Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Blaðsíða 20
20 FÓKUS 24. APRÍL 2020 DV
HVAR ERU ÞAU Í DAG?
Þingmenn koma, þingmenn fara. En hvað tekur við þegar fólk lætur af störf-
um á hinu háa Alþingi? DV kannaði stöðuna á nokkrum fyrrverandi þing-
mönnum þjóðarinnar til að fá svör við spurningunni: Er líf eftir Alþingi?
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Siv sat á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn á
árunum 1995-2013. Hún var umhverfisráð-
herra 1999-2004 og heilbrigðis- og trygg-
ingarmálaráðherra 2006-2007.
Siv vakti nokkra athygli þegar hún tók
sæti á þingi. Hún var menntaður sjúkraliði
og áhugakona um mótorhjól og töldu margir
það víst að þarna væri komin á þing kona
með bein í nefinu.
Árið 2014 var Siv fengin til starfa sem
ráðgjafi fyrir félags- og húsnæðismálaráðu-
neytið og um vorið 2016 var hún ráðin sem
sérfræðingur á skrifstofu félagsþjónustu í
félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Hún
er einnig formaður Velferðarvaktarinnar,
sem fylgist með félagslegum og fjár-
hagslegum afleiðingum efnahags-
hrunsins fyrir fjölskyldur og ein-
staklinga í landinu.
Hún hefur lengi haft mikinn
áhuga á útiveru svo það
kemur kannski ekki á óvart
að hún er einnig skráður leið-
sögumaður.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Össur sat á þingi á árunum 1991-2016
fyrir Samfylkinguna. Hann gegndi
eftirfarandi ráðherrastöðum: um-
hverfisráðherra, iðnaðarráðherra,
samstarfsráðherra Norðurlanda og
utanríkisráðherra.
Össur flutti ræðu á Alþingi árið
1995 sem var Árna Johnsen ekki að
skapi. Össur sagði í ræðu sinni að
hann teldi sig heyra Árna hrista höf-
uðið yfir því sem fram fór. Þetta fór
illa í Árna sem elti Össur út úr þing-
sal, greip í eyra hans og heimtaði að
tala við hann. Þegar Össur ætlaði
að ganga í burtu bætti Árni svo um
betur og sparkaði hressilega í rass-
inn á Össuri svo hann féll niður stiga
og hlaut minniháttar áverka. Össur
ákvað hins vegar að bregðast ekki
við uppátækinu og sagði að hann
„vildi ekki elta ólar við mann með
greindarvísitölu á við íslenska sauð-
kind“.
Árið 2017 stofnaði hann bygginga-
félagið Deshús byggingafélag ehf.
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Hanna Birna sat á þingi 2013-2016
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var
innanríkisráðherra á árunum 2013-
2014 en hætti í kjölfar lekamálsins
svokallaða þar sem hún sætti
harðri gagnrýni eftir að aðstoðar-
maður hennar lak trúnaðarupplýs-
ingum um nígerískan hælisleitanda
í fjölmiðla.
Hanna Birna tók við stöðu sem
ráðgjafi hjá UN Women í New
York í febrúar í fyrra. Þar á undan
hafði hún verið framkvæmdastjóri
Women Political Leaders. Rétt
áður en hún hætti á þingi tók hún
að sér stöðu formanns Women in
Parliament Global Forum svo mál-
efni kvenna hafa verið henni afar
hugleikin undanfarin ár.
ELÍN HIRST
Elín sat á þingi 2013-2016 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Undanfarin ár hefur Elín
rekið sitt eigið fyrirtæki,
Elín Hirt Productions/
Hugveita sem sérhæfir
sig í margs konar verk-
efnum sem snúa að
miðlum og dagskrár-
gerð. Skömmu eftir að
hún lét af þingstörfum
hóf Elín störf við gerð þátta-
raðarinnar Hvað höfum við gert?
sem fjallað um þær áskoranir sem
mannfólkið stendur frammi fyrir í loftslags-
málum. Þættirnir voru sýndir á RÚV
í fyrra og vöktu mikla athygli.
Hún hefur þó augun opin
fyrir starfstækifærum. Árið
2017 sótt Elín um starf upp-
lýsingafulltrúa Umhverfis-
stofnunar, en það var Björn
Þorláksson, sjálfstæt t
starfandi fjölmiðlaráðgjafi,
sem var að endingu ráðinn.
Árið 2019 sótti Elín um
stöðu útvarpsstjóra, en starfar
að eigin verkefnum í dag. Elín er
hæfileikarík og heillandi situr án efa ekki
auðum höndum lengi.
Þorsteinn sagt á Alþingi á árunum
2016-2020 fyrir Viðreisn. Hann var
um stund félags- og jafnréttismála-
ráðherra.
Þorsteinn sagði af sér þing-
mennsku á dögunum og hefur verið
ráðinn sem forstjóri eignarhalds-
félagsins Hornsteins ehf. sem á og
rekur félögin BM Vallá, Björgun og
Sementsverksmiðjuna.
LILJA MÓSESDÓTTIR
Lilja sat á þingi fyrir Vinstri græn og
utan flokks á árunum 2009-2013.
Eftirminnilegt er þegar Lilja sagði
sig úr Vinstri grænum árið 2011. Lilja
hafði ítrekað verið vænd um sam-
starfsörðugleika og sá ekki samleið
með sér og flokknum lengur.
Í bókinni „Hreyfing rauð og græn“
eftir Pétur Hrafn Árnason sagnfræð-
ing, um sögu Vinstri grænna, greinir
Lilja frá því að hún hafi orðið fyrir
persónuárásum innan þingflokksins
og að hún hafi þurft að flýja land
eftir þingsetuna til að eiga einhverja
möguleika á að verða metin að verð-
leikum.
Hún býr nú í Noregi þar sem hún
starfar sem ráðgjafi hjá Samfunns-
vit erne, sem er félag sérfræðinga í
félagsvísindum, og einnig sem pró-
fessor við háskólann í Østfold.
ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON
ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR
Álfheiður sat á þingi 2007-2013
fyrir Vinstri græn. Hún var
heilbrigðisráðherra 2009-
2010.
Athygli vakti þegar
Álfheiður, kjörin fulltrúi
á Alþingi, lét til sín taka
í búsáhaldabyltingunni í
kjölfar efnahagshrunsins
2008. Studdi hún mótmæl-
endur fyrir utan Alþingis-
húsið og mætti meira að segja til að
mótmæla sjálf fyrir utan lögreglu-
stöðina eftir að einn mótmæl-
andinn var handtekinn.
Hún hóf störf árið 2015 hjá
Náttúruminjasafni Íslands og
starfar þar enn og ritstýrir
Nát túrufræðingnum. Hún
var varaþingmaður Vinstri
grænna þar til í september
2019.
Kvaddi Alþingi. MYND/EYÞÓR ÁRNASON
Flúði land eftir setu á Alþingi. MYND/WILHELM
Kominn í fyrirtækjarekstur. MYND/GVA
Vinnur að málefnum kvenna. MYND/ERNIR
Siv vinnur enn á
stjórnsýslu-
stigi.