfull-
ur ókunnugur maður eða leyndur
elskhugi.“
Málflutningur ákæruvalds-
ins hvíldi því á óbeinum sönnun-
um og það féll í hlut kviðdóms
að velta fyrir sér vægi flókinna
hnúta, grjóts sem notað hafði
verið til að þyngja líkið og ísax-
arinnar, sem reyndar allt tengdi
Gordon við glæpinn, með einum
eða öðrum hætti.
Vitnisburðir Michaels Wain-
wright og annars klefanautar
Gordons gerðu þó útslagið og
Gordon fékk lífstíðardóm og úr-
skurðað að hann skyldi ekki af-
plána minna en fimmtán ár.
Miklu ofbeldi beitt
Talið var að Gordon hefði fyrst
tekið um háls Carol með það fyrir
augum að kyrkja hana. Hún hefði
barist um og þá hefði Gordon
tekið ísöxina og barið hana með
„verulegu“ afli í andlitið. Þegar
upp var staðið hefði hægri hluti
andlits Carol verið kominn í
mauk, höfuðkúpan brotin og
margar tennur að engu orðnar.
Að þessu loknu hefði Gordon síð-
an fullkomnað verkið með því að
endurtaka barsmíðarnar.
Gordon hefði síðan gengið frá
líkinu og fleygt því í Coniston-
-vatn og snúið sér að daglegu lífi,
eins og ekkert hefði í skorist.
Árangurslaus áfrýjun og
sjálfsvíg
Í desember árið 2007 áfrýjuðu
lögfræðingar Gordons dómnum
en áfrýjuninni var hafnað í nóv-
ember árið 2008.
Á 66. afmælisdegi sínum, 25.
janúar árið 2010, komu fanga-
verðir í Garth-fangelsi að Gordon
hangandi og meðvitundarlaus-
um í klefa hans. Hann var úr-
skurðaður látinn skömmu síðar.
Hvað Gordon notaði til sjálfsvígs-
ins liggur ekki ljóst fyrir en svo-
kallað æðaband var nefnt í því
samhengi. n
„Þegar
sönnunargögn
voru tengd saman
sýndu þau að hann
væri sekur, en ekki
einhver „dularfullur
ókunnugur maður eða
leyndur elskhugi“.
Coniston-vatn Lík Carol fannst
á syllu undir vatnsyfirborðinu.
Carol Park Afdrif
hennar voru óþekkt
í 21 ár.
Gordon Park Beið
í sex vikur með að
tilkynna hvarf eigin-
konu sinnar.