Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 21
FÓKUS 21DV 24. APRÍL 2020
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR
Margrét sat á þingi frá 1987 til
2007 fyrir Samfylkinguna.
Árið 2009 tók hún við sem for-
stöðumaður Fangelsisins á Litla-
Hrauni og gegndi hún starfinu til
ársins 2015. Í dag er hún titluð hús-
móðir í símaskránni. DV ákvað að
slá á þráðinn til Margrétar og taka
stöðuna á henni.
„Ég bý bara hér í Kópavoginum
og vinn af og til á garðyrkjustöðinni
Stoð á Dalvegi. Ég er bara að gera
það sem mér finnst skemmtilegast
í lífinu. Mér finnst svona fyrrver-
andi titlar ótrúlega leiðinleg fyrir-
bæri því maður er alltaf það sem
maður er að hverju sinni. Ef maður
er að gera það vel þá á maður að
sinna því en ekki vera með eitt-
hvert fyrrverandi titlatog. Manni
líður best með það sem maður er
að gera hverju sinni og er að sinna
því og það þjónar engum tilgangi
að tína upp allt það sem maður er
búinn að gera á langri ævi. Ég er
bara að njóta lífsins.“
Margrét var sæmd heiðurs-
merki hinnar íslensku fálkaorðu
árið 2019.
Jóhanna sat á þingi í rúmlega þrjá
áratugi, frá 1978-2013, fyrir Alþýðu-
flokkinn, Þjóðvaka og Samfylk-
inguna. Árin 1994-1995 sat hún á
þingi utan flokka. Hún var í tvígang
félagsmálaráðherra og síðan for-
sætisráðherra í kjölfar efnahags-
hrunsins 2009-2013 og skrifaði sig
þar með í sögubækurnar sem fyrsta
opinberlega samkynhneigða konan
sem gegnir hlutverki þjóðarleið-
toga.
L íklega þekktasta stundin á
stjórnmálaferli Jóhönnu var þrumu-
ræða hennar á flokksþingi Alþýðu-
flokksins árið 1994, þá hafði hún
tapað í formannskjöri fyrir Jóni
Baldvini Hannibalssyni. Í ræðunni
sagði hún svo ef tir minnilega:
„Minn tími mun koma,“ en þau orð
eru í dag orðin ódauðleg.
Jóhanna varð sjötug árið sem
hún lét af þingstörfum og því komin
á löglegan ef tirlaunaaldur. Árið
2013 kom út bókin Við Jóhanna þar
sem Jónína Leósdóttir, eiginkona
Jóhönnu, f jallaði um samband
þeirra og árið 2017 kom út bókin
Minn tími: Saga Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, um ævi hennar. Jóhanna er
enn málsmetandi á sviði stjórnmála,
með sterkar skoðanir og lætur í
sér heyra þegar henni misbýður
eitthvað. Jóhanna er því vel gift í
Vesturbænum og nýtur lífsins.
Minn tími mun
koma!
ÚR PÓLITÍK Í POTTAMOLD
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
VIGDÍS HAUKSDÓTTIR
Vigdís sat á þingi fyrir Framsóknar-
flokkinn 2009-2016. Vigdís var um-
töluð fyrir framgöngu sína á Alþingi
þar sem hún veigraði sér ekki við
að viðra umdeildar skoðanir. Það
vita flestir hvað Vigdís er að gera
í dag, en hún hefur verið áberandi
sem borgarfulltrúi Miðflokksins.
En þó hefur sést til hennar endrum
og eins í störfum í blómabúð. DV
sló á þráðinn til Vigdísar til að fá
þessi mál á hreint.
„Starf borgarfulltrúa er skil-
greint sem fullt starf hjá Reykja-
víkurborg, en það koma dagar
þar sem eru engir fundir, ég er
svo aktíf og kraftmikil og dugleg
að ég þarf alltaf að vera í aksjón.
Svo á ég mínar frístundir. Ég er
fyrsti Íslandsmeistarinn í blóma-
skreytingum og hef afskaplega
gaman af því að vera innan um
blómin og fæ mikla vorvekju núna
þegar laukarnir fara að koma upp
úr moldinni og það er yndislegt að
fara í göngutúra á þessum árs-
tíma. Svo ég tek eina og eina vakt
í blómabúðinni á Hagamel og það
er afskaplega gaman, bæði að
hitta kjósendur á gólfinu og svo
að vera í kringum blómin og láta
listsköpunina njóta sín í litavali
og fjölbreytileika starfsins sem
blómabúðir bjóða upp á, því það
snertir allt frá vöggu til grafar og
allt þar á milli.“
Ég er bara
að njóta
lífsins.
Hennar tími kom að lokum. MYND/DAGBLAÐIÐ VÍSIR
Hætti í fangelsinu og nýtur nú lífsins. MYND/GVA
Vigdís elskar blómin. MYND/VILHELM