Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS 24. APRÍL 2020 DV
Þ að hafa margir landsmenn nýtt samkomubannið í að skreyta,
breyta og betrumbæta heimil
ið. Ef einhvern tíma er tíminn,
þá er það núna.
Það hefur sína kosti að gera
upp gömul húsgögn. Það er
í fyrsta lagi ódýrara en að
kaupa en það gefur þér einnig
þá tilfinningu að þú hafir af
rekað eitthvað stórkostlegt.
Húsgagnasmiðurinn Lára
Björnsdóttir gefur lesendum
þau ráð að stinga sér í djúpu
laugina og prófa sig áfram.
Enginn vandi sé of stór til að
það sé ekki örugglega hægt að
finna sniðuga lausn á honum.
Við ræddum við fjóra ein
staklinga sem eiga það sam
eiginlegt að hafa umbreytt
einhverju heima hjá sér á
sniðugan máta.
Oliver Steinar tók sturtu
klefann í gegn fyrir litlar
fimm þúsund krónur. Heiðbrá
Rósa breytti sjarma heimilis
ins með því að mála innihurð
irnar. Lára gaf fjörutíu ára
skáp nýtt líf og foreldrar Veru
fundu fallega lausn á ljótum
vanda. n
Sniðugar lausnir
fyrir heimilið
Það þarf ekki að vera flókið eða dýrt að taka
heimilið í gegn. Málning ein og sér getur blásið
nýju lífi í gömul húsgögn, hurðir og sturtuklefa.
Ofninn fyrir og eftir breytingarnar. Það er auðveldlega hægt að losa bekkinn frá ofninum. MYNDIR/AÐSENDAR
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Hvetur fólk til að stinga sér í djúpu laugina
Húsgagnasmiðurinn Lára Björns-
dóttir hefur gert upp ófáa skápana.
Á dögunum kláraði hún að mála
furuskáp sem hún smíðaði árið 1980.
„Mér fannst vera kominn tími á
upplyftingu og breytingu. Ég nota
alltaf vörur frá Flügger og í þetta
skiptið notaði ég vatnslakk og auð-
vitað grunnaði ég á undan. Hnúðinn
á skápinn keypti ég hjá Habitat.“
Lára hefur tekið þó nokkra skápa
í gegn en breytti aðeins aðferðinni í
þetta skipti.
„Á hina skápana sem ég hef gert
upp hef ég notað olíulakk sem ég
mæli frekar með því mér finnst
betra að vinna með það. Ég er ekki
að pússa mikið á undan, ég passa
bara að fletir séu hreinir,“ segir Lára
og gefur lesendum góð ráð.
„Endilega bara að stinga sér í
djúpu laugina og prófa enda er oft
verið að auglýsa gamla skápa gefins
eða fyrir lítinn pening sem hægt er
að gefa nýtt útlit.“
Lára smíðaði
þennan skáp
þegar hún
var að læra
húsgagna-
smíði fyrir 40
árum. Ótrúleg
breyting á
skápnum.
Lára sýnir að
það er heldur
betur hægt að
blása nýju lífi
í gömul hús-
gögn.