Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Side 8
8 FRÉTTIR 5. JÚNÍ 2020 DV
Framhald af síðu 6
Nöfn nokkurra sem hafa horfið á síðustu áratugum:
n Guðmundur Einarsson, horfinn 27. janúar 1974, sást
síðast fyrir utan Alþýðuhúsið í Hafnarfirði. Hvarf
Guðmundar var talið hafa borið að með saknæmum
hætti, fimm menn voru dæmdir fyrir að hafa bannað
Guðmundi, árið 1980. Mennirnir voru dæmdir að
ósekju og málið því tekið upp mörgum árum seinna
og fimmmenningarnir hreinsaðir af fyrri dómum.
n Bjarni Matthías Sigurðsson, 79 ára trésmiður,
hvarf 25. ágúst 1974, er hann var í berjamó skammt
frá Hólahólum á Snæfellsnesi með dóttur sinni og
tengdasyni. Hann fór á undan samferðafólki sínu í
átt að bíl þeirra sem lagt var skammt frá þjóðveg-
inum, en var hvergi sjáanlegur þegar þau komu um
15 mínútum seinna. Sporhundur rakti slóð Bjarna frá
þeim stað er þau höfðu lagt bifreið sinni og upp á
aðalveginn. Hrúga af berjum fannst við vegarkant
skammt frá þeim stað þar sem Bjarni sást síðast.
n Geirfinnur Einarsson, horfinn 19. nóvember 1974.
Sást síðast fara á fund við ókunnugan mann frá
heimili sínu í Keflavík. Fundurinn var talinn tengj-
ast spíraviðskiptum, fimm menn voru dæmdir fyrir
að hafa banað Geirfinni, árið 1980. Mennirnir voru
dæmdir að ósekju og málið var tekið upp mörgum
árum seinna og þeir hreinsaðir af fyrri dómum.
Þrátt fyrir sama föðurnafn voru þeir Geirfinnur og
Guðmundur ekki skyldir, en gjarnan er talað um mál
þeirra saman sem Guðmundar- og Geirfinnsmálið.
n Sigurður Þórir Ágústsson, horfinn 5. febrúar 1975,
sást síðast fyrir utan vita á Reykjanesi.
n Sturla Valgarðsson, horfinn 29. maí 1977. Sást síðast
á Blönduósi.
n Valgeir Víðisson, horfinn 19. júní 1994. Sterkur
grunur var um að honum hefði verið ráðinn bani þá
um nóttina.
n Hörður Björnsson, horfinn 14. október 2015. Sást síð-
ast á Laugarásvegi og var 25 ára þegar hann hvarf.
Matthías Þórarinsson
Matthías Þórarinsson hvarf rétt
fyrir jól 2010. Matthíasi var lýst
sem sérlunduðum einfara sem
bjó í gömlum Rússa jeppa. Jepp-
inn fannst í janúar 2011, brunninn,
skammt frá malarnámum á Kjalar-
nesi. Matthías var ekki í bílnum og
engar vísbendingar að finna. Móðir
hans, Þórgunnur Jónsdóttir, hefur
ekki misst trúna á að hann skili sér.
Hún segir erfitt að vita af hverju
hann fór, en hefur enga trú á að
hann hafi viljað binda enda á líf sitt.
„Þetta hefur verið erfitt en ég veit
að hann kemur,“ segir Þórgunnur
og lýsir syni sínum sem skemmti-
legum. Hún segir samband þeirra
hafa verið afar gott, en hún var
nýflutt á Kjalarnes þegar Matthías
hvarf. Hann bjó í Rússajeppanum
fyrir utan. Samkvæmt lögum er
Matthías talinn af í dag, þar sem
meira en þrjú ár eru liðin frá hvarfi
hans.
Júlíus Karlsson og Óskar Halldórsson
Tveir unglingspiltar, 13 og 14 ára,
hurfu frá Keflavík 26. janúar árið
1994. Þeir Júlíus Karlsson og Óskar
Halldórsson skruppu út og sáust
aldrei aftur. Lögreglan rannsakaði
málið af miklum krafti en þeir fund-
ust aldrei. Vísbendingar bárust
um hvar þá væri að finna, meðal
annars voru þeir sagðir hafa sést
á Suðurlandi og í bænum. Spor-
hundur leitaði þeirra og endaði
slóðin alltaf við olíutanka niðri við
sjó. Miklar kjaftasögur spruttu upp
um hvarf þeirra, en þrátt fyrir mikla
leit hefur aldrei komið í ljós hvað
varð um þá.
Pabbi Birgittu
Þann 23. janúar á þessu ári
greindi lögreglan frá því að tekist
hefði að bera kennsl á höfuðkúpu
Jóns Ólafssonar, sem hvarf á að-
fangadag árið 1987. Talið var að
hann hefði fallið í Sogið. Höfuð-
kúpan fannst svo þann 3. október
1994, en ekki var hægt að bera
kennsl á hana fyrr en nú. Jón var
faðir Birgittu Jónsdóttur, skálds
og fyrrverandi kapteins Pírata.
„Það er rosalega mikill léttir að fá
að loka þessu, grafa hann og ein-
hvern veginn fá fullkomna stað-
festingu á því að hann sé í raun
og veru dáinn. Þó svo að maður
viti það á einhverju leveli, að þá
er það ekki alveg raunverulegt
þangað til maður fær líkamlega
staðfestingu,“ sagði Birgitta í
samtali við Fréttablaðið.
MORGUNBLAÐIÐ 28. JANÚAR 1994
FRÉTTABLAÐIÐ 24. JANÚAR 2020
DV 12. JANÚAR 2011
DRÁTTARBEISLI
Hágæða beisli, föst eða
losanleg, fyrir flestar gerðir
fólksbíla og jeppa. Upplýsingar
um verð og afgreiðslutíma hjá
Bílanaust.
www.bilanaust.is
STÓRVERSLUN
DVERGSHÖFÐA 2
Dalshrauni 17
220 Hafnarfirði
110 Reykjavík
S. 535 9000
S. 555 4800
Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Furuvöllum 15
600 Akureyri
Hafnargötu 52
260 Reykjanesbæ
Hrísmýri 7
800 Selfossi
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 421 7510 S. 482 4200 S. 535 9085 S. 471 1244