Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 10
S pilakassar eru það fjár-hættuspil sem er mest ávanabindandi, þrisvar til fjórum sinnum meira ávanabindandi en til að mynda póker og íþróttaveðmál,“ segir Alma Hafsteinsdóttir, for- maður Samtaka áhugafólks um spilafíkn. Frekar í góðgerðarstarf en til einkaaðila Spilakassar hér á landi eru reknir af tveimur aðilum; Ís- landsspilum og Happdrætti Háskóla Íslands. Íslandsspil eru í eigu Rauða kross Íslands (64%), Slysavarnafélags- ins Landsbjargar (26,5%) og SÁÁ (9,5%). Öllum spila- kössunum var lokað þann 20. mars vegna COVID-19 en byrjað var að opna kassa aft- ur snemma í maí. Íslandsspil og HHÍ hafa leyfi til rekst- ursins frá dómsmálaráðu- neytinu. Ýmsir hafa bent á að þetta sé aðferð stjórnvalda til að tryggja framgang þeirra verkefna sem eigendur Ís- landsspila starfa að og betur fari á því að ágóði af rekstri spilakassa renni til góðgerð- armála en einkaaðila. Spilafíklar voru meira með fjölskyldunni „Við fengum símtöl frá fjölda aðstandenda og ættingja spila- fíkla sem urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar spilakass- arnir voru opnaðir aftur. Það var áberandi hversu miklar breytingar urðu á lífi fjölda spilafíkla meðan kassarnir voru lokaður. Ættingjar sögðu þá eyða meiri tíma með fjöl- skyldunni og vinnuveitendur sögðu spilafíkla bæði mæta betur í vinnuna og biðja síður um að fá launin fyrirfram. Nú dugðu þau bara út mánuðinn þegar ekki var verið að eyða þeim í spilakassana,“ segir Alma. Tæp 86% svarenda vilja að spilakassar og spilasalir verði lokaðir til frambúðar, samkvæmt niðurstöðu könn- unar sem Gallup gerði fyrir Samtök áhugamanna um spilafíkn, SÁS. Niðurstöður könnunarinnar sýna að flest- ir nota spilakassa sjaldan og aðens 0,3% nota þá að stað- aldri. ASÍ styður baráttu gegn spilakössum ASÍ er meðal þeirra sem hafa tekið undir baráttu Samtaka áhugafólks um spilafíkn og eftir að niðurstöður könnunar- innar voru kynntar sendi ASÍ frá sér yfirlýsingu þar sem sagði meðal annars: „Þeir (spilakassarnir) eru í raun keyrðir áfram af þeim sem eiga við spilafíkn að stríða með öllum þeim vanda sem fylgir, félagslega og fjár- hagslega. Það er því sam- félagslega mikilvægt að taka á málinu og samkvæmt fyrr- nefndri skoðanakönnun er þjóðin sammála því. Spilafíkn er erfiður sjúk- dómur sem kemur hart niður á lífsgæðum þeirra sem haldnir eru fíkninni og fjölskyldum þeirra. Alþýðusamband Ís- lands stendur með Samtökum áhugafólks um spilafíkn í baráttu þeirra gegn spilaköss- unum.“ Sækja í spilakassana Hátt í 700 Íslendingar eru hugsanlegir spilafíklar en tæplega sex þúsund manns eiga við verulegan spila- vanda að stríða. Þetta kemur fram í könnun sem Daníel Þór Ólason, prófessor í sál- fræði, gerði fyrir dómsmála- ráðuneytið árið 2017 en hann hefur rannsakað spilafíkn um árabil. Þetta er nýjasta ís- lenska könnunin á þessu sviði. Niðurstöður Daníels benda til að 3,5% karla og 1,1% kvenna eigi við spilavanda að stríða, flestir séu aðeins með grunn- skólapróf, lágar tekjur og á aldrinum 18-25 ára. Spila- kassar er sú tegund peninga- spila sem flestir í þessum hópi spila. Leita til stjórnvalda Landsbjörg hefur það ekki á dagskrá að gefa frá sér aðild sína að Íslandsspilum og segir Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar, að þau muni áfram vinna að ábyrgri spilun á þeim vettvangi með öðrum eigendum. Hann bendir á að Íslands- spil hafi margoft hafið máls á því við stjórnvöld með hvaða hætti hægt sé að gera spilun á Íslandi ábyrgari en til þess að af slíku geti orðið þurfi stjórn- völd að sjá um þá framkvæmd. Talið er að margir milljarðar króna renni úr landi á ári hverju í gegnum netspilun og telur Þór að lokun spilakassa á Íslandi myndi eingöngu auka netspilun. Bann læknar ekki fíknina Þór segir að Samtök áhuga- fólks um spilafíkn vinni að göfugum markmiðum af hug- sjón og því beri að fagna. „Saman ættum við að geta þrýst harðar á að spilun á Ís- landi verði gerð ábyrgari með leiðum sem þegar hafa gefið góða raun á öðrum Norður- löndum. Hins vegar er allur málflutningur þeirra um að verið sé að fórna fólki með spilafíkn fyrir skjólstæðinga eigenda Íslandsspila ákaflega ómaklegur. Slæmur fyrir sjálfboðaliða samtakanna og ÞÚSUNDIR GLÍMA VIÐ ALVARLEGAN SPILAVANDA Spilakassar er sú tegund fjár- hættuspila sem flestir spilafíklar ánetjast. Hvorki Rauði krossinn né Slysavarnafélagið Landsbjörg hyggjast hætta aðkomu sinni að Íslandsspilum sem reka fjölda spilakassa. Formaður SÁÁ telur að rekstri spilakassa verði brátt sjálfhætt því öll spilun sé á leið á netið. Hátt í 700 Íslendingar eru hugsanlega spilafíklar en tæplega sex þúsund glíma við verulegan spilavanda. Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Þetta er mjög mikilvæg fjár- öflun fyrir félag- ið. 10 FRÉTTIR 5. JÚNÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.