Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 4
1 Eiga ekki von á því að fá Víði Reynisson aftur til starfa
KSÍ á ekki von á því að fá Víði aftur til
starfa í fullt starf, sambandið vonast
til þess að Víðir verði þó til taks þegar
á þarf að halda.
2 Gera grín að Birni Inga á upp-lýsingafundunum
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans,
hefur vakið mikla athygli á upp-
lýsingafundum vegna kórónuveir-
unnar. Netverjar hafa gert grín að því
hvernig hann kynnir sig. „Björn Ingi
hjá Viljanum hér.“
3 Þetta er veiran sem yfirvöld ótt-ast meira en COVID-19 – Allt að
77% dánartíðni
Nipah-veiran sem fyrst fannst í Mal-
asíu fyrir aldamótin er talin hafa alla
burði til að valda stórum faröldrum.
Veiran getur valdið banvænni heila-
himnubólgu og er ekkert bóluefni eða
lækning til við veirunni.
4 Frægir Íslendingar á lausu DV tók saman lista yfir fræga
Íslendinga sem eru einhleypir um
þessar mundir.
5 Binni Löve og Kristín Péturs hætt saman
Áhrifavaldaparið Brynjólfur Löve
Mogensson og Kristín Pétursdóttir er
hætt saman.
6 Breytti nafni sonar síns eftir að hún áttaði sig á því að það
hljómaði eins og kynfæri
Grínistinn Amy Schumer skýrði son
sinn Gene Attell, en ákvað að skipta
út millinafninu þar sem það hljómaði
of líkt orðinu genital sem þýðir kyn-
færi á ensku.
7 Björg hafði pakkað í töskur áður en hún hvarf
Kona sem var saknað hafði pakkað
ofan í tösku áður en hún hvarf. Sem
betur fer kom hún fljótlega í leitirnar
heil á húfi.
8 Sagði að eiginkonan hefði látist af völdum COVID-19 – Ekki var
allt sem sýndist
Bandaríkjamaður tilkynnti fjölskyldu
konunnar sinnar að hún væri mjög
veik af COVID-19. Það reyndist lygi.
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Stefnir í 17% atvinnuleysi
Samkvæmt Vinnumálastofnun er gert ráð fyrir alls 50
þúsund einstaklingum á atvinnuleysisskrá, þar með talið
í hlutabótaúrræði. Atvinnuleysi í apríl stefnir í 17%, þar
af um 10% í minnkuðu starfshlutfalli. Samkvæmt Unni
Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar, er mikið álag
á stofnuninni núna og því má búast við að afgreiðslutími
lengist.
Fólk slakar of fljótt á
COVID-19 faraldurinn er á niðurleið hér á landi og nú styttist
í að samkomubann verði afnumið í litlum skrefum, því fyrsta
þann 4. maí næstkomandi. Landsmenn virðast þó hafa slakað
aðeins of mikið á, en um síðustu helgi mátti sjá myndir af
mörgum á samfélagsmiðlum í heimapartýum, og margt var
um manninn í mörgum verslunum landsins.
Ætlar að stöðva komur innflytjenda
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að stöðva allar
komur innflytjenda til Bandaríkjanna vegna COVID-19 farald-
ursins. Þetta tilkynnti hann á Twitter á þriðjudaginn þar sem
hann greindi jafnframt frá því að hann ætlaði sér að skrifa
forsetatilskipun vegna málsins.
Víðir tekst á við nýtt hlutverk
Víðir Reynisson, sennilega þekktasti lögreglumaður á Íslandi
í dag, hefur nú fengið nýtt hlutverk. Syni hans og tengdadóttur
fæddist stúlka í vikunni og er Víðir því orðinn afi.
Vonast til að Íslandsmót geti hafist í júní
Formaður KSÍ, Guðni Bergsson, greindi frá því á dögunum
að vonir stæðu til að Íslandsmótið í knattspyrnu geti hafist
í júní í sumar, en mótið átti að hefjast í apríl. Íþróttafélögin
geta hafið æfingar að nýju þann 4. maí. Til skoðunar er hvort
mótið verði haldið án áhorfenda sökum COVID-19 og sam-
komu banns.
Loka á æsifréttamiðla
Harry Bretaprins og
eiginkona hans Meghan
Markle greindu frá því að
hvorki þau né samskipta-
teymi þeirra myndi hafa
nokkuð að gera með fjóra
stóra æsifréttamiðla í
Bretlandi. Þessir tilteknu
miðlar hefðu ítrekað ritað
um hjónin fréttir sem
væru villandi, rangar eða
gífurleg árás á einkalíf
þeirra.
Skírnir rekinn
Séra Skírnir Garðarsson héraðsprestur var rekinn eftir ell-
efu ára starf sökum trúnaðarbrests. Er hann talinn hafa rofið
trúnaðarskyldu þegar hann greindi frá því að Anna Auora
hefði svikið fé frá kirkjunni. Þetta er í annað sinn sem Skírni
er sagt upp störfum vegna atvika sem tengjast bakverðinum
Önnu Auroru. Hefur Skírnir lýst því yfir að hann sé afar
hryggur vegna ákvörðunar biskups um að segja honum upp
störfum.
Ríkisstjórn kynnir aðgerðapakka tvö
Ríkisstjórnin kynnti á þriðjudag seinni aðgerðapakka sinn
vegna áhrif COVID-19 á efnahag fyrirtækja og einstaklinga.
Fyrirtækjum, sem var gert skylt að hætta starfsemi vegna
sóttvarnareglna, verður bættur skaðinn, að minnsta kosti
að hluta. Smærri fyrirtækjum verður boðið upp á einfaldara
lána úrræði en þau brúarlán sem áður hafa verið kynnt. Fyrir-
tæki geta fengið frest á skattgreiðslum vegna ársins 2019 sem
hefðu átt að koma til greiðslu á þessu ári. Stórauka á heilsu-
gæsluna til að styðja betur við geðrækt og efla fjarheilbrigðis-
þjónustu. 100 milljónum verður veitt í aðgerðir vegna heim-
ilisofbeldis og 200 milljónir fara í stuðning við fjölskyldur
langveikra barna. Komið verður til móts við háskólanema
og er undirbúið að skapa þeim um 3.500 störf í sumar. Heil-
brigðisstarfsfólk fær álagsgreiðslur vegna COVID-19 og síðan
verður veittur stuðningur til einkarekinna fjölmiðla til að
bregðast við þeirri stöðu sem uppi er.
MI NOTE 10:
Mi Note 10 pakkar fimm
myndavélum sem hver og ein
hefur sitt fram á að færa - meðal
annars 108MP myndflögu. Ekki
nóg með það heldur kemur
síminn með risa stórri 5.260mAh
rafhlöðu sem endist auðveldlega
í 2 daga í mikilli notkun. Hvort
sem þú ert atvinnu ljósmyndari
eða að stíga inn í fullorðins árin,
þá viltu ekki láta þetta tryllitæki
framhjá þér fara!
Xiaomi á Íslandi | Síðumúli 23 bakatil, 108 Reykjavík | 537-1800 | www.mii.is
4 FRÉTTIR 24. APRÍL 2020 DV