Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Qupperneq 32
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og undir fullum
trúnaði.
32 FÓKUS
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með
meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun
svara spurningum lesenda um málefni er varða
fjölskylduna, börn og ástina.
Að þessu sinni svarar Kristín spurningu
lesanda sem er fastur í rifrildishring.
S æl, Kristín. Ég og sam-býlismaður minn erum föst í rifrildishring sem
er verulega farið að hafa
áhrif á allt heimilislífið og
börnin okkar. Mér finnst
hann tuða yfir öllu og ég er
farin að hreyta í hann ónot-
um. Hann kann ekki að velja
sér orrustur og er alltof smá-
munasamur. Hann til dæmis
tuðar stanslaust yfir því að
strákarnir raði ekki skónum
og að ég gleymi að taka úr
þurrkaranum. Mig langar
hreinlega að rota manninn!
Ég veit að ég er ekki fullkom-
in en sumt er ekki þess virði
að stúta stemmingunni fyrir.
Okkar eini rétti
Það er misskilningur að við
getum fundið maka sem er
okkar „eini rétti“. Það getur
enginn uppfyllt allar langanir
og þrár annarrar manneskju,
né verið sammála í einu og
öllu þegar kemur að skoðun-
um og lífsgildum. Algjörlega
óraunhæft dæmi.
Öll pör deila og takast á
Þar af leiðir að öll pör deila
og takast á. Mismikið að
sjálfsögðu og með ólíkum
hætti en allir þurfa að finna
takt og leiðir til þess að tak-
ast á við ólíka sýn. Skiptir
þá mestu hvernig ósamstöðu
er mætt og hvaða leiðum er
beitt. Mörgum hættir til að
treysta á hugsanalestur en
það er ekki sérlega vænlegt
til árangurs. Þess vegna get-
ur reynst vel að tala saman,
segja hvað liggur að baki
„pirringnum“ og reyna að
finna leiðir til þess að koma
í veg fyrir hann.
Þú nefnir að hann stúti
stemmningunni og kunni
ekki að velja sér orrustur.
Getur verið að það skipti
hann meira máli en þig að
skórnir séu á sínum stað?
Þetta hljómar eins og þið
séuð með ólíkar hugmyndir
um hvernig þið viljið hátta
umgengni á heimilinu frekar
en að annað ykkar sé betur til
þess fallið að meta og halda
uppi stemmingunni en hitt.
Röddin hækkar og
hjartslátturinn verður örari
Í hita leiksins þegar tauga-
kerfið er komið á yfirsnún-
ing nær enginn að tala með
skynsemistöðvum heilans.
Það þýðir að þegar rifrildin
byrja, röddin hækkar og
hjartslátturinn verður örari
þá er næsta víst að rifrildið
skilar ekki skynsamlegri
niðurstöðu. Sum pör velja sér
„timeout-orð“ sem merkir að
þau hætta og sammælast um
að ræða þennan atburð síðar
þegar allt er rólegra. Þarf þá
að fylgja reglunni hvenær
umræðan skuli fara fram.
Í rifrildum hættir fólki til
að alhæfa, ásaka og dæma,
nokkuð sem kallar á varnar-
viðbrögð mótherja. Ef við
reynum heldur að útskýra
og skilja finnum við frekar
lausnir sem samherjar.
Tuð er hegðun
Til þess að uppræta rifrildin
þarf að komast á dýptina.
Tuð er hegðun, en að baki
hegðun liggja tilfinningar.
Hans hegðun, tuð, hefur áhrif
á þínar tilfinningar sem láta
þig sýna honum ákveðna
hegðun, vonandi ekki að rota
hann, en mögulega hreyta í
hann ónotum. Þegar þú gerir
það framkallar þú hjá honum
líðan sem kallar ekki fram
hans bestu hegðun. Þannig
festist þið í rifrildisvítahring
sem lítur svona út:
Hegðun – ýtir á tilfinningar
– sem kalla á hegðun – sem
aftur framkallar tilfinningar.
Til þess að rjúfa svona
mynstur þarf því að greina
annars vegar hegðun og hins
vegar tilfinningar.
Hvað þarft þú svo að
rifrildin brjótist ekki út?
Án þess að þekkja ykkur
tel ég líklegt að skórnir og
þurrkarinn séu einungis birt-
ingarmyndir undirliggjandi
titrings hjá manninum þín-
um. Það er eitthvað að trufla
hann og þið þurfið að komast
að því hvað það er og hvernig
þið getið fyrirbyggt það. Get-
ur verið að honum líði þannig
að það sem þú telur til smá-
atriða geti honum þótt stór-
mál? Ég leyfi mér að velta því
upp hvort honum finnist lítið
hlustað á sig í tengslum við
umgengni og sé því farinn að
hækka róminn. Það er vond
tilfinning og ef hann fær ekki
skilning á sinni líðan þá brýst
það út í pirringi. Sömuleiðis
hefur þú fullan rétt á því að
tjá þig um hvernig þú vilt for-
gangsraða heimilisstörfum.
Kannski viltu hafa þvott-
inn í þurrkaranum lengur
en hann? Eða viltu að hann
minni þig á fötin á þurrkar-
anum? Hvað þarft þú svo að
rifrildin brjótist ekki út?
Ekkert rétt eða rangt
Það er ekkert rétt eða rangt
varðandi þvott í þurrkara
eða óraðaða skó. Um það hafa
a.m.k. ekki verið skrifaðar
margar vísindagreinar. Aftur
á móti eru til skýrar vísbend-
ingar um að pör sem setja sér
umgengnisreglur, skipta með
sér verkum og endurmeta
reglulega hvernig fyrirkomu-
lagið hentar rífist sjaldnar
en pör sem hafa hoppað yfir
þann reit á spilaborðinu.
Mitt ráð til þín, kæra vin-
kona, er að setjast niður með
manninum þínum, reyna að
kryfja erfiðar stundir og
finna merki sem geta þýtt
upphaf að rifrildum. Ef þið
getið „hætt“ áður en þið
„byrjið“ þá eru þið að fyrir-
byggja. Með því að tjá líðan
og reyna að skilja hvort ann-
að finnast frekar sameigin-
legar leiðir til þess að draga
úr togstreitu. Þannig sigrist
þið á þessari súru stemmingu
og heimilislífið verður aftur
gott.
Ég átta mig á því að það
getur verið töluvert auð-
veraldara að skrifa þetta en
framkvæma, en ég hef séð
dæmi þess að fólk nær mjög
góðum tökum á vítahring sem
það hélt að það myndi aldrei
losna úr. n
HANN DREPUR ALLA STEMMINGU
Hans hegðun, tuð, hefur
áhrif á þínar tilfinningar
sem láta þig sýna honum
ákveðna hegðun, vonandi
ekki að rota hann, en mögu-
lega hreyta í hann ónotum.
24. APRÍL 2020 DV