Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 32
Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og undir fullum trúnaði. 32 FÓKUS Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börn og ástina. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem er fastur í rifrildishring. S æl, Kristín. Ég og sam-býlismaður minn erum föst í rifrildishring sem er verulega farið að hafa áhrif á allt heimilislífið og börnin okkar. Mér finnst hann tuða yfir öllu og ég er farin að hreyta í hann ónot- um. Hann kann ekki að velja sér orrustur og er alltof smá- munasamur. Hann til dæmis tuðar stanslaust yfir því að strákarnir raði ekki skónum og að ég gleymi að taka úr þurrkaranum. Mig langar hreinlega að rota manninn! Ég veit að ég er ekki fullkom- in en sumt er ekki þess virði að stúta stemmingunni fyrir. Okkar eini rétti Það er misskilningur að við getum fundið maka sem er okkar „eini rétti“. Það getur enginn uppfyllt allar langanir og þrár annarrar manneskju, né verið sammála í einu og öllu þegar kemur að skoðun- um og lífsgildum. Algjörlega óraunhæft dæmi. Öll pör deila og takast á Þar af leiðir að öll pör deila og takast á. Mismikið að sjálfsögðu og með ólíkum hætti en allir þurfa að finna takt og leiðir til þess að tak- ast á við ólíka sýn. Skiptir þá mestu hvernig ósamstöðu er mætt og hvaða leiðum er beitt. Mörgum hættir til að treysta á hugsanalestur en það er ekki sérlega vænlegt til árangurs. Þess vegna get- ur reynst vel að tala saman, segja hvað liggur að baki „pirringnum“ og reyna að finna leiðir til þess að koma í veg fyrir hann. Þú nefnir að hann stúti stemmningunni og kunni ekki að velja sér orrustur. Getur verið að það skipti hann meira máli en þig að skórnir séu á sínum stað? Þetta hljómar eins og þið séuð með ólíkar hugmyndir um hvernig þið viljið hátta umgengni á heimilinu frekar en að annað ykkar sé betur til þess fallið að meta og halda uppi stemmingunni en hitt. Röddin hækkar og hjartslátturinn verður örari Í hita leiksins þegar tauga- kerfið er komið á yfirsnún- ing nær enginn að tala með skynsemistöðvum heilans. Það þýðir að þegar rifrildin byrja, röddin hækkar og hjartslátturinn verður örari þá er næsta víst að rifrildið skilar ekki skynsamlegri niðurstöðu. Sum pör velja sér „timeout-orð“ sem merkir að þau hætta og sammælast um að ræða þennan atburð síðar þegar allt er rólegra. Þarf þá að fylgja reglunni hvenær umræðan skuli fara fram. Í rifrildum hættir fólki til að alhæfa, ásaka og dæma, nokkuð sem kallar á varnar- viðbrögð mótherja. Ef við reynum heldur að útskýra og skilja finnum við frekar lausnir sem samherjar. Tuð er hegðun Til þess að uppræta rifrildin þarf að komast á dýptina. Tuð er hegðun, en að baki hegðun liggja tilfinningar. Hans hegðun, tuð, hefur áhrif á þínar tilfinningar sem láta þig sýna honum ákveðna hegðun, vonandi ekki að rota hann, en mögulega hreyta í hann ónotum. Þegar þú gerir það framkallar þú hjá honum líðan sem kallar ekki fram hans bestu hegðun. Þannig festist þið í rifrildisvítahring sem lítur svona út: Hegðun – ýtir á tilfinningar – sem kalla á hegðun – sem aftur framkallar tilfinningar. Til þess að rjúfa svona mynstur þarf því að greina annars vegar hegðun og hins vegar tilfinningar. Hvað þarft þú svo að rifrildin brjótist ekki út? Án þess að þekkja ykkur tel ég líklegt að skórnir og þurrkarinn séu einungis birt- ingarmyndir undirliggjandi titrings hjá manninum þín- um. Það er eitthvað að trufla hann og þið þurfið að komast að því hvað það er og hvernig þið getið fyrirbyggt það. Get- ur verið að honum líði þannig að það sem þú telur til smá- atriða geti honum þótt stór- mál? Ég leyfi mér að velta því upp hvort honum finnist lítið hlustað á sig í tengslum við umgengni og sé því farinn að hækka róminn. Það er vond tilfinning og ef hann fær ekki skilning á sinni líðan þá brýst það út í pirringi. Sömuleiðis hefur þú fullan rétt á því að tjá þig um hvernig þú vilt for- gangsraða heimilisstörfum. Kannski viltu hafa þvott- inn í þurrkaranum lengur en hann? Eða viltu að hann minni þig á fötin á þurrkar- anum? Hvað þarft þú svo að rifrildin brjótist ekki út? Ekkert rétt eða rangt Það er ekkert rétt eða rangt varðandi þvott í þurrkara eða óraðaða skó. Um það hafa a.m.k. ekki verið skrifaðar margar vísindagreinar. Aftur á móti eru til skýrar vísbend- ingar um að pör sem setja sér umgengnisreglur, skipta með sér verkum og endurmeta reglulega hvernig fyrirkomu- lagið hentar rífist sjaldnar en pör sem hafa hoppað yfir þann reit á spilaborðinu. Mitt ráð til þín, kæra vin- kona, er að setjast niður með manninum þínum, reyna að kryfja erfiðar stundir og finna merki sem geta þýtt upphaf að rifrildum. Ef þið getið „hætt“ áður en þið „byrjið“ þá eru þið að fyrir- byggja. Með því að tjá líðan og reyna að skilja hvort ann- að finnast frekar sameigin- legar leiðir til þess að draga úr togstreitu. Þannig sigrist þið á þessari súru stemmingu og heimilislífið verður aftur gott. Ég átta mig á því að það getur verið töluvert auð- veraldara að skrifa þetta en framkvæma, en ég hef séð dæmi þess að fólk nær mjög góðum tökum á vítahring sem það hélt að það myndi aldrei losna úr. n HANN DREPUR ALLA STEMMINGU Hans hegðun, tuð, hefur áhrif á þínar tilfinningar sem láta þig sýna honum ákveðna hegðun, vonandi ekki að rota hann, en mögu- lega hreyta í hann ónotum. 24. APRÍL 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.