Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Side 4
1 Kristín Avon opnar sig frekar um faðerni dóttur sinnar Áhrifa- valdurinn Kristín Avon opnaði sig um erfiðleikana eftir að í ljós kom að dóttir hennar var rangfeðruð. 2 Eiginkona lögregluþjónsins sækir um skilnað vegna málsins Eiginkona lögreglumannsins Dereks Chauvin, sem olli dauða George Floyd, hefur sótt um skilnað vegna málsins. Floyd var svartur maður og þykir málið varpa ljósi á djúpstæða kynþáttafordóma lögreglunnar í Bandaríkjunum. 3 „Blóð út um allt“ – Lögregla og sjúkralið á Grensásvegi vegna slagsmála Slagsmál brutust út á Benzin café á Grensásvegi. 4 Una Rakel verður fyrir aðkasti vegna holdafars síns Una Rakel Hafliðadóttir verður fyrir fordómum vegna vaxtarlags síns, en hún fær oft að heyra að hún sé horrengla og tannstöngull. 5 Fyrrverandi vændiskona af-hjúpar merki þess að makinn sé að halda framhjá Meðal annars ef karlmaður kemur heim með blautt hár eða fer að tala mikið um hvað framhjáhald sé slæmt, þá gæti hann verið að halda framhjá. 6 Vikan á Instagram: „Þetta snýst allt um sjónarhorn“ Vikan á Insta gram er fastur liður á mánu- dagsmorgnum hjá dv.is og nýtur mikilla vinsælda. 7 Stórt kýli í hálsi Hörpu varð til þess að hún leitaði til læknis: „Allt lífið gjörbreyttist“ Harpa Karen Antonsdóttir, leikmaður Hauka í knattspyrnu, hefur barist við krabba- mein í vetur. 8 Guðrún tók gamalt fellihýsi í gegn með glæsilegri útkomu Guðrún Björg Björnsdóttir gaf fellihýsi nýtt líf með einföldum breytingum. 9 Eitt efnilegasta listafólk lands-ins á lausu – Högni og Snæfríður hætt saman Snæfríður Ingvarsdóttir leikkona og Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, eru hætt saman. MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Bandaríkin loga vegna andláts Floyds George Floyd, svartur karlmaður, lét lífið eftir afskipti hvítra lögregluþjóna í Minneapolis í Bandaríkjunum. Málið hefur vakið mikla reiði þar sem George reyndi ítrekað að greina frá því að hann gæti ekki andað þar sem lögregluþjónn kraup á hálsi hans. Þykir þetta gott dæmi um kynþáttafordóma lög­ reglunnar sem gengur oft harðar fram gegn svörtum ein­ staklingum en hvítum. Um öll Bandaríkin er nú mótmælt vegna málsins og hafa miklar óeirðir brotist út þar sem bæði almennir borgarar og lögreglumenn hafa slasast, jafnvel látið lífið. Samstöðumótmæli voru haldin hér á landi á Austurvelli á miðvikudag. Herlögregla hefur verið virkjuð víða um Banda­ ríkin og útgöngubann er í gildi í Minneapolis. Skylt að endurgreiða pakkaferðir Evrópusambandið hefur hafnað hugmyndum um að heimila ferðaskrifstofum að afhenda viðskiptavinum inneignar­ nótur vegna pakkaferða sem féllu niður vegna kórónu­ veirufaraldursins. Viðskiptavinir eigi rétt á því að fá endur­ greitt. Ríkisstjórnin hefur unnið að löggjöf sem heimila átti ferðaskrifstofum að gefa viðskiptavinum inneignarnótur í stað endurgreiðslu í þeim tilgangi að styrkja starfsemi ferða­ skrifstofa sem margar standa höllum fæti sökum aflýsinga á pakkaferðum. Neytendasamtökin hafa mótmælt þessum fyrirætlunum og telja þau ekki standast evrópska neytenda­ löggjöf. Guðna spáð sigri Guðni Th. Jóhannesson mælist með yfir 90 prósenta fylgi fyrir forsetakosningarnar á meðan mótframboð Guðmundar Frank­ líns Jónssonar mælist aðeins með 9,6 prósent. Þetta kom fram í Þjóðarpúlsi Gallup. Nýjar vendingar í máli Madeleine McCann Þýsk yfirvöld eru að rann­ saka 43 ára kynferðisbrota­ mann í tengslum við hvarf Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal fyrir þrettán árum. Maðurinn bjó í Portúgal þegar stúlkan hvarf og hefur verið sak­ felldur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Þýski lögreglu­ maðurinn Hoppe greindi frá því í sakamálaþætti í þýska sjónvarpinu á miðvikudag að allar líkur væru á því að Madeleine litla hafi verið myrt. For­ eldrar stúlkunnar hafa allar götur frá hvarfi hennar haldið í vonina um að hún kæmi í leitirnar á lífi. Rúrik má ekki vinna Rúrik Gíslason, leikmaður Sandhausen, má hvorki mæta til vinnu né tjá sig um ástæðu þess. Frá þessu greindi Hjörvar Hafliðason í vikunni. Málið mun snúast um lækkun launa vegna COVID­19 sem hafi valdið deilum milli Rúriks og Sand­ hausen. Lilja braut lög Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta­ og menningarmálaráðherra, braut jafnréttislög þegar hún skipaði Pál Magnússon sem ráðuneytisstjóra. Annar umsækjandi, kona, hafi staðið Páli framar og miklir annmarkar voru á málsmeðferð og ákvarð­ anatöku ráðuneytisins við ráðninguna. Páll er flokksbróðir Lilju og hefur málið vakið töluverða reiði þar sem mörgum þykir ljóst að um frændhygli sé að ræða. OnePortal er vefgátt sem gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóran þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lausn sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem auðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Stjórnendur hafa yr ýn yr ga g mála innan fyrirtæk sins og otendur geta á einfaldan máta sótt lista yr þ u mál sem þeir bera ábyrgð á. Vilt þú koma skj lamálunum í lag? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - Rec ds Mála- og skjalakerfi Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.one.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057 4 FRÉTTIR 5. JÚNÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.